Bournemouth - Everton | Norðanliðið mætir suður Hér fer fram textalýsing frá leik Bournemouth og Everton í annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Flautað verður til leiks á Vitality Stadium klukkan 14:00. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport 5. Enski boltinn 29.8.2026 13:32
Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Manchester City vann stórsigur á Crystal Palace í gær þar sem leikurinn endaði 4-1. Enski boltinn 29.8.2026 11:32
Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Liverpool og Nottingham Forest gerðu 2-2 jafntefli í annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Liverpool lenti tvisvar undir en náði að jafna metin í bæði skiptin. Enski boltinn 29.8.2026 11:01
Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Michael Zetterer er á barmi þess að ganga í raðir Leeds United frá Eintracht Frankfurt. Enski boltinn 28.8.2026 07:01
Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Það verður nóg um að vera á Sportrásum Sýnar í dag. Enski boltinn 28.8.2026 06:00
Palacios til Ipswich Ipswich Town hefur gengið frá kaupum á argentínska miðjumanninum Exequiel Palacios frá Bayer Leverkusen. Enski boltinn 27.8.2026 23:01
Chelsea að ná í Emiliano Martínez Chelsea hefur náð samkomulagi við Aston Villa um kaup á argentínska markverðinum Emiliano Martínez. Félagið greiðir um 7,5 milljónir punda fyrir hinn 33 ára gamla markvörð sem gengur til liðs við Chelsea á varanlegum samningi. Enski boltinn 27.8.2026 21:31
Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Chelsea er komið áfram í þriðju umferð enska deildabikarsins eftir 2-0 sigur á Luton á Stamford Bridge í kvöld. Enski boltinn 27.8.2026 20:31
Goretzka mættur til Villa Aston Villa kynnti í dag þýska miðjumanninn Leon Goretzka til leiks en hann kemur til félagsins með gríðarlega mikla reynslu af að fagna meistaratitlum með Bayern München. Enski boltinn 27.8.2026 15:39
Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool og starfandi sparkspekingur, hefur verið krafinn um gjaldþrotayfirlýsingu af breskum yfirvöldum vegna ógreiddra skatta. Talsmaður Carragher segir að málið verði leyst fljótlega. Enski boltinn 27.8.2026 13:03
Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Nottingham Forest hefur fest kaup á framherjanum Liam Delap frá Chelsea fyrir gríðarháa upphæð. Enski boltinn 27.8.2026 09:43
Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Julian Alvarez, sóknarmaður Atletico Madrid er sagður vera farinn að íhuga hvort félagsskipti til Englandsmeistara Arsenal gæti verið rétta skrefið á hans ferli núna. Samband hans við Atletico Madrid virðist nær óbætanlegt. Argentínumaðurinn hefur ekki mætt á æfingu tvo daga í röð. Enski boltinn 27.8.2026 09:31
Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool er langt komið með að tryggja sér þjónustu franska kantmannsins Bradley Barcola frá Evrópumeisturum Paris Saint-Germain. Enski boltinn 27.8.2026 06:59
Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Aston Villa hefur náð samkomulagi við Chelsea um kaup á Nicolas Jackson í samningi sem getur numið allt að 65 milljónum punda, samkvæmt miðlum ytra. Enski boltinn 26.8.2026 23:02
Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Liverpool hefur beint sjónum sínum að Ismaila Sarr, sóknarmanni Crystal Palace, eftir að Brighton hafnaði tveimur tilboðum félagsins í Yankuba Minteh. Enski boltinn 26.8.2026 21:31
Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Fjórir leikir fóru fram í annarri umferð enska deildabikarsins í kvöld þar sem Tottenham, Newcastle og Everton tryggðu sér sæti í þriðju umferð. Bradford City og Burnley þurftu að grípa til vítaspyrnukeppni eftir markalausan leik. Enski boltinn 26.8.2026 20:58
Dagný orðin sendiherra West Ham Dagný Brynjarsdóttir hefur verið ráðin sem sendiherra West Ham United. Hún var leikmaður liðsins í fjögur ár áður en hún flutti aftur til Íslands árið 2025. Enski boltinn 26.8.2026 14:45
Raheem Sterling ákærður Raheem Sterling, fyrrverandi leikmaður stórliða á borð við Liverpool, Chelsea, Arsenal og Manchester City hefur verið ákærður fyrir ofsaakstur og vörslu á köfnunarefnisoxíði í kjölfar áreksturs í maí fyrr á þessu ári. Enski boltinn 26.8.2026 12:47
Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Olivia Smith varð í fyrra fyrsta fótboltakonan sem seld er fyrir eina milljón punda, þegar Arsenal keypti hana af Liverpool. Hún á fjölbreyttan íþróttabakgrunn, meðal annars vegna eineltis sem hún sætti sem barn heima í kanadíska smábænum Whitby. Enski boltinn 26.8.2026 11:02
Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Manchester City hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Ayyoub Bouaddi og skrifar hann undir fimm ára samning í Manchesterborg til ársins 2031. Enski boltinn 26.8.2026 10:29
Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Íslenski landsliðsmaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen hefur farið gífurlega vel af stað með Blackburn Rovers á yfirstandandi tímabili á Englandi eftir afar erfitt síðasta tímabil. Enski boltinn 26.8.2026 10:01
Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Omar Marmoush er að ganga í raðir Tottenham á lánssamningi frá Manchester City en ákvæði er í samkomulagi liðanna þess efnis að Tottenham kaupi hann næsta sumar. Enski boltinn 26.8.2026 09:32
Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Jákvæður tónn er í viðræðum Liverpool við Paris Saint-Germain varðandi möguleg kaup á franska kantmanninum Bradley Barcola. Bjartsýni ríkir gagnvart því að hægt verði að ná samkomulagi um félagsskipti leikmannsins. Enski boltinn 26.8.2026 08:32
Savinho til Tottenham frá Manchester City Brasilíski kantmaðurinn Savinho hefur verið keyptur frá Manchester City til Tottenham sem greiðir um 85 milljónir punda fyrir leikmannin og hefur nú eytt yfir 300 milljónum punda í nýja leikmenn milli tímabila. Enski boltinn 25.8.2026 09:32