Mál Önnu Sorokin

Svikakvendið ætlar að dansa með stjörnunum
Rússneska svikakvendið Anna Sorokin, öðru nafni Anna Delvey, mun keppa í 33. þáttaröð af bandarísku dansþættinum Dancing with the stars. Dansfélagi hennar verður atvinnudansarinn Ezra Sosa.

Svikakvendið segir eigin sögu við matarborðið í stofufangelsi
Rússneska svikakvendið Anna Sorokin, öðru nafni Anna Delvey hefur nú landað sjónvarpsþáttasamning á meðan hún er í stofufangelsi.

Anna Sorokin telur sig eiga skilið að fá annað tækifæri
Hin rússneska Anna Sorokin, sem þekkt er fyrir að hafa svikið háar fjárhæðir frá fólki í New York í Bandaríkjunum, hefur lítinn áhuga á að yfirgefa Bandaríkin og telur sig eiga skilið að fá annað tækifæri.

Anna Sorokin úr „Inventing Anna“ laus úr fangelsi
Hinni rússnesku Önnu Sorokin, sem þekkt er fyrir að hafa svikið háar fjárhæðir frá fólki í New York í Bandaríkjunum, hefur verið sleppt úr fangelsi. Hún hefur verið flutt í stofufangelsi, verið gert að vera með ökklaband og meinað að vera á samfélagsmiðlum.

Loddaranum Önnu Sorokin vísað frá Bandaríkjunum
Bandarísk stjórnvöld hyggjast vísa Önnu Sorokin, einnig þekkt sem Anna Delvey, úr landi og senda hana aftur til Þýskalands. Anna gerði garðinn frægan þegar hún þóttist vera erfingi mikilla auðæfa og sótti um árabil veislur yfirstéttarfólks í New York sem féll kylliflatt fyrir blekkingum hennar.

Loddaranum Önnu Sorokin sleppt úr steininum
Önnu Sorokin, þýskri konu sem þóttist vera erfingi mikilla auðæfa og sótti um árabil veislur yfirstéttarfólks í New York, hefur verið sleppt úr fangelsi. Sorokin var árið 2019 dæmd í fangelsi fyrir umfangsmikinn stuld eftir að hafa svikið rúmlega 200 þúsund Bandaríkjadala, um 25 milljónir króna, úr út bönkum og lúxushótelum.

Þóttist vera þýskur erfingi og sveik út tugi milljóna
Hin 28 ára gamla Anna Sorokin var á fimmtudag dæmd til fjögurra til tólf ára fangelsisvistar fyrir fjársvik og þjófnað yfir margra ára tímabil.