
Lífið

Dóttir Hildar og Jóns komin með nafn
Yngsta dóttir Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Jóns Skaftason, stjórnarformanns Sýnar, er komin með nafn. Stúlkan heitir Hólmfríður Áslaug.

Langvían Moli í Vestmannaeyjum heldur að hann sé lundi
Starfsfólk Sea Life Trust safnsins í Vestmannaeyjum eru í vandræðum með langvíu á safninu, sem heldur að hún sé lundi. Ástæðan er sú að starfsfólkið hefur farið með hana átta sinnum út á sjó til að freista þess að sleppa henni en hún kemur alltaf aftur og býður við dyr safnsins þegar starfsfólk mætir til vinnu á morgnana og heimtar að koma inn.

Linda Pé fann ástina á Spáni
Fegurðardrottningin og lífstílsþjálfinn Linda Pétursdóttir hefur fundið ástina í faðmi spænska folans, Jaime. Parið kynntist á Spáni.

Kevin Hart í hjólastól og segist heimskastur í heimi
Kevin Hart segist vera illa farinn eftir að hafa slasað sig í spretthlaupi með fyrrverandi NFL leikmanninum Stevan Ridley. Hann kveðst vera heimskasti maður í heimi en hann notar hjólastól tímabundið vegna meiðslanna.

Skærasta stjarna landsins á lausu
Söngkonan Bríet Ísis Elfar og Rubin Pollock, gítarleikari Kaleo hafa slitið samvistum. Parið ruglaði fyrst saman reytum sumarið 2020 og hafa verið áberandi á listasviðinu síðan.

Guðrún og Jón eiga einstakan tíu fermetra sumarbústað
Það þarf oft ekki marga fermetra til að töfra fram skemmtilegan sumarbústað.

Arna Ýr og Vignir vænta þriðja barnsins: „Smá brúðkaupsferðarglaðningur“
Arna Ýr Jónsdóttir fegurðardrottning og hjúkrunarfræðinemi og Vignir Þór Bollason kírópraktor eiga von á þriðja barni sínu en parið gifti sig fyrr í sumar. Fyrir eiga þau tvö börn.

„Þetta lag fjallar um kynlíf“
Tónlistarfólkið Bríet Ísis Elfar og Ásgeir Trausti Einarsson sameina krafta sína á ný en í dag kemur út lagið þeirra Venus. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem listamennirnir leiða saman hesta sína því í fyrra gaf Bríet út ábreiðu á lagi Ásgeirs, Dýrð í dauðaþögn.

Andrés Pírati flytur í næstu götu
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata og Rúna Vigdís Guðmarsdóttir hafa sett íbúð sína við Rauðalæk 14 í Laugarneshverfi í Reykjavík til sölu. Ásett verð fyrir eignina eru 87,9 milljónir.

Ferðast með börnin um Evrópu í húsbíl í leit að nýju heimili
Sunna Rós Baxter, tveggja barna móðir, hefur keypt sér húsbíl og ætlar að ferðast um Evrópu ásamt krökkunum í leit að góðum stað til að búa á.

„Við erum bara venjulegt par“
Tónlistarkonan Svala Björgvinsdóttir kynntist kærastanum, Alexander Egholm Alexandersyni, fyrir rúmu ári síðan. Fyrsti kossinn átti sér stað í samkvæmi í Garðabæ og segir Svala þau hafa verið óaðskiljanleg síðan.

Valdi að verða sextug í stað þess að flytja til Eþíópíu
Yrsa Sigurðardóttir, glæpasagnadrottning og margfaldur metsöluhöfundur, fagnar sextugsafmæli í dag. Hún segir ekkert planað í kvöld, annað en að skrifa næstu bók. Hún ætlar að halda upp á stórafmælið með pompi og prakt í febrúar að jólabókaflóði loknu og segist ekki geta beðið eftir að sjá Kulda, samnefnda mynd sem byggir á bók hennar og kemur í kvikmyndahús í næstu viku.

Eurovision-sigurvegarinn Toto Cutugno látinn
Salvatore „Toto“ Cutugno, sem vann Eurovision söngvakeppnina árið 1990, er látinn áttræður að aldri. Hann söng lagið „Insieme: 1992“ sem fjallar um sameinaða Evrópu.

Tekíla og blöðrudýr á árshátíðardegi LXS
Áhrifavaldarnir og raunveruleikaskvísurnar í LXS hópnum gerðu sér glaðan dag í vikunni með árshátíðardegi þar sem áberandi klæðnaður, golf og vellystingar einkenndu herlegheitin.

Hópurinn byrjaði á álagsprófi
Fræðslu- og skemmtiþættirnir Gerum betur með Gurrý hófu göngu sína á Stöð 2 á mánudagskvöldið en í þeim er fjallað er um heilsu frá ýmsum sjónarhornum.

„Lífið mitt er kynlíf“
Kynfræðingurinn Áslaug Kristjánsdóttir var að gefa út sína fyrstu bók, Lífið er kynlíf. Áslaug sem hefur í áraraðir aðstoðað fólk í langtímasamböndum að bæta kynlífið, segir að ef kynlífið detti út, sé ólíklegt að sambandið lifi. Rætt var við hana Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

Ætlaði ekki að koma nálægt karlmönnum í tvö ár
„Ég var oft búin að kvíða fyrir því að hitta hann. Þetta var miklu verra en ég hélt,“ segir tónlistarkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir þegar hún mætti æskuástinni, Ólafi Friðriki Ólafssyni viðskiptafræðingi og eiganda Pizzunnar.

Borko og Birna selja Kleppsveginn
Tónlistarmaðurinn Björn Kristjánsson, betur þekktur sem Borko, og Birna Hjaltadóttir, kona hans, hafa sett íbúð sína og á Kleppsveginum í Reykjavík á sölu.

Tónlistarveisla í boði Félags tónskálda og textahöfunda
Félag tónskálda og textahöfunda fagnaði fjörutíu ár afmæli sínum um helgina. Af því tilefni komu bransamenn og -konur saman og glöddust í Gamla bíói. Ljósmyndari Vísis mætti að sjálfsögðu á staðinn og myndaði stemninguna.

„Margir halda að þetta sé Eyes guys út af augunum í Rúrik“
„Ég er fyrrverandi knattspyrnumaður og mig langaði að upplifa liðsheild, maður þurfti kannski faðm til að leita í,“ segir tónlistarmaðurinn Jón Jónsson og guðfaðir strákabandsins IceGuys, eins og hann orðar það.

Gamli bærinn á Blönduósi hefur tekið lygilegum breytingum
Þeir sem fara um og skoða sig í gamla bænum á Blönduósi þekkja varla gamla bæinn lengur því það er búið að gera upp og endurbyggja svo mikið af húsum á staðnum. Kirkjunni hefur til dæmis verið breytt í glæsilega hótesvítu.

FM Belfast tryllti lýðinn á svölum Halla og Möggu
Haraldur Þorleifsson og Margrét Rut Eddudóttir héldu Menningarnæturboð síðastliðið laugardagskvöld og fögnuðu um leið brúðkaupsafmæli sínu. Hjónin eru búsett í glæsilegri þakíbúð í miðborginni þar sem gestir fengu stórbrotið útsýni þegar flugeldasýningin fór í gang.

Eigandi Kjötkompaní selur Hafnarfjarðarhöllina
Matreiðslumeistarinn og eigandi Kjötkompanís Jón Örn Stefánsson og Hildur Sigrún Guðmundsdóttir hafa sett glæsilegt parhús sitt í Ásunum í Hafnarfirði til sölu. Ásett verð er 189,9 milljónir.

Draumafríið á Íslandi breyttist í martröð
Jacqueline Bussie guðfræðingur stendur fyrir áhugaverðum fyrirlestri í Áslandskirkju í kvöld, þriðjudaginn 22. ágúst. Þar fjallar hún um sálgæslu en hún varð fyrir þeirri hræðilegu reynslu að missa eiginmann sinn í göngu um Sólheimajökul.

Leggja til sameiningu Reykjavíkur og Malmö
Heimdellingar leggja til að Reykjavík verði færð undir Malmö í sameinuðu sveitarfélagi Malmövíkur. Þannig megi bæta fjárhag borgarinnar.

„Við erum ekkert stödd á voðalega góðum stað“
Guðríður Torfadóttir, eða Gurrý, er á leiðinni í loftið með þættina Gerum betur á Stöð 2 þar sem venjulegu fólki er kennt hvernig á að komast í form á heilbrigðan hátt.

Hlaupaparið á von á tvíburum
Fyrrverandi afrekshlauparinn Kári Steinn Karlsson og eiginkona hans Aldís Arnardóttir, yfirmaður verslunarsviðs 66° Norðurs, eiga von á eineggja tvíburum í byrjun næsta árs.

Annað barn Rihönnu og A$AP komið í heiminn
Annað barn söngkounnar Rihönnu og rapparans A$AP Rocky er komið í heiminn samkvæmt heimildum slúðurblaða vestanhafs.

Glæsilegt götupartý Hildar Yeoman
Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman fagnaði Menningarnótt eins og svo margir síðastliðna helgi en eins og oft áður hélt hún glæsilegt götupartý fyrir utan verslun sína á Laugarveginum. Dansarar klæddust nýjustu línunni og dilluðu sér við iðandi tóna frá Rósu Birgittu sem kallar sig DJ De la Rosa.

Myndband: Ketti bjargað af þaki í brunanum
Stór bruni varð í iðnaðarhúsnæði við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði í gær. Slökkvistarf stóð yfir í tólf klukkustundir. Öllum íbúum hússins tókst að yfirgefa það í tæka tíð auk eins kattar, með hjálp frá slökkviliðsmanni.