Búlluveldið stækkar enn 29. júní 2006 08:00 Hamborgarakóngur Tommi á hamborgarabúllunni breiðir úr sér. Í júlí bætist grísasamloka á matseðilinn.
Hamborgarakóngurinn Tómas Tómasson hefur opnað enn eina hamborgarabúlluna. Fyrir rekur Tommi hamborgarastaði við Geirsgötu, á Egilsstöðum og í Hafnarfirði, sem allir eru undir heitinu Hamborgarabúlla Tómasar. Fjórða hamborgarabúllan og jafnframt sú nýjasta er til húsa við hliðina á Húsgagnahöllinni við Bíldshöfða. Staðurinn tekur um fimmtíu manns í sæti og er því stærsti hamborgarastaðurinn í hinni sístækkandi keðju Tomma. Eins og hinir staðirnir er hann samtíningur af hinu og þessu. Þannig eru húsgögn staðarins meðal annars úr Góða hirðinum. "Frægasti básinn af gamla Hard Rock, bás 301, er líka á staðnum sem er stórt og mikið átta manna borð sem var mjög vinsælt meðal lítilla vinahópa," segir Tommi og bætir við að það að nýta það sem til er gefi staðnum heimilislegt yfirbragð. Á staðnum er líka krakkahorn með flatskjá fyrir teiknimyndir og gestir staðarins þurfa ekki að láta sér leiðast á meðan beðið er eftir matnum því hægt er að dunda sér við það að teikna listaverk sem prýða munu loft staðarins. Akureyringurinn Óðinn Geirsson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri nýja staðarins, en hann er lærður bakari. Í júlí hyggur Tommi á breytingar á matseðli búllanna en þá bætist gamla góða grísasamlokan af Hardrock á seðilinn, en hún er samsett úr grísastrimlum í barbeque sósu sem settir eru í hamborgarabrauð ásamt hrásalati. Aðspurður um það hvort fleiri búllur séu væntanlegar svarar Tommi hlæjandi: "Það er bara heimsyfirráð eða dauði."
Menning Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Líður bókstaflega óstöðvandi í góðu fitti Tíska og hönnun Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Lífið Arnar Þór selur Arnarneshöllina Lífið Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Linda lætur sér Lindarbraut lynda Áttaði sig á stöðunni á fundi með Höllu Sjá meira