Íslenski boltinn

Fréttamynd

Jafntefli við Svía í Sandgerði

Íslenska U-19 ára landsliðið í knattspyrnu gerði jafntefli, 2–2, í seinni vináttulandsleik sínum gegn Svíum sem fram fór í Sandgerði í gær. Íslenska liðið var mikið mun betri aðilinn en einbeitingarleysi kostaði liðið sigurinn.

Sport
Fréttamynd

Mótar liðið ekki strax

Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Notts County, segir í viðtali á heimasíðu félagsins í gær að hann sé búinn að ákveða dagsetningu til að velja þá leikmenn sem hann ætli að nota á næsta tímabili og segir hana vera daginn fyrir fyrsta leik.

Sport
Fréttamynd

Liverpool fær að vita á föstudag

Það skýrist á föstudaginn hvort Liverpool fær tækifæri til að verja Evrópumeistaratitil sinn í knattspyrnu á næsta tímabili. UEFA vill leysa málið áður en til fundar framkvæmdanefndar sambandsins kemur í Manchester þann 17. júní og munu 13 af 14 nefndarmeðlima halda símafund á morgun fimmtudag.

Sport
Fréttamynd

Tvö flott mörk í fyrri hálfleik

Íslenska landsliðið í knattspyrnu hefur 2-0 forustu í hálfleik í leik gegn Möltu í undankeppni HM en leikurinn fer fram þessa stundina á Laugardalsvellinum. Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Eiður Smári Guðjohnsen hafa skorað mörk íslenska liðsins.

Sport
Fréttamynd

Loksins þrjú stig í húsi

Íslenska landsliðið í knattspyrnu bjargaði því sem bjargað varð eftir bagalega niðurstöðu gegn Ungverjum um helgina. Íslendingar skoruðu fjögur góð mörk gegn Maltverjum og juku sjálfstraustið aðeins fyrir lokasprettinn.

Sport
Fréttamynd

Tryggvi var maður leiksins

Tryggvi Guðmundsson var maður leiksins, skoraði eitt mark og lagði upp tvö en hann átti auk þess skalla í stöng og skot í slá. Hér á eftir má sjá mat Fréttablaðsins á frammistöðu leikmanna Íslands í leiknum.

Sport
Fréttamynd

Bowyer þarf fyrir rétt

Lee Bowyer leikmaður Newcastle þarf að mæta fyrir rétt vegna slagsmálanna við samherjann Kieron Dyer en honum var birt stefna þess efnis í dag. Bowyer hefur þegar tekið út þunga refsingu af hendi enska knattspyrnusambandsins en umrætt atvik átti sér stað í leik Newcastle gegn Aston Villa í apríl sl.

Sport
Fréttamynd

Loks sigur hjá Íslandi

Íslenska landsliðið í knattspyrnu vann 4-1 sigur á Möltu í undankeppni HM en leiknum var að ljúka á Laugardalsvellinum. Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Eiður Smári Guðjohnsen skoruðu mörk íslenska liðsins í fyrri hálfleik en Tryggvi Guðmundsson og Veigar Páll Gunnarsson bættu hinum mörkunum við í seinni hálfleik.

Sport
Fréttamynd

Maltverjar minnka muninn

Maltverjar eru að sækja í sig veðrið og hafa minnkað muninn í 2-1 gegn Íslendingum á Laugardalsvelli. Brian Said skoraði á 59. mínútu. Það hefur dofnað mikið yfir íslenska liðinu. Árni Gautur hálfver langskot eftir aukaspyrnu og Brian Said fylgir á eftir og skorar í tómt markið úr markteignum.

Sport
Fréttamynd

Liðið og þjóðin þurfti sigur

Landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen skoraði í þriðja landsleiknum í röð og sitt 15. A-landsliðsmark frá upphafi. „Liðið og þjóðin þurftu sigur og ég vona að fólk hafi skemmt sér vel. Það voru fleiri á vellinum en ég bjóst við og mig langar að þakka fyrir stuðninginn sem við fengum," sagði Eiður Smári.

Sport
Fréttamynd

Ég og Tryggvi hugsum svipað

„Þetta er algjör snilld og hefur verið draumur síðan ég byrjaði fyrst í boltanum. Nú er bara að vona að mörkin verði fleiri." sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson eftir leikinn þegar hann var spurður að því hvernig væri að spila fyrir íslenska landsliðið.

Sport
Fréttamynd

Íran í lokakeppni HM

Íran varð í kvöld önnur þjóðin á eftir Japönum sem hafa tryggt sér sæti í lokakeppni HM í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi næsta sumar þegar lið þeirra sigraði Bahrain 1-0 í Asíuriðli #2. Hundruð þúsindir íbúa landsins þustu út á götur í höfuðborginni Tehran í gleðivímu.

Sport
Fréttamynd

Ánægður með ungu strákanna

„Ég hefði auðvitað viljað sex stig út úr þessum tveimur leikjum núna og það var sárt að tapa fyrir Ungverjunum, en í dag er ég gríðarlega ánægður með þessa ungu stráka sem eru að koma inn í dag og berjast um hvern einasta bolta og gefa ekkert eftir," sagði Eggert Magnússon, formaður KSÍ.

Sport
Fréttamynd

Sigurinn gefur okkur sjálfstraust

„Það er vissulega léttir að vera búnir að klára þennan leik, 4-1 eru góð úrslit og ég bið ekki um meira," sagði Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari eftir sigurleikinn gegn Möltu í gær. „Við leyfðum þeim að komast inn í leikinn á dálitið ódýran hátt, en við vorum betra liðið í dag og verðskulduðum þennan sigur."

Sport
Fréttamynd

Vonandi ekki síðasti leikurinn

Markahrókurinn Tryggvi Guðmundsson varð tíundi leikmaðurinn sem skorar 10 A-landsliðsmörk en hann náði því gegn Möltu í gær. „Ég var búinn að plana það að skora tíunda landsliðsmarkið fyrir löngu, svo maður verður að standa við stóru orðin," sagði Tryggvi eftir leik.

Sport
Fréttamynd

Ég er kominn til að vera

„Það er gott að ná sigri gegn Möltu eftir að hafa aðeins fengið eitt stig úr fyrri leiknum. Það er ansi erfitt að spila gegn svona liðum og þetta minnir á bikarleiki, maður þekkir það heima hvað það er oft erfitt að spila gegn neðri deildar liðum í bikarnum og brjóta þau niður." sagði Grétar Rafn Steinsson.

Sport
Fréttamynd

Línur að skýrast í undankeppni HM

Fjölmargir leikir fóru fram í undankeppni HM í knattspyrnu í kvöld. Hollendingar eru í góðum málum á toppi 1. riðils eftir 4-0 útisigur á Finnum í Helsinki í kvöld. Í riðli 2 eru Evrópumeistarar Grikkja á tæpu vaði en ennþá í séns eftir að þeir töpuðu fyrir Úkraínu á heimavelli en sigurmark gestanna kom í blálokin.

Sport
Fréttamynd

Jol bjartsýnn

Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur ætlar ekki að láta brotthvarf Frank Arnesen til Chelsea hafa áhrif á sig og er bjartsýnn á að liðið geti haldið áfram ótrautt.

Sport
Fréttamynd

Markalaust jafntefli við Möltu

Ísland og Malta gerðu markalaust jafntefli í undankeppni Evrópumóts landsliða U21 árs en leikurinn fór fram á KR-velli. Ísland lék undan sterkum vindi í fyrri hálfleik en tókst ekki að brjóta niður þrjóska vörn gestanna sem áttu ekkert færi í leiknum.

Sport
Fréttamynd

Grótta-ÍA í VISA-bikarnum í kvöld

Í kvöld hefjast 32 liða úrslit VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu með einum leik og það nokkuð athygliðsverðum. Þriðjudeildarlið Gróttu tekur þá á móti Landsbankadeildarliði Skagamanna og hefst leikurinn kl. 19.15 á Gróttuvelli á Valhúsahæð á Seltjarnarnesi.

