Fréttamynd

Fylgjandi „meira frelsi“ í fjár­festingum líf­eyris­sjóða en vill efla kröfur og eftir­lit

Þrátt fyrir að segjast vera fylgjandi þeim „umfangsmiklu tilslökunum“ sem til stendur að gera á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóðanna þá er Seðlabankinn nokkuð gagnrýninn á að ekki sé gengið lengra í því sem hann telur „brýnar“ mótvægisaðgerðir, meðal annars þegar kemur að því að efla kröfur um stjórnarhætti og innra eftirlit sjóðanna.

Innherji

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Kallar eftir betri rök­stuðningi hvernig eigi að hífa arð­semina upp í 13 pró­sent

Áform Íslandsbanka að skila að lágmarki þrettán prósenta arðsemi innan fárra ára þýðir að stefnt er að umtalsverðum rekstrarbata og í nýrri greiningu, sem lækkar lítillega verðmatið á bankanum, er kallað eftir því að stjórnendur útskýri og rökstyðji betur hvernig eigi að ná því markmiði. Þá er varað við því að róðurinn gæti þyngst hratt í ár núna þegar er að teiknast upp umhverfi kreppuverðbólgu sem er „allt að því fjandsamlegt fyrir fjárfestingarbankastarfsemi.“

Innherji
Fréttamynd

„Kom veru­lega á ó­vart“ að ekki tókst að semja um verð vegna mikillar sam­legðar

Samruni Íslandsbanka og Skaga hefði getað skilað báðum félögum töluverðum ávinningi, jafnvel mun meiri en þeirri áætluðu samlegð sem var gefin út, og því kom það „verulega á óvart“ að ekki hafi tekist að endursemja um nýja verðskilmála, að sögn hlutabréfagreinenda. Verðmat á Íslandsbanka hefur verið hækkað nokkuð, meðal annars vegna væntinga um betri arðsemi, en uppfærð fjárhagsleg markmið stjórnenda eru sögð vera „afar metnaðarfull“ en alls ekki ógerleg.

Innherji
Fréttamynd

Partners Group stað­festir sölu á atNorth fyrir nærri fimm hundruð milljarða

Bandaríska félagið Equinix og kanadíski lífeyrissjóðurinn CPP hafa í sameiningu gengið frá samkomulagi um að kaupa atNorth, sem á rætur sínar að rekja til Íslands, af Partners Group og er gagnaversfyrirtækið verðmetið á tæplega fimm hundruð milljarða íslenskra króna í viðskiptunum. Samhliða sölunni hefur Partners Group skuldbundið til að endurfjárfesta í atNorth og eignast allt að tíu prósenta hlut.

Innherji
Fréttamynd

Oaktree seldi meira en helminginn af stöðu sjóðsins í Al­vot­ech í lok ársins

Vogunarsjóðurinn Oaktree Capital, sem eignaðist stóran hlut í Alvotech í aðdraganda skráningar á markað fyrir fjórum árum, var umsvifamestur á söluhliðinni með bréf félagsins á síðustu mánuðum ársins 2025 þegar hann losaði um meginþorra af eftirstandandi eignarhlutar. Eftir að hafa rétt aðeins úr kútnum á fyrstu vikum ársins hefur hlutabréfaverð Alvotech fallið um fjórðung á skömmum tíma.

Innherjamolar
Fréttamynd

Fjár­festar taka vel í nýja af­komu­spá Amaroq sem er um­fram væntingar

Miðað við núverandi heimsmarkaðsverð á gulli og helstu forsendur að baki nýrri afkomuspá Amaroq fyrir árið 2026 er útlit fyrir að rekstrarhagnaður auðlindafélagsins geti orðið eilítið meiri en síðustu spár greinenda hafa gert ráð fyrir. Hlutabréfaverðið hefur rokið upp eftir að félagið opinberaði nýjar áætlanir sínar. 

Innherji
Fréttamynd

Kemur „mjög á ó­vart“ að stjórn ISB treysti sér ekki til að standa við sam­komu­lagið

Stóru lífeyrissjóðirnir sem eru í þeirri stöðu að eignarhald þeirra þverast með svipuðum hætti í Íslandsbanka og Skaga eru fremur fámálir um þá ákvörðun að samrunaviðræðum hafi verið slitið, á meðan afstaða sumra annarra sjóða litast af því hvar hagsmunir þeirra vega hlutfallslega meira. Stærsti einkafjárfestir Skaga segir það koma „mjög á óvart“ að stjórn Íslandsbanka hafi ekki treyst sér til að standa við samkomulagið en hún fór fram á verulegar breytingar á fyrri verðskilmálum við samruna félaganna sem yrðu aðlagaðir með tilliti gengishækkunar á bréfum bankans og gagngjaldið að hluta greitt með reiðufé.

Innherji
Fréttamynd

Arion verð­lagður á „spott­prís“ þrátt fyrir sam­bæri­lega arð­semi og nor­rænir bankar

Þrátt fyrir að skila sambærilegri arðsemi og aðrir helstu bankar á hinum Norðurlöndunum þá er Arion verðlagður á markaði talsvert lægra með hliðsjón af afkomu og eigið fé. Í nýrri hlutabréfagreiningu er Arion því sagður vera „á spottprís“ en verðmat á bankanum er lækkað lítillega og gert er ráð fyrir minni efnahagsumsvifum samtímis háum grunnvöxtum.

Innherji
Fréttamynd

Er­lendu sjóðastýringarrisarnir sem eru að byggja hratt upp stöðu í Ocu­lis

Erlendir fjárfestingarsjóðir, meðal annars sérhæfðir sjóðastýringarrisar með áherslu á líftækni- og heilbrigðisgeirann, eru að stækka hratt stöðu sína í Oculis og hafa sumir þeirra keypt í félaginu fyrir marga milljarða á allra síðustu vikum og mánuðum. Vaxandi eftirspurn meðal erlendra fjárfesta hefur skilað sér í meiri veltu og hækkun á hlutabréfaverði en Oculis er núna orðið fjórða verðmætasta félagið á íslenskum hlutabréfamarkaði.

Innherji
Fréttamynd

Fjár­festar selja í Símanum eftir von­brigði með nýja af­komu­spá

Þótt rekstrarniðurstaðan á síðustu mánuðum ársins 2025 hafi verið ákveðin varnarsigur fyrir Símann eftir brotthvarf Enska boltans þá olli ný afkomuspá fyrir yfirstandandi ár, sem litast meðal annars af kostnaðarþrýstingi frá erlendum birgjum, nokkrum vonbrigðum meðal fjárfesta. Hlutabréfaverð félagsins lækkaði skarpt á markaði í dag.

Innherji
Fréttamynd

Á­form um að vaxa út úr vandanum sögð bjart­sýn eða í „versta falli hrein tál­sýn“

Fyrirætlanir stjórnvalda um að hægt verði að ná tökum á ríkisrekstrinum með því að vaxa út úr vandanum eru „í besta falli bjartsýnar og í versta falli hrein tálsýn“, að mati greinenda Acro verðbréfa, en ófjármögnuð útgjaldaloforð hafa nú þegar valdið hækkun fjármagnskostnaðar á markaði. Án eignasölu verður nokkur bið á skuldalækkun ríkissjóðs og því er þeim varnarorðum beint að ríkisstjórninni að boðaður halli á lánsfjárjöfnuði næstu árin, sem er í sögulegu samhengi umtalsverður, gæti hæglega orðið jafnvel enn meiri.

Innherji
Fréttamynd

Mælir með Birgi Má og Stein­grími í stjórn Heima

Tilnefningarnefnd Heima mælir með því að þeir Birgir Már Ragnarsson og Steingrímur Halldór Pétursson komi nýir inn í stjórn fasteignafélagsins á komandi aðalfundi. Birgir Már er annar eigenda fjárfestingafélagsins Omega sem varð stærsti hluthafi Heima snemma árs í fyrra eftir sölu á Grósku.

Innherji
Fréttamynd

Ríf­leg eigin­fjár­staða skapar svig­rúm til veru­legs vaxtar hjá Festi

Festi ræður yfir talsverðu umfram eigin fé um þessar mundir sem stjórnendur horfa til að geta nýtt í „verulegan“ innri og ytri vöxt en í nýrri greiningu er fjárfestum ráðlagt að halda stöðu sinni í smásölufélaginu óbreyttri, enda þótt verðmatsgengið sé hækkað nokkuð. Undir lok síðasta árs fór dótturfélagið Elko að hasla sér völl í lánastarfsemi og útlit er fyrir hraðan vöxt þar á þessu ári.

Innherji
Fréttamynd

„Al­gjört hrun á grænum orku­markaði“ og færir niður virði bréfa í CRI um helming

Erfiðleikar í rekstri og „algjört hrun á grænum orkumarkaði“ veldur því að Sjóvá telur rétt að færa niður virði eignarhlutar síns í íslenska hátæknifyrirtækinu Carbon Recycling um helming. Lífeyrissjóðurinn Gildi er einn allra stærsti hluthafi CRI eftir að hafa fjárfest í félaginu fyrir vel á annan milljarð á sama tíma og Sjóvá fyrir meira en tveimur árum.

Innherji