Viðskipti erlent

Oftast kvartað yfir Ryanair

vél frá Ryanair Flestir flugfarþegar á Írlandi kvörtuðu yfir Ryanair á fyrstu sex mánuðum ársins.
vél frá Ryanair Flestir flugfarþegar á Írlandi kvörtuðu yfir Ryanair á fyrstu sex mánuðum ársins.

Neytendasamtökum Evrópu bárust tæplega 400 kvartanir vegna írskra flugfélaga á fyrstu sex mánuðum ársins. Flestar kvartanir bárust frá farþegum sem flugu með lággjaldaflugfélaginu Ryanair en 133 farþegar fundu eitt og annað að starfsemi þess.

Rúmlega helmingi færri, eða 62, kvörtuðu vegna Air Lingus.

Flestar kvartanirnar voru vegna tafa eða niðurfellinga á flugi og vegna skemmda eða taps á farangri.

Neytendasamtökin segja niður­stöðurnar benda til þess að einungis þriðjungur flugfarþega kvarti þegar eitthvað bjáti á. Þá segja samtökin ennfremur að flugfélögin fari oftar en ekki á svig við þær reglur sem þeim séu settar. Sé meðal annars á þau lagt að endurgreiða fyrir flug sem fellur niður og koma farþegum á áfangastað með öðru flugi. Sé það ekki í boði á flugfélagið að greiða fyrir fæði handa flugfarþegum og jafnvel gistingu.

Í stað þessa hafa farþegar, sem orðið hafa fyrir óþægindum vegna tafa og fleiri þátta, orðið að greiða öll útgjöld sjálfir og senda síðan flugfélaginu reikning fyrir útlögðum kostnaði, að sögn Neytendasamtakanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×