Jól

Hefðin er engin hefð

"Við förum stundum út á land til tengdafjölskyldunnar þar sem eru engir flugeldar því það myndi hræða hrossin," segir Dofri Hermannsson leikari og nemi. 

"Annars erum við svona til skiptis hérna í bænum og má í raun segja að hefðin sé að það er engin hefð á áramótunum hjá okkur," segir Dorfi, en í ár fer hann með fjölskylduna til vinafólks í Gautaborg þar sem sænskt jólahlaðborð verður á borðum á gamlárskvöld. 

"Við komum með eitthvert góðgæti frá Íslandi, eitthvað svona dæmigert sem Íslendingar í útlöndum vilja fá," segir Dofri. Hann hlakkar mikið til ferðarinnar en hefur pínulitlar áhyggjur af fjölskylduhundinum sem verður skilinn eftir á Íslandi. 

"Það á eftir að ákveða hvar hann verður, en ég hugsa að flugeldarnir eigi ekki eftir að fara vel í hann," segir Dofri. 

Hann segist ekkert vera sérstaklega óður í flugelda en á hverju ári sé hann þakklátur þeim sem kaupa flugeldana. "Ég stórgræði á hinum og er alltaf jafn glaður að sjá hvað margir eru til í að borga fyrir þetta," segir Dofri hlæjandi. 

"Öll áramót eru eftirminnileg eftir að maður hætti að fara niður í bæ að djamma," segir hann aðspurður hvort einhver áramótin standi upp úr í minningunni. 

Hvað áramótaheit varðar segist hann yfirleitt ekki strengja nein formleg heit. "Ég lofa stundum svona inni í mér að ég ætli að verða betri maður á næsta ári en passa mig að segja það ekki upphátt," segir Dofri sem er viss um að næsta ár verði gott ár.








×