Formúla 1

Lewis Hamilton ekur fyrir McLaren

Lewis Hamilton segir að draumur sinn hafi ræst þegar hann fékk sæti í McLaren liðinu
Lewis Hamilton segir að draumur sinn hafi ræst þegar hann fékk sæti í McLaren liðinu NordicPhotos/GettyImages

Hinn 21 árs gamli Lewis Hamilton verður liðsfélagi heimsmeistarans Fernando Alonso hjá keppnisliði McLaren á næsta ári. Þetta var tilkynnt í dag og er Bretinn fyrsti þeldökki ökumaðurinn sem keppir í Formúlu 1. Hamilton hefur verið hjá McLaren til reynslu frá árinu 1998.

Forráðamenn McLaren liðsins viðurkenna að þessi ráðstöfun sé nokkuð áhættusöm, en segjast hafa fulla trú á Englendingnum unga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×