Alvotech
1 2 3 4 5 … 5 ›
Alvotech taki þátt í uppbyggingu en Reykjavík reki skólann Líf Magneudóttir oddviti VG í borgarstjórn veltir fyrir sér afleiðingum þess að fyrirtæki hefji rekstur leikskóla. Færist starfsfólk yfir gæti það leitt til þess að mönnunarvandinn, rót vandans að hennar sögn, aukist. Innlent 13.12.2024 20:44
Alvotech stofnar þrjá leikskóla til að mæta vanda starfsmanna Eftir ítarlega greiningu komst Alvotech að því að besta lausnin við leikskólavanda starfsmanna væri að stuðla að stofnun fleiri leikskóla. Innlent 13.12.2024 12:06
Hefur styrkt KR um 300 milljónir Róbert Wessman stofnandi og forstjóri lyfjafyrirtækisins Alvotech hefur á síðustu árum styrkt íþróttastarf KR í gegnum fyrirtæki sín um tæplega 300 milljónir króna. Viðskipti innlent 11.12.2024 21:57
Tekjurnar umfram væntingar og gætu nálgast efri mörkin í afkomuspá Alvotech Stjórnendur Alvotech sjá ekki ástæðu til að uppfæra afkomuáætlun sína fyrir þetta ár en eftir niðurstöðu þriðja fjórðungs, sem var nokkuð umfram væntingar greinenda, er útlit fyrir að tekjur félagsins verði í eftir mörkum þess sem áður hefur verið gefið út. Miklar sveiflur voru á hlutabréfaverði Alvotech í dag en félagið greindi meðal annars frá því að FDA hefði í reglubundinni úttekt fyrr í haust gert tvær athugasemdir við framleiðsluaðstöðuna í Reykjavík. Innherji 14.11.2024 22:37
Tugmilljarða viðsnúningur hjá Alvotech Rekstrarhagnaður Alvotech var 56,2 milljónir dala á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við tap upp á 277,7 milljónir dala á sama tímabili í fyrra. Það gerir viðsnúning upp á 46,6 milljarða króna. Viðskipti innlent 14.11.2024 12:23
Lyfjastofnun Evrópu tekur umsókn Alvotech til umsagnar Alvotech og samstarfsaðili þess, alþjóðlega lyfjafyrirtækið Advanz Pharma tilkynntu í dag að Lyfjastofnun Evrópu, EMA, hafi samþykkt að taka til umsagnar umsókn um markaðsleyfi fyrir AVT05, sem er fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða Alvotech við Simponi (golimumab), sem notað er til meðferðar við ýmsum þrálátum bólgusjúkdómum. Viðskipti innlent 4.11.2024 12:21
Tiltrú fjárfesta mun aukast þegar það fæst betri innsýn í sölutekjur Alvotech Fjárfestar bíða eftir að fá betri innsýn í tekjurnar vegna sölu á hliðstæðulyfi Alvotech við Humira í Bandaríkjunum, að mati fjárfestingabankans Barclays, en það hefur ráðið hvað mestu um að hlutabréfaverð félagsins er enn talsvert undir hæstu gildum fyrr á árinu. Greinendur bankans, sem segjast „sannfærðir“ um að Alvotech verði einn af þremur risunum á heimsvísu á sviði líftæknilyfja, álíta að uppgjör næstu mánaða muni auka tiltrú og traust markaðarins á tekjuáætlunum þess og nefna eins að með sérhæfðri lyfjaverksmiðju sé félagið með samkeppnisforskot á suma af helstu keppinautum sínum. Innherji 17.10.2024 14:55
Kvartar til FDA og telur að Samsung eigi ekki að fá útskiptileika við Stelara Alvotech hefur sent inn kvörtun til Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna vegna hliðstæðu keppinautarins Samsung Bioepis við Stelara, eitt mesta selda lyf í heimi, sem íslenska líftæknilyfjafélagið telur að uppfylli ekki kröfur til að fá heimild fyrir útskiptileika. Samsung er eitt af fjórum fyrirtækjum sem hefur sett stefnuna á hliðstæðumarkað með Stelara í upphafi næsta árs en fái félagið ekki útskiptileika er sennilegt að það muni koma verulega niður á möguleikum þess að keppa um hlutdeild við sölu á lyfinu. Innherji 1.10.2024 11:14
4,4 milljarðar til borgarinnar vegna framkvæmda á Hólmsheiði Áætlaðar tekjur Reykjavíkurborgar af sölu byggingarréttar og álagningu gatnagerðargjalda í tengslum við uppbyggingu nýs atvinnusvæðis á Hólmsheiði er 4,4 milljarðar króna. Borgarstjóri og fulltrúar fimm fyrirtækja skrifuðu í gær undir viljayfirlýsingu um lóðarvilyrði á svæðinu Viðskipti innlent 20.9.2024 13:39
Stórfyrirtæki hyggja á uppbyggingu á Hólmsheiði Einar Þorsteinsson, borgarstjóri Reykjavíkur, mun í dag skrifa undir viljayfirlýsingu við fulltrúa fimm fyrirtækja vegna uppbyggingar á Hólmsheiði. Fyrirtækin sem um ræðir í fyrsta fasa uppbyggingarinnar eru Ölgerðin, Alvotech, Parlogis, Veritas og Safari. Viðskipti innlent 19.9.2024 11:07
Afkoman hjá Akta við núllið eftir sveiflukennt ár á mörkuðum Sjóðastýringarfélagið Akta var rekið rétt fyrir ofan núllið á fyrri árshelmingi en þóknanatekjurnar jukust samt nokkuð á tímabili sem einkenndist af miklum sveiflum á eignamörkuðum innanlands. Einn af helstu flaggskipssjóðum Akta, sem hefur veðjað stórt á Alvotech, sá eignir sínar halda áfram að skreppa saman samtímis útflæði – þó minna en áður – og verulega neikvæðri ávöxtun. Innherji 1.9.2024 12:28
Sparkar út frumlyfinu og mælir með hliðstæðu Alvotech við Humira Einn af stóru innkaupaaðilunum á bandarískum lyfjamarkaði hefur ákveðið að fjarlægja framleiðenda frumlyfsins Humira, eitt mesta selda lyf þar í landi um árabil, af endurgreiðslulistum sínum og þess í stað mæla með þremur líftæknilyfjahliðstæðum, meðal annars frá Alvotech. Hlutdeild AbbVie á Humira-markaðnum hefur farið minnkandi eftir að annar innkauparisi tók sömu ákvörðun í upphafi ársins. Innherji 27.8.2024 19:43
Erlendur sjóður fjárfesti í Alvotech fyrir meira en tvo milljarða Hlutabréfasjóðir hjá Redwheel, alþjóðlegt sjóðastýringarfélag sem hefur nýverið byggt upp stöðu Heimum, fjárfestu á sambærilegum tíma fyrir jafnvirði meira en tvo milljarða króna í líftæknilyfjafélaginu Alvotech á íslenska markaðinum undir lok síðustu viku. Eftir skarpt verðfall á hlutabréfaverði félagsins hefur það rétt úr kútnum að undanförnu samtímis meðal annars fregnum um aukið innflæði erlendra sjóða í bréfin og góðum gangi í sölu á stærsta lyfi Alvotech í Bandaríkjunum. Innherji 21.8.2024 15:44
Gengi bréfa Alvotech rýkur upp með innkomu erlendra sjóðastýringarrisa Nokkrir stórir erlendir hlutabréfasjóðir bættust nýir inn í hluthafahóp Alvotech á öðrum fjórðungi eftir að hafa staðið að kaupum á bréfum á markaði í Bandaríkjunum fyrir samanlagt jafnvirði marga milljarða króna. Skortur á fjárfestingu frá erlendum sjóðum hefur haft neikvæð áhrif á gengisþróun Alvotech að undanförnu en hlutabréfaverð félagsins rauk upp í Kauphöllinni í dag. Innherji 15.8.2024 17:39
Náð um tuttugu prósenta hlutdeild örfáum vikum eftir að salan hófst Rétt ríflega einum mánuði eftir að dótturfélag heilbrigðistryggingarisans Cigna Group hóf sölu á hliðstæðulyfi Alvotech við Humira í Bandaríkjunum hefur það náð hátt í tuttugu prósenta markaðshlutdeild innan tryggingarkerfisins. Stjórnendur Cigna segjast gera ráð fyrir miklum vaxtarbroddi í sölu á líftæknilyfjahliðstæðum á næstu árum. Innherji 14.8.2024 06:31
Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Alvotech reiknar með að heildartekjur annars ársfjórðungs verði á bilinu 196 til 201 milljón dala. Áætlaðar heildartekjur á fyrri helmingi ársins eru þá 233 til 238 milljónir dala sem eru um tífaldar tekjur sama tímabils í fyrra. Viðskipti innlent 1.7.2024 10:05
„Nokkuð snúið“ að fá inn erlenda sjóði meðan hlutabréfaveltan er jafn lítil Góður gangur í sölu á hliðstæðu Alvotech við lyfið Humira í Bandaríkjamarkað þýðir að pantanabókin er orðin nokkuð meiri en þeir milljón skammtar sem upplýst var um fyrir fáeinum vikum, að sögn forstjóra félagsins, sem segir árið búið að „teiknast býsna vel upp.“ Í viðtali við Innherja ræðir Róbert Wessman um litla veltu með bréf félagsins í Bandaríkjunum, sem hefur skapað tæknilegar hindranir fyrir innkomu erlendra sjóða, en telur að sú staða geti snúist hratt við. Hann útilokar að Alvotech sé að fara sækja sér meira fé í reksturinn og undirstrikar að fjármögnun félagsins sé „lokið.“ Innherji 25.6.2024 14:54
Semja um markaðssetningu verðmæts augnlyfs Alvotech og Advanz Pharma, alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með höfuðstöðvar í Bretlandi, sem markaðssetur lyfseðilsskyld lyf, stungu- og innrennslislyf og lyf við sjaldgæfum sjúkdómum, tilkynntu í dag að félögin hefðu undirritað nýjan samning um framleiðslu og markaðssetningu fyrirhugaðrar líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við augnlyfið Eylea. Tekjur af sölu lyfsins í Evrópu námu rúmlega 400 milljörðum króna í fyrra. Viðskipti innlent 18.6.2024 08:33
Alvotech freistar þess að fá inn erlenda fjárfesta með sölusamningi við Jefferies Alvotech hefur gert samning við bandarískan fjárfestingabanka í tengslum við mögulega sölu á nýjum hlutabréfum í líftæknilyfjafélaginu fyrir allt að jafnvirði meira en tíu milljarða króna. Samkomulagið er liður í því að freista þess að fá stóra erlenda fjárfesta í hluthafahópinn en væntingar um myndarlega innkomu slíkra sjóða á kaupendahliðina eftir að Alvotech fékk samþykkt markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrr á árinu hafa ekki gengið eftir hingað til. Innherji 16.6.2024 08:36
Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Alvotech hefur gert samning um endurfjármögnun skulda við GoldenTree Asset Management, bandarískt eignastýringarfyrirtæki, sem fer fyrir hópi alþjóðlegra stofnanafjárfesta. Samningurinn er um lánafyrirgreiðslu að fjárhæð allt að 965 milljónir Bandaríkjadal, eða um 135 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 7.6.2024 08:47
Félag Róberts fékk um þrjá milljarða með sölu á breytanlegum bréfum á Alvotech Fjárfestingafélag í aðaleigu Róberts Wessman, forstjóra og stjórnarformanns Alvotech, hefur klárað sölu á hluta af breytanlegum bréfum sínum á líftæknilyfjafyrirtækið fyrir samtals um þrjá milljarða króna. Þrátt fyrir uppfærða afkomuspá Alvotech ásamt jákvæðum viðbrögðum frá erlendum greinendum hefur það ekki skilað sér í hækkun á hlutabréfaverði félagsins. Innherji 29.5.2024 17:50
Árangur Alvotech bendi til að félagið geti orðið „alþjóðlegur líftæknilyfjarisi“ Alvotech hefur fengið skuldbindandi pantanir á meira en milljón skömmtum af Simlandi-hliðstæðu sinni við Humira í Bandaríkjunum fyrir þetta ár, sem tryggir félaginu umtalsverða hlutdeild á þeim markaði að sögn Barclays, en bankinn hefur hækkað verðmat sitt á Alvotech og telur fyrirtækið á góðri leið með að verða alþjóðlegur líftæknilyfjarisi. Stjórnendur Alvotech vinna nú í endurfjármögnun á skuldum félagsins, sem nema yfir hundrað milljörðum, með það fyrir augum að lækka verulega fjármagnskostnað. Innherji 25.5.2024 12:45
