Leikjavísir

Kona verður milljónamæringur á því að spila tölvuleik

Kínversk kona varð á dögunum fyrsti milljónamæringurinn sem verður til í sýndarveruleika. Hún spilar leikinn Second Life, http://secondlife.com/, á netinu og selur þar hús, íbúðir og landsvæði. Í leiknum græddi hún alls 300 milljónir Linden dollara, en það er gjaldmiðill leiksins. Það merkilega er að það er hægt að skipta sýndarpeningunum í alvöru dollara á genginu 275 Linden dollarar á móti einum raunverulegum. Samkvæmt því á konan

Second Life er sýndarheimur, eða tölvuleikur, þar sem fólk skapar sér sína eigin persónu og lifir í raun öðru lífi. Spilendur geta síðan keypt og selt hluti og Ailin Graef, konan sem um ræðir, fór að kaupa hús og landsvæði, gera þau upp og selja síðan öðrum notendum. Í dag rekur hún fyrirtæki í raunveruleikanum og er með tíu manns í vinnu við að gera upp sýndarveruleikafasteignir.

Hún er ekki ein um að græða í raunveruleikanum á því sem hún gerir í sýndarveruleikanum en einn spilari þróaði tölvuleik í sýndarveruleiknum sem hann seldi síðar réttinn á til tölvuleikjarisanns Nintendo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×