Þróunarsjóður kaupir í EADS 18. október 2006 06:30 við þotu frá airbus Michael Glos, fjármálaráðherra Þýskalands, vill að Þjóðverjar auki við hlut sinn í EADS, móðurfélagi flugvélaframleiðandans Airbus. Hann segir eignarhlut KfW verða í eigu þróunarsjóðsins í stuttan tíma. MYND/AFP
Þýski þróunarsjóðurinn KfW, sem hér á landi er einna þekktastur fyrir útgáfu á svokölluðum Jöklabréfum sem hefur áhrif á gengi krónunnar, er sagður hafa hug á að kaupa rúman 7,5 prósenta hlut í EADS, móðurfélagi flugvélaframleiðandans Airbus. Seljandi bréfanna er þýski bifreiðaframleiðandinn DaimlerChrysler sem á 22,5 prósent bréfa í EADS. Kaupverð nemur um 130 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti með bréf í EADS eru næstum fullfrágengin en þróunarsjóðurinn mun aðeins halda í bréfin þar til annar þýskur fjárfestir lýsir yfir áhuga á því að kaupa þau. Talsverður áhugi er á bréfum í EADS í Þýskalandi. Þýska vikuritið Der Spiegel segir 16 ríki þar í landi vilja sneið af kökunni og hefur eftir borgarstjóra Hamborgar í Þýskalandi um síðustu helgi að borgaryfirvöld hefðu sömuleiðis áhuga á að kaupa hlut í EADS. Þá segir blaðið að tilgangurinn með því að halda bréfunum í þýskum höndum sé sá að mögulega verði hægt að koma í veg fyrir að Airbus segi upp starfsfólki sínu í Þýskalandi. Gengi bréfa í EADS hafa fallið um þriðjung á árinu í kjölfar þess að tilkynnt var um tafir á afhendingu A380 risaþotna frá flugvélaframleiðandanum Airbus, nú síðast undir lok september.
Viðskipti Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira