
Stríð um fjölmiðla í Bandaríkjunum
Brock starfaði sem blaðamaður hjá hægrisinnuðu blaði áður en hann sneri blaðinu við og gerðist hálfgerður uppljóstrari um starfsvenjur hjá áhrifamiklum fjölmiðlum í Bandaríkjunum. Bækur hans hafa vitaskuld vakið athygli og lof hjá þeim fjölmiðlum sem nú eiga undir vök að verjast sökum velgengni þeirra fjölmiðla sem Brock kallar "hávaðavél Repúblikanaflokksins".
Það hefur löngum verið viðkvæði hægrimanna í Bandaríkjunum að vinstrimenn ráði lögum og lofum á mikilvægustu fréttastofum landsins. Að mati Brocks sýna engar akademískar rannsóknir fram á að þetta sé svo í raun en hann telur það hafa þjónað hagsmunum repúblikana vel að hrópa stöðugt á torgum um þá meintu ósanngjörnu meðferð sem þeir hljóti í fjölmiðlum. Með stöðugum ásökunum á hendur fjölmiðlum hefur nefnilega smám saman tekist að festa það viðhorf í hugum stórs hluta kjósenda að helstu fréttastofurnar flytji fréttir út frá sjónarmiði vinstrimanna - eða það sem hefur jafnvel ennþá meiri hljómgrunn - út frá sjónarmiði menntaelítunnar á Austurströndinni.
Í þennan jarðveg hafa íhaldsmenn í Bandaríkjunum sáð fjöldanum öllum af nýjum hægrisinnuðum fjölmiðlum á síðustu áratugum með misjöfnum árangri. Vatnaskil urðu árið 1996 þegar ný stjórn tók við á Fox-sjónvarpsstöðvunum og Fox News var stofnað. Viðkvæði og vígorð Fox-stöðvarinnar eru að þar sé gætt hlutleysis (að fréttirnar séu "fair and balanced") og að áhorfandanum sé eftirlátið að draga ályktanir ("you decide"). Brock heldur því fram að Fox -sjónvarpsstöðin hafi með þessu móti nýtt sér að almenningi hafi um árabil verið innrætt að hinir stóru fjölmiðlarnir væru tortryggilegir. Niðurstaðan sé sú að Fox News geti leyft sér að vera eins hlutdræg og ósanngjörn og stjórnendur hennar lystir - almenningi finnist einfaldlega að þar sé komið mótvægi við vinstri slagsíðuna á öðrum fjölmiðlum.
Í útvarpi er skærasta stjarna hægrimanna hinn orðhvati og hnyttni Rush Limbaugh. Hann hefur í hartnær tuttugu ár verið langvinsælasti útvarpsmaður Bandaríkjanna og daglega hlusta milljónir manna á málflutning hans. Sú heimsmynd sem Limbaugh túlkar til áheyrenda sinna er ákaflega einföld. Hún byggist á "við gegn þeim" hugmyndafræði. Demókrötum er kinnroðalaust líkt við kommúnista, hryðjuverkamenn eða jafnvel Satan sjálfan. Limbaugh er óheyrilega orðheppinn og fyndinn útvarpsmaður og mikilvægi hans fyrir Repúblikanaflokkinn sést á því að menn á borð við Newt Gingrich hafa beinlínis þakkað honum kosningasigur repúblikana árið 1996 og bæði George W. Bush og Dick Cheney hafa verið gestir hjá honum.
Á netinu eru áhrif Matt Drudge viðlíka og Limbaugh hefur í útvarpi. Á vefsíðunni Drudgereport.com er að finna tengingar í fréttir sem gjarnan eru valdar til þess að styðja málstað repúblikana eða til að niðurlægja andstæðinga flokksins. Um sjö milljónir gesta fara inn á vefsíðu Drudge daglega og efni sem þar birtist er oftlega gripið af öðrum fjölmiðlum. Birting á Drudgereport getur því breytt léttvægri frétt eða kjaftasögu í helstu frétt dagsins í Bandaríkjunum og víðar.
Heildaráhrifin af þessu veldi íhaldsmanna í fjölmiðlum eru þau að með sífelldum endurtekningum tekst að búa til stemmningu hjá fjölmiðlum um tiltekin mál eða tiltekna frasa. Þannig rekur Brock nokkur dæmi um það hvernig Al Gore fékk á sig þann stimpil að vera lygari vegna þess að nokkrir fjölmiðlar höfðu vísvitandi mistúlkað ýmis ummæli hans. Með því að endurtaka hinn skrumskælda sannleika nógu oft fóru aðrir fjölmiðlar að fjalla um "trúverðugleikavandamál" Gore - sem síðan hafði óhjákvæmilega áhrif á það hvernig kjósendur völdu í kosningunum 2000.
Annað nýlegra dæmi er umfjöllum fjölmiðla um John Kerry í aðdraganda síðustu forsetakosninga. Um mitt sumar fóru að berast fréttir af því að einhverjir fyrrum félagar hans úr Víetnamstríðinu héldu því fram að hetjudáðir hans í stríðinu væru upplognar, sviðsettar eða ýktar. Aldrei fannst nein sönnun á þessum ásökunum en þegar áhrifamiklir fjölmiðlar tóku málið til umfjöllunar eins og um eðlilegt umfjöllunarefni væri að ræða - en ekki áróður pólitískra andstæðinga - hafði það skemmandi áhrif á kosningabaráttu Kerrys.
Niðurstaða Brocks er sú að vönduð og hlutlæg fjölmiðlaumfjöllun eigi undir högg að sækja í Bandaríkjunum. Með því að ráðast nógu harkalega á vandvirka fjölmiðla hafi hægrisinnuðum fjölmiðlamálpípum tekist að koma sér í þá stöðu að þeim leyfist að gagnrýna aðra fyrir hlutdrægni - á sama tíma og engin tilraun er gerð til hlutleysis eða sanngirni af þeirra eigin hálfu.
Þórlindur Kjartansson -thkjart@frettabladid.is
Skoðun

