Lífið

Dúxaði með íslenskuverðlaunum en talar taílensku heima
Nýstúdentinn Thanawin Yodsurang dúxaði í dag Menntaskólann við Sund með einkunnina 9,7. Hann segir vinnusemi og metnað vera lykilatriði til góðra einkunna.

Okkar eigið Ísland: Á brjóstunum í Berufirði
Ævintýramaðurinn Garpur I Elísabetarson heldur áfram ferðalögum sínum í þáttunum Okkar eigið Ísland. Í þessum fimmta þætti fer hann á Vestfirði og skellir sér á Vaðalfjöll sem liggja á Berufirði og Þorskafirði.

Bein útsending: Bylgjulestin rúllar af stað
Bylgjulestin er lögð af stað og mun ferðast vítt og breytt um landið, hitta hlustendur og taka þátt í fjörinu á hverjum laugardegi í beinni í allt sumar. Fyrst kemur lestin við í Grindavík þar sem þau Svali, Vala Eiríks og Ómar Úlfur verða í beinni útsendingu frá sjómanna- og fjölskylduhátíðinni Sjóaranum síkáta í Grindavík.

Fréttakviss vikunnar: Tækifæri til að pakka vinunum saman
Það eru farnar að sjást tveggja stafa hitatölur víðast hvar á landinu. Jú, sumarið er komið og fréttakvissið sömuleiðis.

Sjötti þáttur af Kökukasti: Eyðilögðu köku andstæðingsins
Skreytingaræðið heldur áfram. Í nýjasta undanúrslitaþættinum af Kökukasti verðum við vitni að mestu eyðileggingu í kökusögunni að mati keppenda.

„Ég var eina barnið í dalnum sem átti tannbursta“
Sigurður Einarsson er elsti starfandi tannsmiður landsins en hann hefur unnið sem slíkur í rúm sextíu ár og hlaut nýverið heiðursverðlaun á áttatíu ára afmæli sínu.

Fékk sér flúr í beinni eftir að hafa fengið leyfi frá foreldrum
Árleg húðflúrráðstefna fer fram í Reykjavík um helgina í sextánda sinn. Tugir erlendra og innlendra húðflúrmeistara eru saman komnir í Gamla bíó þar sem þátttakendum gefst tækifæri til að fræðast um húðflúrlistina og láta skreyta sig.

Benni Brynleifs og Eva gengin út
Benedikt Brynleifsson, einn besti trommari landsins, og Eva Brink virðast gengin út.

Forsetahjónin kysstu dauðan fisk á Nýfundnalandi
Forsetahjónin, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid, luku fjögurra daga ríkisheimsókn til Kanada í gær. Meðal verkefna ferðarinnar var að kyssa dauðan fisk sem er hefð til að vígja inn Nýfundnalendinga.

Keyptu glæsihýsi í sendiráðahverfinu við Landakot
Grímur Garðarsson eigandi Bestseller á Íslandi og Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir fjárfestir hafa fest kaup á rúmlega fimm hundruð fermetra einbýlishúsi við Túngötu í Reykjavík. Húsið er staðsett við hlið franska og rússneska sendiráðsins í sannkölluðu sendiráðahverfi við Landakotstún.

Frétti fyrst af bónorði ástmannsins hjá systur sinni
Kolbrún Ýr Oddgeirsdóttir sagði já við einu óvæntasta og skrýtnasta bónorði ársins. Eiginmaðurinn verðandi bar um bónina í fréttatilkynningu til fjölmiðla og Kolbrún fékk því spurninguna stóru í fjölmiðlum, í gegnum systur sína.

Frumsýning á myndbandi við Þjóðhátíðarlag Emmsjé Gauta
„Stundum eru bara hlutir sem virka og þá á maður ekki að vera að fikta of mikið í þeim en gera þetta meira að sínum eigin,“ segir tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti, um hugmyndina á bakvið myndbandið við Þjóðhátíðarlagið 2023, Þúsund hjörtu.

„Ég þráði svo mikið að vera samþykkt“
„Ég þráði að vera partur af hópnum og vera með. Það kom út þannig að ég varð háværari og æstari. Ég reyndi að stækka mig því það var alltaf verið að reyna að minnka mig,“ segir söngkonan Elísabet Ormslev.

