
Innlent

Exista leiddi hækkanahrinu
Gengi hlutabréfa í Existu hækkaði um 4,24 prósent í Kauphöllinni í dag og stendur í 23,35 krónum á hlut. Þetta var mesta hækkunin í Kauphöllinni en svipuðu máli gegndi um öll hin fjárfestingafélögin og bankana en gengi þeirra hækkað á bilinu 0,65 prósent til 3,94 prósenta, mest í Kaupþingi. Úrvalsvísitalan rauk upp um 2,75 prósent á sama tíma.

Kaupþing hækkar um þrjú prósent
Gengi bréfa í Kaupþingi rauk upp um rúm þrjú prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag og leiðir bankinn hækkun Úrvalsvísitölunnar. Á eftir fylgja Exista, sem hefur hækkað um rúm 2,3 prósent, og fleiri bankar og fjárfestingafélög. Einungis gengi bréfa í FL Group hefur haldið áfram að lækka.

Föroya banki undir útboðsgengi
Gengi hlutabréfa í hinum færeyska Föroya banka hefur lækkað um 1,58 prósent frá upphafi viðskipta í Kauphöll Íslands í dag. Gengið stendur nú í 187 krónum á hlut sem er tveimur krónum undir útboðsgengi með bréf í bankanum 21. júní síðastliðinn.

Herjólfur úr slipp í dag
Viðgerðir á Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi eru á undan áætlun og verður henni siglt úr slipp í Hafnarfirði síðdegis í dag. Áætlunarferðir hefjast svo aftur á hádegi á morgun.

FL Group lækkaði um 26 milljarða
Gengi hlutabréfa í FL Group jafnaði sig lítillega við lokun viðskipta í Kauphöllinni í dag eftir 18,18 prósenta fall við upphaf dags. Lægst fór gengið í 15,65 krónur á hlut en endaði í 16,35 krónum. Lækkunin kemur í kjölfar mikilla hræringa innan veggja fyrirtækisins, svosem með brotthvarfi Hannesar Smárasonar, forstjóra FL Group, og hræringum með hlutabréf félagsins. Gengi annarra félaga féll sömuleiðis hratt.

Bresk eign Baugs og FL Group niður um sextán prósent
Gengi hlutabréfa í bresku herrafatakeðjunni Moss Bros féll um rúm sextán prósent við upphaf viðskiptadagsins í bresku kauphöllinni í dag eftir að fyrirtækið greindi frá því að ólíklegt væri að félagið næði markmiðum sínum á árinu. Unity Investments, félag í eigu Baugs, FL Group og breska fjárfestisins Kevin Stanfords, á nærri 30 prósenta hlut í keðjunni.

FL Group niður um 18 prósent við opnun markaða
Gengi hlutabréfa í FL Group féll um 18,18 prósent skömmu eftir upphaf viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag. Þetta er ekkert einsdæmi því SPRON féll á sama tíma um rúm átta prósent, Exista um tæp sjö og Glitnir um tæp fjögur prósent.

Gengi FL Group hefur fallið um tæp 6%
Gengi hlutabréfa í FL Group stendur nú í 19,5 og hefur því lækkað um 5,98 prósent í morgun. Lægst fór það hins vegar í 19,3 krónur í síðustu viku. Verðmæti félagsins er nú 183,9 milljarðar, var í morgun 194.1 milljarðar og hefur því rýrnað um 10,2 milljarða frá því í morgun. Gengi fjárfestingafyrirtækja og banka hefur lækkað í dag að SPRON, Glitni og Eik banka undanskildum.

Hlutafjárútboði Marel lokið
Lokuðu útboði Marel Food Systems á nýjum hlutum lauk á föstudag en nýir hlutir svara til tæplega átta prósenta heildarhlutafjár Marel. Lífeyrissjóðir tryggðu sér tvo þriðju hluta af nýja hlutafénu og afgangurinn féll öðrum fjárfestum í skaut.

Framtíð FL Group rædd á fundi á Túngötunni
Nýlokið er fundi í höfuðstöðvum Baugs Group á Túngötunni. Hann var á milli þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, stjórnarformanns FL Group, Hannesar Smárasonar, forstjóra félagsins og Jóns Sigurðssonar aðstoðarforstjóra.

Drengurinn sem lést
Drengurinn sem lét lífið í bílslysinu í Keflavík á föstudaginn hét Kristinn Veigar Sigurðsson.

Missaga um skemmdir á bíl sínum
Pólverjinn sem er í haldi lögreglunnar vegna ákeyrslunnar í Keflavík á föstudag, hefur orðið missaga við yfirheyrslur hjá lögreglunni, samkvæmt heimildum Vísis.

