Þrýst á hærri vexti 1. júlí 2006 06:00 Seðlabankastjóri Englands Mervyn King, seðlabankastjóri Englands, ásamt Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands.
Mervyn King, seðlabankastjóri Englands, sagði á fundi með breskum þingmönnum í Bretlandi á fimmtudag að hættan sem stafar af verðbólguhækkunum á heimsvísu hafi skapað óvissu í efnahagslífi margra landa. King sagði seðlabanka víða um heim undir þrýstingi að hækka stýrivexti en bætti við að Ben Bernanke, kollegi hans í Bandaríkjunum, væri í sérstaklega erfiðri stöðu þar sem verðbólga hefði aukist þar í landi þrátt fyrir minni eftirspurn á innanlandsmarkaði. Seðlabanki Bandaríkjanna hækkaði stýrivexti um 25 punkta í fyrradag og standa þeir nú í 5,25 prósentum. Þetta er 17. stýrivaxtahækkunin í Bandaríkjunum en Bernanke gaf í skyn að hækkanaferlið yrði senn á enda. Fjármálasérfræðingar spá sömuleiðis hækkun stýrivaxta í Japan um miðjan næsta mánuð en stýrivextir þar í landi hafa staðið í 0 prósentum síðastliðin fimm ár. Toshihiko Fukui, seðlabankastjóri Japans, segir hins vegar að bankinn muni ekki hækka stýrivexti fyrr en í fyrsta lagi í ágúst eða september. Fátt bendir til að Englandsbanki hækki stýrivexti sína á næstunni, sem hafa staðið í 4,5 prósentum í 10 mánuði.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira