Airbus veitir afslátt 21. febrúar 2007 03:45 Airbus A380 Flugvélaframleiðandinn Airbus hefur ákveðið að veita afslátt af verði flugvéla vegna tafa á afhendingu A380-risaþotanna.
Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus hefur ákveðið að veita taílenska flugfélaginu Thai Airways afslátt af átta A330 farþegaþotum frá Airbus. Ástæðan er tafir á afhendingu A380 risaþotnanna, sem er tveimur árum á eftir áætlun. Thai Airways hafði pantað sex risaþotur frá Airbus en hótaði að draga kaupin til baka ef flugvélaframleiðandinn veitti flugfélaginu ekki afslátt. Flugfélagið átti upphaflega að fá risaþoturnar afhentar eftir tvö ár en allt stefnir nú í að af því verði ekki fyrr en árið 2011. Tafir á afhendingu A380 risaþotnanna hafa sett Airbus í talsverðan vanda. Nokkur flugfélög hafa hótað að hætta við kaup á risaþotunum. Þá hafa nokkur flugfélög dregið kaup á þotunum til baka. Þar á meðal er bandaríska þjónustufyrirtækið FedEx. Afsláttur flugfélagsins nemur tíu milljónum bandaríkjadala, jafnvirði 683,4 milljóna íslenskra króna, fyrir hverja vél. Ein farþegaþota af gerðinni A330 kostar þá Thai Airways, að afslættinum meðtöldum, um 90 milljónir Bandaríkjadala, rúman 6,1 milljarð íslenskra króna. Stjórn Airbus ætlar að kynna viðamikla hagræðingu í rekstri fyrirtækisins í næstu viku. Gert er ráð fyrir að fyrirtækið segi upp allt að 57.000 starfsmönnum í Frakklandi, Þýskalandi og Bretlandi.
Mest lesið Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Viðskipti innlent Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira