Jól

Prófaði að grilla hamborgarhrygg

Sandra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar
Alfreð Fannar Björnsson er snillingur þegar kemur að því að grilla.
Alfreð Fannar Björnsson er snillingur þegar kemur að því að grilla.
Alfreð Fannar Björnsson hefur mikla ástríðu fyrir að grilla og heldur úti síðu á Instagram undir nafninu BBQkongurinn en fylgjendur hans þar eru hátt í 4.000 talsins. Yfirleitt stendur hann ekki við grillið um jólin en hver veit nema breyting verði þar á í ár. 

Þeir sem fylgjast með Alfreð vita að hann er snillingur þegar kemur að því að grilla alls kyns góðgæti. Hann grillar nánast allt frá pitsum upp í pottrétti, steikur og eftirrétti. Hann segist aldrei hafa grillað jólamatinn en hann prófaði þó einu sinni að grilla hamborgarhrygg. Í forrétt var hann með grafið lambafille sem hann gróf sjálfur. 

„Ég gróf lambafilleið sex dögum áður en ég matreiddi það og kaldreykti það svo í 10 tíma með beyki­spónum. Ég bar það svo fram með klettasalati, sultuðum rauðlauk og balsamic-gljáa,“ segir Alfreð.

„Við hamborgarhrygginn gerði ég ekkert nema skera tígla í hann. Svo var hann grillaður á snúningsteini við 180 gráður og ég sprautaði malti á hann á 10 mínútna fresti. Þegar 15 mínútur voru eftir kynti ég grillið í botn og penslaði hrygginn með gljáanum. Lyktin á pallinum var unaðsleg, alveg eins og það væru komin jól.“

Forrétturinn var grafið lambafille á salatbeð.
Grafið lambafille

700 g lambafille

Gróft salt

Kryddblanda:

6 msk. salt

2 msk. sinnepsfræ

2 msk. fennelfræ

2 msk. kóríanderfræ

3 tsk. rósapipar

2 tsk. svartur pipar

2 msk. oregano

2 tsk. rósmarín

2 tsk. timían

1 tsk. sykur

Klettasalat

Sultaður rauðlaukur

Balsamic-gljái

Lambafilletið saltað vel og látið liggja í salti í 3 tíma, svo er saltið skolað af. Kryddinu er blandað saman og kryddblöndunni nuddað vel á kjötið og það svo vakúm­pakkað og geymt þannig í 4 daga. Að því loknu er kjötið reykt í reyk­ofni í 10 tíma.

Áður en kjötið er borið fram er það skorið í þunnar sneiðar og lagt ofan á beð af klettasalati og sultuðum rauðlauk. Að lokum er balsamic-gljáa dreift yfir.

Síðustu mínúturnar var hitinn hækkaður í botn til að fá þessa fallegu grilláferð.
Grillaður hamborgarhryggur

Einn hamborgarhryggur

Malt

Gljái:

Púðursykur

Tómatsósa

Sætt sinnep

Púðursykri, tómatsósu og sætu sinnepi blandað saman til að búa til gljáa. Tíglar skornir í hrygginn og hann settur á snúningsstein. Grillið er stillt á miðlungshita og grillað þar til kjarnhitinn er 58 gráður. Á 15 mínútna fresti er malti sprautað yfir hrygginn. Þegar kjarnhitinn er orðinn 58 gráður er hryggurinn penslaður með gljáanum og grillið stillt á hæsta hita. Þegar kjarnhitinn hefur náð 62 gráðum er kjötið tekið af grillinu og hryggurinn látinn standa smástund.



×