Alvotech sér fram á tvöfalt meiri rekstrarhagnað miðað við spár greinenda Eftir að Alvotech hækkaði verulega áætlun sína um tekjur og afkomu á þessu ári er útlit fyrir að EBITDA-hagnaður líftæknilyfjafélagsins verði um tvöfalt meiri en meðalspá greinenda hefur gert ráð fyrir. Fjárfestar tóku vel í uppfærða afkomuspá Alvotech, aðeins tveimur mánuðum eftir að hún var fyrst birt, en félagið ætti núna að vera ná því markmiði að skila umtalsverðu jákvæðu sjóðstreymi. Innherji 22.5.2024 15:59
Úr tveggja milljarða tekjum í fimm en töpuðu þrjátíu Tekjur Alvotech á fyrsta ársfjórðungi þessa árs voru 37 milljónir dala. Á sama tímabili í fyrra voru tekjurnar sextán milljónir dala en upphæðirnar samsvara um 5,1 milljarði króna annars vegar og um 2,2 milljörðum hinsvegar. Viðskipti innlent 21.5.2024 22:17
Landa stórum sölusamningi Alvotech tilkynnti í dag að nýgerður samningur í Bandaríkjunum um dreifingu og sölu á líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech í háum styrk með útskiptileika við Humira (adalimumab) sé við Quallent Pharmaceuticals, dótturfélag Cigna. Samningurinn sé gerður með samþykki Teva Pharmaceuticals, sem er samstarfsaðili Alvotech í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 30.4.2024 08:34
Heilbrigðistryggingafélag tekur lyf Alvotech upp á sína arma Bandaríska heilbrigðistryggingafélagið Cigna hyggst bjóða upp á líftæknilyfjahliðstæður af gigtarlyfinu Humira án þess að viðskiptavinir þurfi að greiða sérstaklega fyrir lyfið. Alvotech, sem er býður upp á slíkt lyf, hefur hækkað um 3,7 prósent það sem af er degi. Innherji 26.4.2024 12:13
Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Líftæknifyrirtækið Alvotech hefur gert langtímasamning við „leiðandi innkaupaaðila lyfja í Bandaríkjunum“ um sölu og markaðssetningu á Simlandi (adalimumab-ryvk), fyrstu líftæknilyfjahliðstæðunni í háum styrk með útskiptanleika við Humira. Viðskipti innlent 19.4.2024 11:23
Annað markaðsleyfi í höfn í Bandaríkjunum Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur veitt Alvotech markaðsleyfi fyrir Selarsdi (ustekinumab-aekn), líftæknilyfjahliðstæðu við Stelara. Gert er ráð fyrir að Selarsdi komi á markað í Bandaríkjunum um eða eftir 21. febrúar 2025 í samræmi við samkomulag við framleiðanda frumlyfsins Stelara Viðskipti innlent 16.4.2024 21:31
Mun stýra mannauðsmálum Alvotech Jenný Sif Steingrímsdóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra mannauðsmála hjá Alvotech. Jenný gekk til liðs við Alvotech í október 2022 og hefur verið mannauðsráðgjafi fyrir rannsóknar- og þróunarsvið Alvotech. Viðskipti innlent 11.4.2024 09:37
Vogunarsjóðum Akta reitt þungt högg eftir óvænt gengisfall Alvotech Ævintýralegar sveiflur hafa verið á gengi vogunarsjóða í stýringu Akta á undanförnum vikum samhliða hröðu risi og síðan falli á hlutabréfaverði Alvotech. Sjóðastýringarfélagið hefur lagt mikið undir á Alvotech, sem fékk undir lok febrúar langþráð samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum, en einn af flaggskipssjóðum Akta tók dýfu um nærri fimmtíu prósent á nokkrum viðskiptadögum þegar það fór að síga á ógæfuhliðina hjá líftæknilyfjafyrirtækinu á hlutabréfamarkaði. Innherji 9.4.2024 10:29