Slá stóru dönsku bönkunum við 24. ágúst 2006 06:30 Peter Straarup forstjóri Danske Bank Stærri bankar í Danmörku tapa markaðs-hlutdeild og kúnnum til þeirra minni. MYND/Valli
Minni bankar og sparisjóðir í Danmörku sýndu að jafnaði betri arðsemi en stóru fjármálafyrirtækin á fyrri hluta ársins og hafa verið að stela markaðshlutdeild og viðskiptavinum frá risunum. Frá þessu er greint í samantekt Jyllands-Posten, en hún nær til 70 prósenta danskra fjármálastofnana. Jóski bankinn Ringkjøbing Landbobank sýndi hæstu arðsemi eiginfjár á fyrri hluta ársins eða um 42 prósent á ársgrundvelli samanborið við þrjátíu prósent árið áður. Í næstu sætum á eftir koma Sydbank (35 prósent), Amagerbanken (32 prósent), Totalbanken (29 prósent) og færeyski Sparikassinn (29 prósent). Stóru bankarnir voru neðar. Jyske bank sýndi 24 prósenta arðsemi eigin fjár og Danske bank 23 prósenta. Mikill vöxtur hefur verið í danska bankakerfinu á árinu líkt og því íslenska sem kemur að stærstum hluta til vegna mikils útlánavaxtar. Hefðbundinn bankarekstur skilar methagnaði en tap af fjárfestingum í hlutabréfum dró afkomuna niður. Í umfjöllun blaðsins kemur einnig fram að smærri fjármálafyrirtæki hafi vaxið hratt frá því á tíunda áratugnum eftir að samþjöppun hófst hjá stærri bönkum. Á einum áratug hafi smærri bankar aukið fjölda útibúa um fjórðung á sama tíma og þeir stóru drógu saman seglin í þeim efnum sem lið í því að minnka kostnað.
Mest lesið Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Neytendur Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Fjölga verslunum í Danaveldinu Neytendur Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira