Kaupþing sektað í Svíþjóð 24. ágúst 2007 05:15 Jónas Sigurgeirsson. Kaupþing í Svíþjóð hefur verið sektað vegna mistaka starfsmanns. Leiðindamál, segir framkvæmdastjóri samskiptasviðs bankans. MYND/Hari
Aganefnd OMX-kauphallarinnar í Svíþjóð hefur sektað Kaupþing þar í landi um 200 þúsund sænskra króna, tæpar 1,9 milljónir íslenskra, vegna brota eins miðlara á tilkynningaskyldu vegna viðskipta með hlutabréf í janúar og febrúar á þessu ári. Brotin ná til fimmtán færslna með bréf í sænsku félagi sem skráð er á First -North hlutabréfamarkaðinn. Í tilkynningu frá OMX segir að rannsókn á málinu hafi leitt í ljós að gögn um viðskiptin hafi skort auk þess sem misræmis hafi gætt í gengisskráningu þeirra. Hins vegar er tekið fram að erfitt sé að glöggva sig á málinu þar sem viðskiptin hafi ekki verið færð nógu vel til bókar. Aganefndin telur þó ekki sýnt að brotin hafi verið vísvitandi. Jón Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Kaupþings, segir þetta leiðindamistök sem enginn hafi hagnast á. Starfsmaðurinn, sem hefur verið lengi hjá bankanum, hafi fengið ávítur frá hendi sænska fjármálaeftirlitsins en ekki misst réttindi sín. Þá verður hann fluttur til í starfi, að sögn Jónasar.
Mest lesið Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Himneskt ei meir Viðskipti innlent Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira