Viðskipti innlent

Neyslan vex

Smásöluvelta dagvöru jókst um 4,9 prósent frá september í fyrra til septembers í ár. Þetta kemur fram í fréttabréfi Samtaka verslunar og þjónustu. Sala á áfengi jókst meira og er átta prósentum meiri en í fyrra en smásala á lyfjum jókst um 1,5 prósent. Það eru Samtök verslunar og þjónustu og IMG sem gefa út smávöruvísitöluna. Að mati Sigurðar Jónssonar, framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu, ber þetta vitni um gott efnahagsástand og aukinn kaupmátt. Hann segir að ekki sé ennþá hægt að sjá beinar vísbendingar um hvort verslunarmenn geri ráð fyrir að jólasalan verði góð í ár. "Ég geri ráð fyrir því að menn séu almennt að horfa til þess að jólin verði góð því kaupmáttur hefur aukist mikið og menn verða varir við það í flestum greinum verslunarinnar," segir Sigurður. Hann segir að þegar nýtt greiðslukortatímabil hefst um miðjan nóvember sé líklegt að jólatraffíkin fari í gang í verslunum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×