Easyjet tapaði 5,5 milljörðum króna 3. maí 2006 12:02 Mynd/AFP
Breska lággjaldaflugfélagið Easyjet tapaði 40,3 milljón pundum, jafnvirði rúmlega 5,5 milljarða íslenskra króna, fyrir skatta í mars á sex mánaða tímabili. Á sama tímabili í fyrra tapaði fyrirtækið 21,6 milljón pundum. Helsta ástæða tapsins er 49 prósenta hækkun á eldsneytisverði og páskahátíðin, sem var í apríl. Þrátt fyrir þetta er búist við að afkoma fyrirtækisins verði allt að 15 prósent meiri en á síðasta ári. Að sögn forsvarsmanna Easyjet hefur fyrirtækið náð að draga úr kostnaði til að mæta hækkun á eldsneytisverði. Þá hefur sala félagsins á ýmsum varningi um borð í flugvélum fyrirtækisins aukist nokkuð. Á ársfundi Easyjet í febrúar var spáð 45 milljóna tapi hjá fyrirtækinu. Fréttavefur breska ríkisútvarpsins, BBC, hefur eftir Andy Harrison, forstjóra Easyjet, að búist sé við betri afkomu fyrirtækisins í sumar þrátt fyrir hækkun á eldsneytisverði. 14,1 milljón farþega flaug með Easyjet síðasta hálfa árið en það er 10,1 prósents fjölgun farþega frá sama tíma á síðasta ári.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira