
Lög og regla

Ungur ökumaður lést
Tæplega tvítugur ökumaður lést og þrír jafnaldrar hans slösuðust alvarlega þegar bíll sem þeir voru í lenti í árekstri við jeppa sem kom úr gagnstæðri átt á Suðurlandsvegi á sjöunda tímanum í gærmorgun. Farþegarnir þrír eru þó ekki taldir í lífshættu.
Gefa út falsaða reikninga fyrir fé
Dæmi eru um að menn taki þóknun fyrir að gefa út falsaða launareikninga í þeim tilgangi að leika á skattayfirvöld.

Lést í slysi á Suðurlandsvegi
Banaslys varð á Suðurlandsvegi við Þrengslaafleggjarann á sjöunda tímanum í morgun þegar fólksbíll og jeppi rákust saman. Annar bíllinn var á leið austur eftir Suðurlandsvegi en hinn á leið inn á Suðurlandsveg af Þrengslavegi. Lögreglan á Selfossi telur að annar ökumaðurinn hafi misst stjórn á bílnum í beygjunni og keyrt í veg fyrir hinn, en talsverð hálka var á veginum.

Alvarlegt slys í Þrengslunum
Alvarlegt umferðarslys varð í Þrengslunum um sjöleytið í morgun. Að sögn lögreglunnar á Selfossi skullu tvær bifreiðar saman en tíu manns voru í bílunum, fimm í hvorum. Margir slösuðust, misalvarlega þó, en allir voru fluttir á slysadeild í Reykjavík. Lögreglan getur ekki gefið frekari upplýsingar um slysið eða ástand fólksins að svo stöddu. Bílarnir báðir eru gerónýtir.

Leituðu sannana fyrir skattsvikum
Starfsmenn Skattrannsóknastjóra lögðu hald á mikið magn bókhaldsgagna og tölvubúnað þegar þeir gerðu húsleit á fjölda vínveitingahúsa í Reykjavík á föstudags- og fimmtudagskvöld. Flest vínveitingahúsanna, en þó ekki öll, eru í miðbænum.

Skyndihúsleit á veitingastöðum
Fíkniefnalögreglan og fulltrúar skattrannsóknarstjóra gerðu fyrirvaralausa húsleit á vel á annan tug vínveitingastaða á höfuðborgarsvæðinu í gær og fyrradag. Almennir lögregluþjónar tóku þátt í aðgerðunum og voru embættismönnum skattrannsóknarstjóra til halds og trausts, bæði til að koma í veg fyrir hugsanlega mótspyrnu og til að tryggja að haldlagning gagna gæti farið fram.

Með ólæti við skemmtistað
Drukkinn karlmaður var handtekinn vegna óláta við skemmtistað á Hafnargötunni í Keflavík í nótt. Lögreglumenn handtóku manninn og létu hann sofa úr sér vímuna og æsinginn í fangaklefa á lögreglustöðinni. Lögreglan í Reykjavík segir nóttina hafa verið rólega í miðborginni. Þrír ökumenn voru þó teknir grunaður um ölvun við akstur nú í morgunsárið.

Grunur um skattsvik á stöðunum
Skattrannsóknarstjóri gerði fyrirvaralausa húsleit hjá hátt í tuttugu vínveitingastöðum í gær og í fyrradag vegna rökstudds gruns um stórfelld skattsvik og aðra glæpi. Þetta er umfangsmesta aðgerð embættisins síðan húsleit var gerð hjá olíufélögunum.

