Mamma, mig langaði svo að þér liði betur!!! 10. nóvember 2006 05:00 PrófkjörÞeir voru 14 ára - Garðar bjó með 28 ára móður sinni og 3 yngri hálfsystkinum, faðir þeirra lést af slysförum fyrir 2 árum. Sigfús heima hjá foreldrum sínum og eldri systur. Pabbi hans var forstjóri fiskvinnslunnar og einnig í stjórn bankans í bænum. Þeir ræddu margt, ætluðu að láta að sér kveða þegar þeir stækkuðu. Hugsjónir þeirra voru ólíkar, Sigfús sá fyrir sér að taka við af föður sínum sem forstjóri, eiga svartan blæjubenz og taka flottar stelpur með á rúntinn, njóta lífsins í botn. Hugsjónir fæðast!!Garðar var alinn upp í fátækt með móður sinni, sumarlaunin hans fóru til heimilisins, kaupa föt, mat, borga daggæslugjöld og fleira fyrir systkini hans. Mamma vann eins mikið og hún gat, margt var að borga, mikilvægt að reyna að standa með húsnæðið í skilum svo þau lentu ekki á vergangi.Hann tók svo sárt að horfa uppá baslið á mömmu sinni - vissi að hún grét sig stundum í svefn á kvöldin. Hann hafði heyrt hana trúa vinkonu sinni fyrir að hún væri ekki viss hvor væri faðir síns elsta barns, fósturfaðir sinn eða strákur sem hún hafði verið að slá sér upp með. Heyrði hana tala um að hún treysti sér ekki til að kæra misnotkunina, því sönnunarbyrðin væri svo mikil. Hún væri komin á þunglyndislyf til að geta haldið höfði gegnum þetta allt. Það kvöld grét Garðar sig í svefn. Honum fannst hann hafa eignast stein í hjarta stað - þunginn fyrir brjósinu var svo mikill. Hann hugsaði hversu mikið hann langaði að mamma hefði það betra - hversu miklu léttara væri fyrir hana ef hún þyrfti ekki að borga gæslu fyrir tvíburana. Líka hve gott væri ef það væri ekki svona erfitt að láta fólk svara fyrir að brjóta á börnum kynferðislega. Fólk sem ætti að kenna börnum hvað væri rétt og rangt en ekki misnota sér varnarleysi þeirra.Hann eignaðist draum um að komast í valdastöður sem gætu tekið á svona málum.Ekki lengur börnGarðar og Sigfús eru orðnir 23 ára. Framundan eru bæjarstjórnarkosningar. Þeir ákveða að gefa kost á sér, vita að líklegt er að þeir komist ekki báðir að. Faðir Sigfúsar er með mikil ítök í bænum og veit að sonurinn mun fylgja sér í skoðunum, annars tapar hann ýmsum fríðindum. Hann ætlar ekki láta breyta neinu þarna - búinn að koma á miklum stuðningi frá bænum við sinn atvinnurekstur. Vill ekki að Garðar komist að og peningaflæði sem búið er að koma á breytist og fari inní félagslegu málefnin. Hann talar við sína og gerir þeim grein fyrir að þar sem hann sé aðalvinnuveitandi fólks í bænum er best að sem flestir kjósi son hans, því hver veit nema breytingar þurfi að verða í fiskvinnslunni og þá er ekki að vita hverjir muni halda vinnunni. Er til lausn? Þorum við?Svona vinnur efnishyggjan. Hvernig væri að breyta svona flæði og leyfa ungu kjörkuðu hugsjónafólki með ferskar áherslur að komast að? Fólki sem þorir að standa á sínu? Sýnir skilning á þörf almennings? Ég hef hugsjón fyrir velferð barna og er búin að finna þingmann sem ég treysti til að standa fyrir þeim breytingum sem mig langar að sjá. Eigum við ekki að leggja áherslu á að taka þátt í prófkjörum flokkanna og setja unga fólkið efst á listana? Ungt fólk með hugsjónir, áhuga á persónulegum þörfum manneskjunnar frekar en efnishyggju? Ég hef valið að styðja ungan þingmann, Ágúst Ólaf Ágústsson, varaformann Samfylkingarinnar.Hann hefur verið að leggja fram fjölmörg góð þingmál, má þar nefna: - afnám fyrningar á kynferðisafbrotum gegn börnum - sérdeild fyrir unga fanga -gjaldfrjálsa leikskóla - aukna vernd fyrir heimildarmenn fjölmiðla - rannsókn á þunglyndi eldri borgara - löggjöf um heimilisofbeldi ofl. Svona maður er að mínu skapi, ég vona að allir sjái hina miklu og góðu möguleika sem búa í stráknum! Komið, gerum breytingar, tökum þátt í prófkjörinu 11 nóvember hjá Samfylkingunni og styðjum þennan unga hugsjónamann!!!Höfundur vinnur hjá Félagsþjónustu Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðanir Skoðun Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar