Englendingar komnir áfram

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jodie Taylor skoraði eina mark leiksins í Le Havre.
Jodie Taylor skoraði eina mark leiksins í Le Havre. vísir/getty
England er komið áfram í 16-liða úrslit heimsmeistaramóts kvenna eftir 1-0 sigur á Argentínu í Le Havre í D-riðli í kvöld.

Englendingar voru miklu sterkari aðilinn í leiknum en þurftu að sýna þolinmæði gegn ólseigu argentínsku liði.

Vanina Correa átti afbragðs góðan leik í marki Argentínu og varði vítaspyrnu frá Nikitu Parris eftir tæpan hálftíma.

Correa varði nokkrum vel til viðbótar en hún kom engum vörnum við þegar Jodie Taylor skoraði eina mark leiksins á 61. mínútu. Hún setti boltann þá í netið af stuttu færi eftir fyrirgjöf Beth Mead.

Fleiri urðu mörkin ekki og Englendingar fögnuðu sigri og sæti í 16-liða úrslitunum.

England mætir Japan í lokaumferð riðlakeppninnar á meðan Argentína mætir Skotlandi.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira