Neyðaróp starfsmanna og leynisímar Starfsfólk á bráðamóttöku Landspítalans óttast um öryggi sitt og sjúklinga vegna óviðunandi aðstæðna á spítalanum. Í kvöldfréttum verðum við í beinni útsendingu frá sameiginlegum hitafundi stéttarfélaga allra starfsmanna bráðamóttökunnar. Þá mætir Alma Möller, heilbrigðisráðherra, í viðtal í beinni. Innlent
Real Madrid lúffar fyrir UEFA í deilum um Ofurdeildina Spænska knattspyrnufélagið Real Madrid og evrópska knattspyrnusambandið UEFA hafa leyst lagalegar deilur sínar um Ofurdeildina, sem Real Madrid reyndi að setja á fót árið 2021, með samkomulagi. Fótbolti
Hefur staðið eftir marin eftir mörg hundruð handabönd Forseti Íslands Halla Tómasdóttir var gestur í síðasta þætti af Gott kvöld og ræddi þar um hlutverkið sjálft. Lífið
Ísland í dag - Kom heim fyrir börnin og vann Eddu Ásta Hafþórsdóttir er einn fremsti förðunar- og gervahönnuður landsins. Hún flutti nýlega aftur til Íslands eftir mörg ár í Noregi þar sem hún vann að risastórum verkefnum. Hún var fljót að vinna Edduverðlaun eftir heimkomu og nýtti tækifærið til að auglýsa eftir kærasta þegar hún tók við gripnum. Í þættinum umbreytir hún snyrtilegum fjölmiðlamanni í vígalegan víking. Ísland í dag
Bræður selja Vagna og þjónustu eftir 40 ára rekstur Kristmundur Árnason, Guðmundur Björnsson og Snorri Arnar Viðarsson hafa keypt rekstur Vagna og Þjónustu ehf. Fyrirtækið hefur verið rekið af bræðrunum Gesti Braga Magnússyni og Birni Rúnari Magnússyni í um 40 ár. Davíð Örn Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri félagsins. Viðskipti innlent
Vill opna á verðbréfalán lífeyrissjóða sem ætti að auka skortsölu á markaði Fjármálaráðherra áformar að leggja fram frumvarp sem myndi meðal annars í fyrsta sinn gera íslenskum lífeyrissjóðum kleift að lána áfram hluta af hlutabréfum eða skuldabréfum í þeirra eigu, sem gæti þá skapað forsendur fyrir aukinni skortsölu meðal fjárfesta, en það ætti að bæta í senn virkni og verðmyndum á markaði. Innherji
Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Sterk vörumerki snúast ekki bara um útlit eða auglýsingar heldur eru lykilþáttur í rekstri, menningu og samkeppnishæfni fyrirtækja. Bestu íslensku vörumerkin 2025 fá viðurkenningu í Hörpu 19. febrúar en Brandr, vörumerkjastofa hefur staðið fyrir viðburðinum árlega síðan 2020. Samstarf