Innherjamolar
Hækkanir á breiðum grunni en „góðs viti“ að húsnæðisliðurinn gefi enn eftir
Hækkun verðbólgunnar í marsmánuði var einkum drifin áfram af auknum eldsneytiskostnaði á meðan reiknuð húsaleiga hreyfðist lítið annan mánuðinn í röð. Meðalspá greinenda hafði gert ráð fyrir eilítið meiri hækkun á vísitölu neysluverðs og verðbólguvæntingar skuldabréfafjárfesta hafa því lækkað nokkuð á markaði í dag.
Eimskip innleiðir tímabundið „neyðarálag“ vegna hækkunar olíuverðs
Eftir tugprósenta hækkun á olíuverði á undanförnum vikum hefur Eimskip ákveðið að bregðast við með því taka upp sérstakt „neyðarálag“ sem leggst ofan á flutningsgjald félagsins.
Margt sem bendir til að viðnámsþrótti ferðaþjónustunnar sé ábótavant
Þótt fyrirtækin standi almennt vel að vígi til að mæta efnahagsáföllum þá er staðan nokkuð misjöfn milli atvinnugreina og er margt sem bendir til þess að viðnámsþrótti ferðaþjónustunnar sé ábótavant, að mati Seðlabankans, einkum vegna þess hversu sveiflukennd eftirspurnin getur verið. Ekki eru hins vegar enn sem komið skýrar vísbendingar um samdrátt í greininni í ár.
Lækka verðmatið og segja Alvotech vera í „biðstöðu“ fram að samþykki FDA
Þótt langtímahorfur á markaði fyrir líftæknilyfjahliðstæður séu góðar þá er útlit fyrir að Alvotech verði áfram í nokkurs konar „biðstöðu“ þangað til FDA gefur grænt ljós á markaðsleyfi í lok ársins, að mati greinenda erlends fjárfestingabanka, og er fjárfestum ráðlagt að fylgjast með fjárhagslegum sveigjanlega félagsins.
Felldu tillögu lífeyrissjóða um að setja upp tilnefningarnefnd í Hampiðjunni
Tillaga hóps lífeyrissjóða sem vildu að hafin yrði undirbúningur að stofnun tilnefningarnefndar hjá Hampiðjunni, líkt og hjá miklum meirihluta félaga í Kauphöllinni, hlut ekki brautagengi á aðalfundi félagsins.
Búast við skarpri hækkun verðbólgunnar og óvissan í spánum áfram upp á við
Útlit fyrir að verðbólgan muni hækka nokkuð skarpt í marsmánuði, ef marka má meðalspá greinenda, sem má einkum rekja til verðhækkana á olíu á heimsmarkaði. Óvissan í spánum er sögð meiri upp á við og áhyggjur eru af annarrar umferðar áhrifum af hærri verðbólgu á komandi mánuðum.
Afkoma Alvotech umfram spár en sölutekjurnar skreppa mikið saman
Bæði tekjur og aðlagaður rekstrarhagnaður hjá Alvotech á fjórða ársfjórðungi var yfir meðalspá greinenda en afkomuspá félagsins fyrir árið 2026, sem gerir ráð fyrir nánast engum tekjum í Bandaríkjunum af lyfjum sem bíða samþykkis FDA, helst óbreytt. Sölutekjur Alvotech skruppu mikið saman á seinni árshelmingi þegar félagið þurfti að ráðast í endurbætur á framleiðsluaðstöðunni.
Mæla með kaupum í Sjóvá en „hörð samkeppni“ haft neikvæð áhrif
Rekstrarumhverfi Sjóvá einkennist af mikilli óvissu á eignamörkuðum og aukinni samkeppni í tryggingarstarfseminni, að sögn greinenda, en félagið er samt talið nokkuð undirverðlagt og fjárfestum ráðlagt að bæta við sig bréfum.
Erlendir sjóðir bæta enn við sig í ríkisbréfum þótt raunvaxtamunur minnki
Fjórða mánuðinn í röð voru erlendir fjárfestingarsjóðir að bæta við sig í íslenskum ríkisverðbréfum þrátt fyrir að raunvaxtamunur Íslands gagnvart útlöndum hafi heldur farið minnkandi á sama tíma.
Gengi Íslandsbanka réttir úr kútnum eftir að Capital Group selur sig út
Tæplega tveimur mánuðum eftir að Capital Group, þá stærsti erlendi fjárfestirinn í hluthafahópi Íslandsbanka, byrjaði skipulega að minnka eignarhlut sinn hefur sjóðastýringarrisinn núna selt sig út en yfir níu milljarða velta hefur verið með bréf bankans í dag.
Ætla að fækka aðalmönnum í bankaráði í Landsbankans
Á komandi aðalfundi Landsbankans stendur meðal annars til að fækka þeim aðalmönnum sem sitja í bankaráði bankans um tvo talsins og feta þannig í fótspor Arion banka sem gerði slíkt hið sama fyrir fáeinum árum.
Fær 19 milljörðum meira í arð frá Landsbankanum en var áætlað í fjárlögum
Ákvörðun bankaráðs Landsbankans að leggja til sérstaka arðgreiðslu þýðir að ríkissjóður mun fá í sinn hlut samtals tæplega 35 milljarða frá bankanum, sem er nærri tuttugu milljörðum hærri fjárhæð en var gert ráð fyrir í forsendum fjárlaga fyrir þetta ár.
Fjárfestar hófu árið með því að selja áfram í hlutabréfasjóðum
Þrátt fyrir að fyrsti mánuður ársins hafi farið vel af stað á hlutabréfamarkaði þá héldu fjárfestar uppteknum hætti og seldu sig út úr innlendum hlutabréfasjóðum. Á sama tíma hélt hins vegar fjármagn áfram að streyma í skuldabréfasjóði fyrir milljarða króna.
Oaktree seldi meira en helminginn af stöðu sjóðsins í Alvotech í lok ársins
Vogunarsjóðurinn Oaktree Capital, sem eignaðist stóran hlut í Alvotech í aðdraganda skráningar á markað fyrir fjórum árum, var umsvifamestur á söluhliðinni með bréf félagsins á síðustu mánuðum ársins 2025 þegar hann losaði um meginþorra af eftirstandandi eignarhlutar. Eftir að hafa rétt aðeins úr kútnum á fyrstu vikum ársins hefur hlutabréfaverð Alvotech fallið um fjórðung á skömmum tíma.
Amaroq ætlar að færa sig yfir á Aðalmarkaðinn í London síðar á árinu
Amaroq hefur ráðið alþjóðlega fjárfestingabankann Citigroup til að undirbúa skráningu á Aðalmarkað Kauphallarinnar í London síðar á árinu í því skyni að auðvelda félaginu að fá fjármögnun frá stórum erlendum stofnanafjárfestum og vísitölusjóðum. Aðalmarkaðurinn í London hýsir í dag flest af helstu námufyrirtækjum heimsins.
Horfa til þess að fá Tómas nýjan inn í stjórn Arion
Stokka þarf lítillega upp í stjórn Arion á komandi aðalfundi eftir stutt stopp hjá norskum stjórnarmanni og er tilnefningarnefnd bankans sögð horfa til þess að mæla með kjöri Tómasar Más Sigurðssonar, forstjóra HS Orku.
Afkoma Arion á pari við spár þrátt fyrir óvenjumikla virðisrýrnun lána
Kjarnatekjur Arion á fjórða ársfjórðungi, sem voru að mestu á pari við væntingar, héldu áfram að aukast og var arðsemi bankans fyrir árið í heild sinni talsvert yfir markmiði stjórnenda. Óreglulegir liðir lituðu uppgjörið að hluta en bankinn bókfærði meðal annars umtalsvert meiri virðisrýrnun á lánsafnið sitt en búist var við.
Arðsemin talsvert undir markmiði eftir „slakar“ þóknanatekjur á fjórðungnum
Hagnaður Kviku á síðasta fjórðungi 2025 skrapp nokkuð saman á milli ára, meðal annars vegna dræmra þóknanatekna, og var arðsemi bankans fyrir árið í heild sinni talsvert frá markmiði. Viðbrögð greinenda við uppgjörinu voru ólík en góður gangur var í vaxtatekjum og bankinn gæti greitt umtalsverða sérstaka arðgreiðslu til hluthafa síðar á árinu.
Nýtt og lægra jafnvægi í vanskilum fólks og fyrirtækja að festast í sessi
Þrátt fyrir þráláta verðbólgu og hátt raunvaxtastig voru vanskil fyrirtækja og heimila í lágmarki á liðnu ári, samkvæmt gögnum frá innheimtufyrirtæki, og svo virðist sem nýtt og lægra jafnvægi í vanskilahlutföllum sé að festast í sessi en þekktist á árunum fyrir heimsfaraldur.
Sjóðastýringarisinn heldur áfram að minnka hlut sinn í Íslandsbanka
Stærsti erlendi fjárfestirinn í Íslandsbanka hefur á fáeinum vikum minnkað eignarhlut sinn um liðlega fimmtung, en milljarða salan hjá sjóðastýringarfélaginu kemur samhliða umfangsmiklum endurkaupum á eigin bréfum sem hafa staðið yfir hjá bankanum.
Horfur í rekstri Eimskips „krefjandi“ og verðmat á félaginu lækkar lítillega
Eimskip er nokkuð undirverðlagt á markaði samkvæmt nýrri hlutabréfagreiningu en félagið hefur þurft að ráðast í hagfræðingaraðgerðir til að mæta samdrætti og erfiðu ytra rekstrarumhverfi. Hlutabréfaverð Eimskips hefur fallið skarpt að undanförnu og ekki verið lægra frá því í árslok 2020.
Vænta þess að tekjur Alvotech af vörusölu tvöfaldist frá fyrri fjórðungi
Útlit er fyrir að umtalsverður tekjuvöxtur hafi verið hjá Alvotech á síðasta ársfjórðungi, drifinn áfram aukinni vörusölu, sem ætti að þýða að heildartekjur ársins 2025 verði við efri mörk útgefinnar afkomuspár.
Viðsnúningur undir lok ársins þegar fjármagn streymdi í hlutabréfasjóði
Fjárfestar bættu talsvert við stöðu sína í innlendum hlutabréfasjóði undir lok síðasta árs sem þýddi að hreint flæði fyrir árið í heild sinni var rétt fyrir ofan núllið. Á undanförnum fjórum árum hafa fjárfestar hins vegar almennt sýnt hlutabréfasjóðum lítinn áhuga og beint fjármagni sínu fremur í áhættuminni eignir.
Eik klárar sölu á einu lengsta skuldabréfi sem skráð félag hefur gefið út
Fasteignafélagið Eik lauk í gær útboði á nýjum verðtryggðum skuldabréfaflokki til fjörutíu ára, sem er á lokagjalddaga í febrúar árið 2066, en fá dæmi eru um að skráð félög hafi gefið út bréf með svo löngum líftíma á innlendum markaði.
Hækka verðmatið um fjórðung og mæla núna með kaupum í Högum
Virðismat á Haga hefur verið hækkað umtalsvert eftir sterkt uppgjör smásölurisans, meðal annars vegnar lækkunar á áhættuálagi og væntinga um betri afkomu, samkvæmt nýrri greiningu.
Íbúðalán bankanna skruppu verulega saman og ekki verið minni um langt árabil
Aukin samkeppni frá lífeyrissjóðunum á fasteignalánamarkaði og þrengri skilyrði fyrir verðtryggðum lánum átti meðal annars þátt í því að hrein ný íbúðalán viðskiptabankanna drógust saman um tugi prósenta í fyrra og hafa ekki verið minni að umfangi í meira en áratug.
Hrund kemur ný inn í stjórn Dranga
Á nýafstöðnum hluthafafundi Dranga, nýtt félag á smásölumarkaði og er eigandi að Orkunni, Samkaupum og Lyfjaval, var Hrund Rudolfsdóttir kjörin í stjórn en hún var áður forstjóri Veritas og er stjórnarmaður í nokkrum skráðum fyrirtækjum.
Kaldbakur og KEA koma á fót nýjum framtakssjóði
Norðlensku fjárfestingafélögin Kaldbakur og KEA hafa gert með sér samkomulag um stofnun nýs framtakssjóðs sem á að fjárfesta í innlendum nýsköpunar- og vaxtarfyrirtækjum.
Markaðsvirði Amaroq rauk upp og rauf hundrað milljarða múrinn
Markaðsvirði Amaroq rauf hundrað milljarða króna múrinn í gær þegar gengi bréfa Amaroq hækkaði skarpt, einkum eftir að markaðurinn opnaði í Kanada.
Taívanskt félag kaupir FlyOver fyrir um tíu milljarða
Taívanskt félag hefur gengið frá samkomulagi um að kaupa FlyOver Attractions, meðal annars reksturinn hér á Íslandi, fyrir samtals jafnvirði um tíu milljarða króna.