Sársauki annarra og samúðarþreyta
Guðrún Jónsdóttir skrifar

Í minningu sonar – og allra þeirra sem aldrei komu heim
Kristín Dýrfjörð,Friðrik Þór Guðmundsson skrifar

Alþjóðalög eða lögleysa?
Urður Hákonardóttir skrifar

Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna
Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar

GPT‑5 kemur í ágúst – áskoranir og tækifæri fyrir Ísland
Sigvaldi Einarsson skrifar

Við tölum um vöxt — en gleymum því sem vex
Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar

Verri framkoma en hjá Trump
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Landið talar
Davíð Arnar Oddgeirsson skrifar

Ætla þau að halda áfram að grafa sína eigin gröf?
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Ísrael – brostnir draumar og lygar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Ein af hverjum fjórum
Silja Höllu Egilsdóttir skrifar

Vertu drusla!
Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Þegar hið smáa verður risastórt
Sigurjón Þórðarson skrifar

Þú ert búin að eyðileggja líf mitt!!!
Sandra Ósk Jóhannsdóttir skrifar

Tekur sér stöðu með Evrópusambandinu
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Feluleikur ríkisstjórnarinnar?
Lárus Guðmundsson skrifar

Ég heiti Elísa og ég er Drusla
Elísa Rún Svansdóttir skrifar

Grindavík má enn bíða
Gísli Stefánsson skrifar

Aðventukerti og aðgangshindranir
Kristín María Birgisdóttir skrifar

Lífið í tjaldi á Gaza
Viðar Hreinsson,Israa Saed skrifar

Gaza og sjálfbærni mennskunnar
Elva Rakel Jónsdóttir skrifar

Börnin og hungursneyðin í Gaza
Sverrir Ólafsson skrifar

Kynbundið ofbeldi
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar

Aðdragandi aðildar þarf umboð
Erna Bjarnadóttir skrifar

Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann
Kári Stefánsson skrifar

Þétting byggðar er ekki vandamálið
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Þrengt að þjóðarleikvanginum
Þorvaldur Örlygsson skrifar

Ert þú drusla?
Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir skrifar

Sameiginleg yfirlýsing 28 ríkja um málefni Palestínu, hvers virði er hún?
Einar Ólafsson skrifar

Alltof mörg sveitarfélög á Íslandi!
Gunnar Alexander Ólafsson skrifar