

Gæsluvarðhald yfir karlmanni um fertugt sem grunaður er um alvarlega líkamsárás í Úlfarsárdal í síðustu viku var framlengt um fjórar vikur á grundvelli almannahagsmuna í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Íbúar við Skyggnisbraut í Úlfarsárdal í Grafarholti þar sem maður réðst á annan með eggvopni í vikunni, segja að lögreglan hafi margoft þurft að hafa afskipti af mönnum í hverfinu á þessu ári. Meðal annars hafi maður verið handtekinn fyrir að ætla að ráðast inn í íbúð með sveðju í nóvember í fyrra. Íbúarnir vilja ekki koma fram undir nafni öryggis síns vegna.
Karlmaður á fimmtugsaldri sem var stunginn í Úlfarsárdal í Reykjavík í gær særðist alvarlega og lögreglu hefur ekki tekist að taka skýrslu af honum vegna málsins í dag. Hann er þó ekki talinn í lífshættu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann sem er gunaður um stunguárás í Úlfarsársdal í Reykjavík í dag. Einn var fluttur á sjúkrahús vegna málsins. Í tilkynningu frá lögreglu segir að atvik málsins séu óljós.