Viðskipti innlent

TM Software styrkir Ljósið

Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri hjá TM Software, Erna Magnúsdóttir, yfirumsjónarmaður starfsemi Ljóssins og Davíð Arnar Þórsson, þjónustustjóri hjá TM Software.
Ágúst Einarsson, framkvæmdastjóri hjá TM Software, Erna Magnúsdóttir, yfirumsjónarmaður starfsemi Ljóssins og Davíð Arnar Þórsson, þjónustustjóri hjá TM Software.

Hugbúnaðarfyrirtækið TM Software hefur ákveðið að styrkja Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Stuðningurinn felst í að veita Ljósinu afnot af sjúkraskrárkerfinu Sögu, sem Ljósið fær aðgang að í gegnum iCura-kerfisveitu.

Í tilkynningu frá TM Software segir að umsjónarmenn Ljóssins geti skráð námskeið, fræðslutíma og sjúkrasögu allra sem sækja miðstöðina í sjúkraskrárkerfið Sögu. Með iCura-kerfisveitu fær Ljósið aðgang að Sögu yfir Netið og þarf því ekki að setja upp aukavélbúnað til að keyra sjúkrakerfið. iCura-kerfisveitan fylgir ströngustu öryggiskröfum og tryggir það öruggan rekstur, afritunartöku, eftirlit og viðhald, að því er segir í tilkynningunni.

Erna Magnúsdóttir, yfirumsjónarmaður Ljóssins, segir þetta ómetanlegt og hafa mikla hagræðingu í för með sér. Kostur sé að geta fengið kerfi eins og Sögu í gegnum kerfisveitu og þannig nýtt áfram þann tölvukost sem fyrir var í miðstöðinni en kerfisveitan gerir notendum kleift að tengjast sjúkraskránni utan starfsstöðvar Ljóssins og tryggir það sveigjanleika í skráningu og eftirliti, að því segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×