Viðskipti erlent

Olíuverð í hámarki

Olíuvinnslustöð Olíuverð fór í sögulegt hámark á helstu mörkuðum í gær.
Olíuvinnslustöð Olíuverð fór í sögulegt hámark á helstu mörkuðum í gær.

Olíuverð fór í tæpa 76 Bandaríkjadali á helstu mörkuðum í gær og hefur verðið aldrei verið hærra. Ástæðan fyrir hækkuninni er minni umframbirgðir af olíu í Bandaríkjunum, vaxandi spenna í Mið-Austurlöndum og sprengingar við tvær olíuleiðslur í Nígeríu í gær.

Olíuverðið hækkaði um 70 sent á mörkuðum í Bandaríkjunum og fór í 75,65 dali á tunnu en hafði til skamms tíma staðið í 75,89 dölum daginn áður. Norður­sjávarolía hækkaði um dal og tveimur sentum betur á markaði í Lundúnum í Bretlandi og fór í 75,41 dal á tunnu.

Að sögn fjármálasérfræðinga hefur vaxandi spenna, sem að margra mati er að fara úr böndunum, umtalsverð áhrif á markaðinn.

Sprengingarnar í Nígeríu urðu við tvær olíuleiðslur hjá ítölsku fyrirtæki sem er með starfsemi í suðurhluta landsins. Mikið magn af olíu fór til spillis úr annarri leiðslunni en ekki liggur fyrir hver ber ábyrgð á verknaðinum. Árásir skæruliða á olíuvinnslustöðvar á vegum erlendra aðila þar í landi hafa þegar orðið til þess að olíuframleiðsla í Nígeríu hefur dregist saman um 20 prósent það sem af er ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×