Svona verður Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur um land allt
Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á sunnudaginn og verða af því tilefni mikil dagskrá víða um land og sums staðar alla helgina.

„Öll sveitin horfði á tilhugalíf okkar verða til“
Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari og Heiða Aðalsteinsdóttir landslagsarkitekt kynntust við heldur óvenjulegar aðstæður. Gummi eins og hann er alltaf kallaður var að koma úr erfiðum sambandsslitum og vildi kúpla sig alfarið út af stefnumótamarkaðinum.

Júníspá Siggu Kling er mætt
Stjörnuspá Siggu Kling fyrir júní er lent á Vísi. Sigga Kling birtir stjörnuspá fyrir öll stjörnumerkin fyrsta föstudag hvers mánaðar.

Júníspá Siggu Kling: Allt sem hrúturinn snertir verður að gulli
Elsku Hrúturinn minn, það getur oft verið erfitt að vera þú. Þú vilt að allir séu í jafnvægi og gerir þitt besta að svo sé. En það kemur að sjálfsögðu fyrir að það springur eitthvað. Þá bitnar það yfirleitt á þeim sem eru þér nánastir og gerir ekkert annað fyrir þig en að þú fáir móral eða þér líði illa yfir því.

Júníspá Siggu Kling: Himintunglin hagstæð hjá Steingeitinni
Elsku Steingeitin mín, það er í eðli þínu að halda alltaf áfram sama hvað og það er það eina sem skiptir máli til að ná á áfangastað. Þó að þú eigir það til eitt augnablik að missa trúna á sjálfa þig og lífið, þá er það bara augnablik. Það er svo margt sem þú þarft að dröslast áfram með en þú þarft að vita í öllu þessu að þú ert ekki Guð.

Júníspá Siggu Kling: Það er verndarhendi yfir nautinu
Elsku Nautið mitt, það hefur verið sterkur baráttuandi í kringum þig og þú hefur sigrað margt. Vertu þakklátt fyrir það sem þú hefur gert á undanförnum mánuðum því það er að byggjast upp svo sterkur kraftur sem þú nýttir þér til að hjálpa öðrum og svo líka sjálfu þér. Eitt sterkasta hlutverk þitt í lífinu er að þjóna mannkyninu. Ef þú lærir að vera snillingur í þjónustu þá stoppar þig ekki nokkur skapaður hlutur. Aðalsetningin þín á að vera: Já ekkert mál, og þá kemur lausnin í kjölfarið.

Júníspá Siggu Kling: Nýjar dyr gætu opnast hjá fiskunum
Elsku Fiskurinn minn, þú ert svo kraftmikill og fjölbreyttur. Ég var að skoða þekkta Íslendinga og í hvaða merkjum þeir eru helst, og Fiskurinn stendur svo sannarlega upp úr í sambandi við það. Þú hefur gnægð af hæfileikum en þú þarft að ákveða hvað þér finnist skemmtilegast að gera og hvar sé skemmtilegast að vera. Þú ert stöðugt að betrumbæta þig og verður of svekktur ef þú ert ekki hundrað prósent, en það er svo fullkomlega leiðinlegt að vera hundrað prósent.

Júníspá Siggu Kling: Brennandi þrá hjá Vatnsberanum
Elsku Vatnsberinn minn, þú yndislega, dásamlega jarðvera. Það er í eðli þínu að setja góða hluti allt í kringum þig og að skilja alls ekki að aðrir skilji þig ekki. Það er sá tími núna sem þú þarft að vera ákveðinn við sjálfan þig og að byggja þig upp alveg sama hvað.

Júníspá Siggu Kling: Bogmaðurinn þarf að vera staðfastur og ákveðinn
Elsku Bogmaðurinn minn, stundum kemur það fyrir að þú tekur vitlausar ákvarðanir eða þér finnst þú hafir sterka skoðun á einhverju sem þú þarft að draga tilbaka og mynda þér nýja hugsun og jafnvel aðra skoðun á, en það má alltaf breyta ákvörðun.