Sport
Fréttamynd

Markalaust í hálfleik gegn Möltu

Staðan er 0-0 í hálfleik hjá U21 árs landsliðum Íslands og Möltu í undankeppni Evrópumótsins en leikurinn sem hófst kl. 18:00. Leikurinn fer fram á KR-velli vestur í bæ og lék íslenska liðið undan sterkum vindi í fyrri hálfleik. Það verður því á brattann að sækja í síðari hálfleik.

Sport
Fréttamynd

Grótta stríddi ÍA

Landsbankadeildarlið ÍA slapp með skrekkinn og marði sigur á 3. deildarliði Gróttu, 1-2, í 32 liða úrslitum VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu í kvöld en leikið var á Gróttuvelli. Staðan í hálfleik var 0-0 en Skagamenn komust yfir í upphafi síðari hálfleiks. Gróttumenn náðu að jafna metin á 75. mínútu en ÍA skoraði sigurmarkið á lokamínútunum.

Sport
Fréttamynd

Heiðar tæpur vegna veikinda

Ísland mætir Möltu í kvöld í undankeppni HM. Heiðar Helguson gat ekki tekið þátt í leiknum gegn Ungverjalandi sökum leikbanns og óvissa er með þátttöku hans í leiknum í kvöld vegna veikinda. 

Sport
Fréttamynd

Hannes í A-hópinn-Óvíst með Heiðar

Hannes Sigurðsson hefur verið kallaður í A-landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Möltu í undankeppni HM 2006 á Laugardalsvelli á morgun. Hannes á fylla skarð Gylfa Einarssonar sem meiddist í leiknum gegn Ungverjum á laugardag. Þá er ekki víst að að Heiðar Helguson geti leikið með gegn Möltu á morgun.

Sport
Fréttamynd

Synir Glazers í stjórn United

Ameríski auðkýfingurinn Malcom Glazer hefur skipað syni sína þrjá í stjórn Manchester United og í kjölfarið hafa þrír stjórnarmenn félagsins sagt af sér.

Sport
Fréttamynd

Meta Heiðar á tvær milljónir punda

Enska knattspyrnufélagið Watford hefur sett tveggja milljóna punda, eða um 236 milljóna króna, verðmiða á íslenska landsliðsmanninn Heiðar Helguson samkvæmt breska blaðinu <em>The Mirror</em>. Watford hefur þegar hafnað 118 milljóna króna tilboði frá úrvalsdeildarliðinu Sunderland og fyrstu deildarliðinu Sheffield United.

Sport
Fréttamynd

Haukar sigruðu Fjölni

Haukar lögðu Fjölni að velli 4-2 í Grafarvoginum í fyrstu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Pétur Markan skoraði bæði mörk Fjölnis. Hilmar Rafn Emilsson skoraði tvö mörk fyrir Hauka og Kristján Ómar Björnsson og Daníel Einarsson eitt mark hvor. Haukar eru í þriðja sæti með 7 stig.

Sport
Fréttamynd

Ekki hægt að fá fleiri færi í leik

Íslenska 21 árs landsliðið varð að sætta sig við markalaust jafntefli við Möltu á KR-vellinum í gær og jafnteflið er mikill sigur fyrir Möltubúa ef marka má viðbrögð þeirra eftir leik en þeir hafa fengið öll fjögur stigin í riðlinum út úr tveimur leikjum sínum við íslenska liðið.

Sport
Fréttamynd

Leiknir lagði Selfoss

Tveir leikir voru í annari deild karla í gær. Njarðvík og Afturelding skildu jöfn, 1-1, og Leiknir Reykjavík vann Selfoss með einu marki gegn engu.

Sport
Fréttamynd

Barcelona ekki á eftir Henry

Joan Laporta, forseti Barcelona, hefur tekið af allan vafa og segir félagið ekki vera á höttunum eftir franska framherjanum Thierry Henry hjá Arsenal.

Sport