Sportveiðar á sel við Ísland 11. júní 2004 00:01
Auðugir bandarískir skotveiðimenn hafa áhuga á að koma hingað til lands og fá að stunda sportveiðar á sel gegn góðum greiðslum, en hingaðtil hefur hið opinbera greitt mönnum fyrir að skjóta sel. Vitað er um tvo eða þrjá Bandaríkjamen sem komið hafa hingað í þessum tilgangi og sækjast þeir helst eftir stórum útsels-brimlum. Síðan láta þeir stoppa upp hausana og jafnvel súta skinnin. Ekki er vitað hvort einhver samvinna sé að nást um að rækta upp þessa nýju möguleika i ferðamennsku, enda hefur hver bóndi á sjávarjörðum einkarétt á selveiðum út af jörð sinni, en utan þeirrar landhelgi er öllum heimilt að skjóta seli. Hér við land eru um 150 útselskópar skotnir árlega og greiðir Hringormanefnd fjögur þúsund krónur fyrir stykkið. Auk þess eru 200 til 300 eins árs og eldri útselir skotnir á ári. Fyrir þá eru greiddar 50 krónur fyrir kílóið, en meðal dýr vegur um 200 kíló. Auk þess eru greiddar þrjú þúsund krónur fyrir hvern neðrikjálka , sem veiðimenn skila inn til aldursgreiningar. Árlegur kostnaður hleypur því á býsna mörgum milljónum króna og eftir nokkru að slægjast að snúa því við og hafa af þessu tekjur í staðinn. Eftir því sem næst verður komist hefur þessi möguleiki ekki verið kynntur erlendis þótt sitthvað sé að gerast á þessu sviði eins og til dæmis í Noregi. Norska stórþingið hefur nú lagt blessun sína yfir þá hugmynd að selja ríkum útlendingum skotveiðileyfi á sel og gera selveiðarnar þannig að sportveiði, líkt og hreindýraveiðina hér á landi. Að sögn Aftenposten hafa útlendingar, einkum Þjóðverjar, sýnt mikinn áhuga á þessu, en leyfilegt er að skjóta tvö þúsund seli við Noregsstrendur á ári. Skyndileg hugarfarsbreyting hefur orðið í Noregi því þegar Svein Ludvigsen sjávarútvegsráðherra hreyfði við þessari hugmynd fyrir aðeins þremur árum, hlaut hann bágt fyrir og þótti hugmyndin fáránleg.
Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Góðir straumar á Straumi Menning Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Fleiri fréttir Tæplega þriggja áratuga langt ferðalag á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“