Innlent

Fischer ekki framseldur

Bobby Fischer verður ekki framseldur segir Davíð Oddsson utanríkisráðherra. Sendiherra Bandaríkjanna segir enn litið á Fischer sem flóttamann frá bandarísku réttarkerfi.   Þórir Oddsson vararíkislögreglustjóri segir að Interpol í Washington hafi sent embættinu erindi á Skírdag um að Bobby Fischer væri eftirlýstur fyrir að hafa rofið viðskiptabann. Jafnframt var beðið staðfestingar um veru Fischers hér á landi og hefur það þegar verið gert af hálfu embættisins en að öðru leyti var erindið sent til dómsmálaráðuneytisins. Í erindinu, sem barst á tölvupósti, var látið í það skína að hugsanlega verði farið fram á að Fischer verði framseldur til Bandaríkjanna. Fréttamenn sem biðu fregna af ríkisstjórnarfundi í morgun hittu á James Gadsden, sendiherra Bandaríkjanna, sem var á leið af fundi við starfsmann ráðuneytisins. Hann og Davíð Oddsson virðast sammála um vera ósammála um mál Fischers og að það komi ekki til með að spilla góðu vináttusambandi þjóðanna. Sendiherrann sagði litið svo á að Fischer sé á flótta undan bandarískri réttvísi og að aðgerðir íslenskra stjórnvalda valdi Bandaríkjamönnum heilabrotum. Sendiherrann sagði bandaríska dómsmálaráðuneytið hafa ýmis mál Fischer til skoðunar en segist ekki hafa heimild til að gefa upp hvers kyns mál það eru. Hann sagði íslensku ríkisstjórnina lengi hafa verið kunnugt um vonbrigði  með tilboðið um dvalarleyfið, og þá segi það sig eiginlega sjálft varðandi ríkisborgararéttinn. „Þessu hefur verið komið til skila eftir eðlilegum samskiptaleiðum ríkjanna,“ sagði Gadsden og bætti við að enn ríkti vinátta á milli þjóðanna. Davíð Oddsson segir álit bandarískra stjórnvalda á nýjum ríkisborgararétti Fischers engu breyta. Það sé ekki heimilt að framselja íslenska ríkisborgara. Þá segir hann ummæli Fischers um gyðinga vera óásættanleg en fyrir íslensk stjórnvöld sé þetta eingöngu mannúðarmál.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×