Rothschild-veldið verður til 21. febrúar 2007 06:00 vín frá Rothschild. Starfsemi Rothschild-fjölskyldunnar teygir anga sína langt út fyrir fjármálageirann. Hér eru boðin upp vín frá Château Lafite-Rothschild sem framleidd voru í Frakklandi árið 1806. MYND/AFP
Á föstudag verða liðin 263 ár frá fæðingu Mayers Amschel Rothschild, stofnanda banka, sem heitir í höfuðið á honum. Bankinn lagði grunninn að veldi Rothschild-fjöldskyldunnar sem allt fram til dagsins í dag er á meðal auðugustu fjölskyldna í heimi. Mayer Amschel Rothschild fæddist hinn 23. febrúar árið 1744 í Frankfurt í Þýskalandi. Rothschild er hins vegar ekki ættarnafn Mayers heldur Bauer. Upphaflega stóð til að Mayer litli færi í strangt nám í gyðinglegum fræðum með það fyrir augum að hann yrði rabbíni. Mayer var hins vegar ungur að árum þegar í ljós kom að hann sýndi talsverða hæfileika á fjármálasviðinu. Faðir hans, sem rak litla lánastofnun í gyðingahverfinu í Frankfurt, lokaði því á frekara nám í trúfræðum, tók son sinn í læri og opnaði honum dyrnar að allri þeirri þekkingu sem hann bjó yfir á sviði fjármála- og lánastarfsemi. Árið 1755, nokkru eftir andlát föður síns, hlotnaðist Mayer staða gjaldkera í banka sem var í eigu Oppenheimer-fjölskyldunnar í Hannover. Fljótlega var tekið eftir hæfileikum hans á fjármálasviðinu og var hann eftir fáein misseri í starfinu orðinn einn af meðeigendum bankans. Mayer entist í fimm ár hjá Oppenheimer-bankanum í Hannover. Að þeim tíma loknum sagði hann upp, hélt aftur til Frankfurt með fullar hendur fjár og keypti lánastofnun föður síns af þáverandi eigendum. Yfir dyrum lánastofnunarinnar hafði Móses gamli sett rauðan skjöld sem vísaði til fána framsýnna og stórhuga gyðinga í Austur-Evrópu. Mayer Amschel ákvað að samsama sig nýju eigninni eftir fremsta megni. Hann henti því gamla föðurnafninu fyrir róða og tók upp nafnið Rothschild (ísl: Rauði skjöldur). Þessi fyrsti Rothschild-banki var afar farsæll. Ekki síst eftir að Mayer komst í samband við Vilhjálm IX, prins af Hesse-Cassel, sem erfði einhver mestu auðæfi í Evrópu á þess tíma mælikvarða. Rothschild-bankinn sá að öllu leyti um viðskipti hans og vörslu fjármunanna. Og árangurinn var eftir því, ekki síst eftir að herir Napóleóns réðust nokkrum sinnum inn í Frankfurt á árabilinu 1813 til 1815 án þess að koma höndum sínum yfir auðinn. Þá fjármagnaði hann auk þess stríðsrekstur Breta gegn Napóleon. Í kjölfarið náði Mayer í viðskiptasambönd við fleiri prinsa í nálægum ríkjum og tryggði hann þar með stoðir og framtíð bankans. Mayer eignaðist tíu börn. Þar af voru fimm drengir. Hann veitti sonum sínum vel af viskubrunni sínum á fjármálasviðinu, opnaði fjögur útibú í jafnmörgum löndum og setti syni sína yfir þau. Sá fimmti varð svo yfirmaður bankans í Frankfurt. Fyrirtækinu stýrði Mayer svo með harðri hendi í gegnum synina þar til hann lést 19. septem-ber árið 1812 en afkomendur hans eru enn vel þekktir í bankaheiminum á Vesturlöndum. Mayer Rothschild lét eftir sig einn þann mesta auð sem nokkur maður hefur verið orðaður við í þá daga, jafnvirði 200 milljóna Bandaríkjadala. Hann var með framsýnustu mönnum og svo stórhuga að hans er enn minnst í dag sem upphafsmanns alþjóðlegrar fjármálastarfsemi.
Mest lesið Nýtti glugga þegar hann opnaðist og þurfti ekki að kaupa fyrirtækið til baka Viðskipti innlent Hinseginvottun: „Það er heldur engin kynjamerking á salernum fyrir fatlaða“ Atvinnulíf Danski lyfjarisinn að baki Ozempic segir upp þúsundum manna Viðskipti erlent Matvöruverslanir kattslakar en lyfjarisi fylgist grannt með Viðskipti innlent Stofnar einkahlutafélagið Uppselt ehf. Viðskipti innlent Breytingar á tollskrá megi ekki grafa undan íslenskri framleiðslu Viðskipti innlent Ueno snýr aftur og Haraldur framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Lítið fékkst upp í háar kröfur í bú Blackbox Viðskipti innlent Breytir tollflokkun pitsaosts eftir allt saman Viðskipti innlent „Hvert á ég að ráðstafa séreigninni?“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Danski lyfjarisinn að baki Ozempic segir upp þúsundum manna Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Frakkar þurfi mögulega að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Risinn sem var of stór til að falla er fallinn Facebook gagnrýnt fyrir að leyfa gervigreind að reyna við börn Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Sjá meira