Málskotsréttur forseta úr sögunni 20. júlí 2004 00:01
Til þess að afnema málskotsrétt forseta Íslands þarf stjórnarskrárbreytingu. Stjórnarskrárbreyting verður ekki gerð nema á tveim þingum og er því ferli sem tekur langan tíma. Samkvæmt heimildum fjölmiðla verður,á Alþingi, í dag, lögð fram yfirlýsing eða þingsályktunartillaga um endurskoðun á 26. grein stjórnarskrárinnar, sem varðar synjunarvald forseta Íslands. Stefnt verður að því að festa í stjórnarskrána þá framkvæmdahefð sem verið hefur frá stofnun lýðveldisins, að forseti framkvæmi einungis vald ráðherra. Málskotsréttur forseta væri þar með úr sögunni. Sjálfsagt verður skipuð nefnd til þess að fjalla um málið, og reynt að ná um það sem víðtækastri samstöðu. En niðurfelling á málskotsréttinum kallar á breytingar á stjórnarskránni. Framkvæmdin á því er á þann veg að frumvarp um stjórnarskrárbreytinguna er lagt fram á Alþingi og um það fjallað eins og hvert annað frumvarp, með nefndastörfum, þrem umræðum og þar frameftir götunum. Ef frumvarpið er svo samþykkt, skal þegar rjúfa þing og boða til nýrra kosninga. Á þessu nýja þingi skal svo leggja frumvarpið fram aftur, algerlega óbreytt. Ef það verður samþykkt aftur, verður það að lögum.
Fjölmiðlalög Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Innlent Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Innlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Parísarhjól sprettur upp við höfnina Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Innlent Fleiri fréttir „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Sjá meira