Hart barist í Bretlandi 21. febrúar 2007 04:30
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Gengi hlutabréfa í bresku matvörukeðjunni Sainsbury hækkaði um tvö prósent í bresku kauphöllinni í Lundúnum (LSE) í byrjun vikunnar eftir að tveir fjárfestingasjóðir frá arabaríkinu Katar höfðu bæst í hóp þeirra sem hug hafa á að kaupa ráðandi hlut í keðjunni og yfirtaka rekstur hennar. Verði af viðskiptunum verða þetta stærstu fyrirtækjakaup í Evrópu. Sjóðirnir, sem báðir eru í eigu Katarríkis, eru sagðir geta fjárfest fyrir allt að 40 milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði 2.700 milljarða íslenskra króna. Ekki liggur fyrir hversu stóra sneið af Sainsbury sjóðirnir hyggjast festa sér. Breska dagblaðið The Sunday Telegraph hafði eftir Hamad bin Jasim bin Jaber al-Thani, utanríkisráðherra Katar og forstjóra sjóðanna, að málið væri í skoðun enda verslanakeðjan áhugaverður kostur. Yrði af kaupum væri um langtímafjárfestingu að ræða. Sjóðirnir eru sömuleiðis sagðir hafa skoðað kaupin í samstarfi við stjórn bresku verslanakeðjunnar Marks & Spencer. Stuart Rose, forstjóri Marks & Spencer, vísaði því á bug í breskum fjölmiðlum um helgina og sagði fyrirtækið hafa næga getu til að fara eitt í yfirtöku á Sainsbury. Orðrómur hefur verið uppi í hálfan mánuð um að yfirtaka á Sainsbury væri í bígerð. Á meðal fjárfestanna eru bandaríski sjóðurinn Blackstone Group, fjárfestingarfélagið Kohlberg Kravis Roberts & Co. og CVC Capital Partners. Fjárfestasjóðirnir hafa allir tilkynnt formlega að þeir séu að skoða kaup í keðjunni. Yfirtökuáformin hafa hækkað gengi matvörukeðjunnar um heil 13 prósent og stendur það nú í um 514,25 pensum á hlut. Þetta jafngildir því að markaðsvirði Sainsbury standi í 8,7 milljörðum punda, jafnvirði ríflega 587 milljarða íslenskra króna. Sainsbury-keðjan var stofnuð árið 1869 og rekur 769 verslanir víðs vegar um Bretland. Hún var stærsta matvörukeðja landsins allt fram til 1995 þegar samkeppni jókst á matvörumarkaði. Þótti keðjan bregðast seint við lækkandi vöruverði, með þeim afleiðingum að viðskiptavinum fækkaði. Hún situr nú í þriðja sæti yfir stærstu verslanakeðjur landsins á eftir Asda, sem er í eigu bandaríska verslanarisans Wal-Mart, og Tesco, sem trónað hefur á toppnum síðastliðin tólf ár.
Mest lesið Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfan sig í gjafavali Atvinnulíf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Viðskipti innlent Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Viðskipti innlent Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekkert verður úr TikTok-banni með nýjum samningi Hæstu stýrivextir í þrjátíu ár Höfnuðu yfirtökutilboði Paramount Messenger-forritið heyrir sögunni til Lofar að koma böndum á CNN Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Kaup Netflix á hluta Warner Bros. gætu reynst „vandamál“ ESB sektar samfélagsmiðil Musk um milljarða Google birtir lista yfir vinsælustu leitarorðin Netflix í viðræðum um kaup á HBO frá Warner Bros Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google „Brunaútsala“ á hlutabréfum eftir eldsvoðann í Hong Kong Fjögurra billjóna hagnaður léttir fyrir fjárfesta Stefna Jóni Þorgrími vegna Rauða heftarans Segir engan óhultan ef gervigreindarbólan springur Trump fellir niður tolla á tugi matvæla Paramount, Comcast og Netflix vilja kaupa Warner Kári og Hannes stofna fyrirtæki: „Erum aðallega bara að velta fyrir okkur heiminum“ PlayStation 5 slær Xbox 360 við Reyna að halda sjaldgæfum málmum frá hernum Jensens Bøfhus lokað Samþykktu stærðarinnar launapakka Musks Græða á tá og fingri á svikum og prettum Fresta reynsluflugi rafmagnsflugvélar Segist engin deili kunna á rafmyntajöfri sem hann náðaði Sjá meira