Júníspá Siggu Kling: Mikil orka hjá Sporðdrekanum
Elsku Sporðdrekinn minn, ekki vildi ég vera sá sem myndi særa þig því þú gleymir engu. Þú getur svæft erfiðar tilfinningar en þær koma til þín aftur og aftur. Orkan þín er eins og Bermúda þríhyrningurinn, stundum hverfurðu á ólýsanlegan hátt út úr lífi manns og svo kemurðu aftur inn eins og ekkert hafi í skorist. En ávallt og alltaf mun þér verða fyrirgefið því þú hefur þannig áhrif á mann.

Júníspá Siggu Kling: Dagamunur á Voginni í ástinni
Elsku Vogin mín, það er svo sannarlega hægt að segja að þú finnir lausnir á öllum þeim verkefnum sem þú vilt sjá útkomu á. En líka er það þannig að ef það gerist ekki hratt, unnið vel að markmiði þínu og fólkið í kringum þig sjái ekki að það þurfi að drífa sig, þá er partýið ekki eins skemmtilegt.

Júníspá Siggu Kling - Meyjan lætur ekki glepjast af yfirborðskenndri vitleysu
Elsku Meyjan mín, eins og þú ert nú drífandi og ákveðin með flesta hluti, skapandi og lætur ekki glepjast af yfirborðskenndri vitleysu og hefur að öllu leyti sterk markmið í huga þínum, þá áttu það til að fyllast reiði út í þetta eða hitt, manneskjur og málefni. Þessi tilfinning og orka mun mæta þér í ýmis konar birtingarmyndum. Þess vegna er það aldurinn, eða þegar árin færast yfir þig, þá kemur þessi þroski að þurfa ekki alltaf að hafa rétt fyrir þér, því ef þú hefur ekkert gott að segja þá skaltu bara þegja.

Júníspá Siggu Kling: Ljónið fær meira sjálfstæði
Elsku Ljónið mitt, þú ert akkúrat núna í byrjun júní að fara inn í níutíu daga tímabil sem gefur þér möguleika á að breyta lífi þínu á miklu betri veg en þú þorir að vona eða hugsa. Ef þú finnur vanlíðan í líkamanum, alveg sama hvað það er, eru það bein skilaboð um að þú þurfir að breyta ýmsu til þess að leiðrétta það. Þú hefur aflið og þú hefur kraftinn til þess að gera kraftaverk.

Júníspá Siggu Kling: Ofurkraftur í þolinmæði krabbans
Elsku Krabbinn minn, það er mikil endurnýjun á sjálfum þér, á gleðinni og almennt þeim krafti sem þú vilt hafa. Þú sættir þig líka meira við það sem þú getur ekki breytt og það er það mikilvægasta sem maður þarf að gera til þess að lifa lífinu. Þú sinnir líka því sem þú þarft að gera alveg upp á hundrað, þó að þú ímyndir þér að þú gætir gert miklu miklu meira.

Júníspá Siggu Kling: Ekki dauð stund í lífi tvíburans
Elsku Tvíburinn minn, það er vart hægt að segja að það sé dauður punktur í lífi þínu, þó allt sé ekki alltaf gaman, því þá væri það ekki skemmtilegt. Þú ert staddur í miðri hasarmynd og sveiflurnar í tilfinningum eru eins og hasardljósin. Þú leitar eftir spennu en þegar hún er til staðar þá leitarðu eftir friði og jafnvægi. Þess vegna finnst þér að þú sért stöðugt að leita að sjálfum þér eða einhverju sem sem getur breytt lífinu þínu.

Ásdís Rán á OnlyFans
Fyrirsætan Ásdís Rán Gunnarsdóttir, gjarnan kölluð Ísdrottningin, hefur haslað sér völl á efnisveitunni OnlyFans.

Gómsætur fiskréttur að hætti Katrínar Tönju
Það leikur enginn vafi á næringargildi íslenskra sjávarafurða og að allt það sem okkur var kennt um ágæti þeirra á grunnskólaárunum stenst tímans tönn. En er fiskur vinsæll á meðal ungs fólks og hvernig má gera hann enn vinsælli?