Úrskurðaður í gæsluvarðhald
Maðurinn sem grunaður er um að hafa ekið á Kristinn Veigar Sigurðsson, fjögurra ára, í Keflavík á föstudag hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til næsta fimmtudags.

Ísing á götum Reykjavíkur
Lögreglan varar við því að það er ísing víða á götum Reykjavíkur. Ökumenn virðast ekki átta sig á að þar sem er einhver raki getur myndast ísing við aðstæður eins og eru í dag.

Bæjarstjóri harmi sleginn -unnið að úrbótum
Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ er harmi sleginn yfir slysinu sem varð í bænum síðastliðinn föstudag. Litli drengurinn sem þar varð fyrir bíl er nú látinn.

Víða hálka á vegum og él
Það eru hálkublettir á Hellisheiði en annars eru vegir víðast auðir á Suðurlandi. Stífur vindur er á Kjalarnesi.

Klessur og útafakstur
Sex umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt.

Engin játning í ákeyrslumáli
Yfirheyrslum er enn ekki lokið yfir manninum sem var handtekinn í gær vegna ákerslunnar á fjögurra ára dreng í Reykjanesbæ í fyrradag.

Valgerður Sverrisdóttir fylgist með kosningum í Rússlandi
Valgerður Sverrisdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins er stödd í Rússlandi þar sem hún verður við eftirlit í þingkosningunum sem fram fara á morgun.

Éljagangur og ófærð
Það er best að aka varlega um landið í dag. Það eru hálkublettir á Hellisheiði og í Þrengslum en annars eru vegir víðast auðir á Suðurlandi.

Hvað vissu yfirvöld um Malakauskas og hvenær vissu þau það ?
Yfirvöld vilja ekki upplýsa hvort þau vissu um komu líkfundarmannsins Tomasar Malakauskas til Íslands. Hann er í endurkomubanni en kom hingað á vegabréfi með eftirnafni konu sinnar í byrjun september.

Flottar löggur fyrir norðan
Í dag tók lögreglan í umdæmi sýslumannsins á Akureyri í notkun nýju lögreglubúningana.

Álftnesingar styðja grænan miðbæ
Meirihluti íbúa Álftaness styður nýja skipulagstillögu um miðsvæði Álftaness sem nefnd hefur verið „Grænn miðbær".

Margrét Pála fær Barnamenningarverðlaun
Margrét Pála Ólafsdóttir, skólastjóri og höfundur Hjallastefnunnar, hlýtur Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2007.

Segir Sverri Hermannsson hafa logið í Mannamáli
Halldór Guðbjarnarson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans segir í grein í Morgunblaðinu í dag að Sverrir Hermannsson fyrrverandi bankastjóri Landsbankans hafi farið með lygar í þætti Sigmundar Ernis Rúnassonar Mannamál.

Þota í innanlandsflugi
Innanlandsflug hófst að nýju í morgun eftir að hafa legið niðri frá því í fyrradag vegna illviðris.

SPRON og Exista ruku upp
Gengi bréfa í SPRON hækkaði um rúm fimm prósent í Kauphöllinni í dag og fór í 11,44 krónur á hlut eftir að hafa staðið nærri 10 krónum fyrr í vikunni, sem er lægsta gengi félagsins síðan það var skráð á markað í október. Gengið er engu að síður rúmum fimmtíu prósentum undir upphafsgengi sínu.

Exista og Föroya Bank hækka um 3%
Gengi bréfa í bönkum og fjármálafyrirtækjum hefur hækkað nokkuð við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag og fór Úrvalsvísitalan yfir 7.000 stigin á ný . Bréf í Föroya banka og Existu hafa hækkað mest, eða um þrjú prósent. SPRON, Icelandair, Glitnir, Landsbankinn og Kaupþing fylgja á eftir en gengi þeirra hefur hækkað á bilinu 1,5 til 2,5 prósent.

FL Group rauk upp í Kauphöllinni
Gengi hlutabréfa í FL Group og SPRON rauk upp um tæp fjögur prósent í Kauphöllinni í dag í kjölfar talsverðrar lækkunar upp á síðkastið. Gengi flestra fyrirtækja hækkaði. Á sama tíma lækkaði gengi allra færeysku félaganna auk þess sem gengi 365 og Marels lækkaði í dag. Mest var lækkunin á gengi Föroya banka sem fór niður um 2,91 prósent.

Ekkert gert nema Aron Pálmi kvarti formlega
Bandaríska sendiráðið segir að engin formleg kvörtun hafi borist frá Aroni Pálma Ágústssyni yfir framkomu starfsmanns sendiráðsins við sig.