Segir Sri hafa hótað sér
Hákon Eydal segir Sri Rahmawati og fjölskyldu hennar hafa hótað sér og kúgað sig mánuðum saman áður en hann sturlaðist af bræði og banaði henni í fyrrasumar með kúbeini. Réttarhöld í málinu fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Orð skulu standa
Ríkisskattstjóri var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag af kröfum manns sem vildi að ummæli hans um sig yrðu dæmd dauð og ómerk. Maðurinn krafðist fjögurra milljóna króna í skaðabætur.
Flýði brennandi bíl
Ökumaður stakk af eftir að hafa ekið utan í tvo staura á Hverfisgötu rétt fyrir klukkan níu í morgun. Eldur kom upp í bílnum sem var fljótt alelda. Slökkviliðið var kvatt á staðinn og tók nokkrar mínútur að ráða niðurlögum eldsins. Vegfarendur gátu gefið lögreglu nokkuð góða lýsingu á ökumanninum sem hljóp af vettvangi og er hans leitað.
Lést í bílslysi nærri Kópaskeri
Karlmaður um tvítugt lét lífið í hörðum árekstri tveggja fólksbíla á malarvegi skammt frá Kópaskeri síðdegis í gær. Tveir ungir menn voru í hinum bílnum og slasaðist annar þeirra talsvert. Maðurinn sem lést var í bílbelti og var á leiðinni norður en bíllinn sem hann lenti í árekstri við var á leiðinni suður. Mennirnir sem slösuðust hlutu meðal annars áverka á hálsi og hrygg.

Segir Sri hafa beitt sig fjárkúgun
Saksóknari krefst 16 ára fangelsisdóms yfir Hákoni Eydal sem banaði Sri Rahmawati í fyrrasumar. Geðlæknir segist ekki merkja neina iðrun hjá Hákoni sem lýsti fyrir dómurum í morgun að Sri hefði ítrekað reynt að kúga út úr sér fé, bannað sér að umgangast lítið barn þeirra og hótað að myrða það. Hákon segist hafa verið sturlaður þegar hann drap Sri.

Sagði Hákon ekki hafa sýnt iðrun
Vitnaleiðslur standa yfir í réttarhöldunum yfir Hákoni Eydal vegna morðsins á Sri Ramawhati í fyrrasumar. Fimm vitni komu fyrir dóminn, þar á meðal geðlæknir sem fullyrti að Hákon hefði enga iðrun sýnt eftir verknaðinn og að honum hefði ekki létt eftir að hafa viðurkennt hann.
Tekinn með amfetamín
Lögreglan á Selfossi hafði afskipti af ölvuðum manni á dansleik í fyrrinótt og spurði hann hvort hún mætti leita á honum og leyfði hann það. Fannst á honum lítið magn af amfetamíni og var hann því handtekinn og gisti síðan fangageymslur.
Vélsleðamaður slasaðist
Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út um hádegi í gær eftir að tilkynnt hafði verið um að breskur ferðamaður hefði lent í vélsleðaslysi skammt frá Dettifossi.

Bílbruni á Hverfisgötu
Vegfarandi sem átti leið um Hverfisgötuna í gærmorgun sá að kviknað hafði í bíl sem lá upp við vegkantinn og tilkynnti hann það Slökkviliðinu sem kom á vettvang innan fárra mínútna.

Bar fyrir sig stundarbrjálæði
"Ég iðrast gerða minna og vildi að þetta hefði aldrei átt sér stað," sagði Hákon Eydal fyrir dómi í Héraðsdómi Reykjavíkur en þar fór fram í gær aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn honum fyrir morðið á Sri Rhamawati í júlí síðastliðnum.

Ók of nálægt lögreglu
Maður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur til að greiða fimm þúsund krónur í sekt og 80 þúsund krónur í málskostnað fyrir að hafa ekið of nálægt næsta bíl á undan. Bíllinn sem maðurinn ók á eftir var lögreglubíll og segja lögreglumennirnir að þeir hafi ekki séð ljós bílsins í baksýnisspeglinum á löngum kafla.

Gripinn með fíkniefni á Selfossi
Lögreglan á Selfossi handtók mann á Selfossi í nótt fyrir að hafa fíkniefni í fórum sínum. Maðurinn hafði verið á dansleik á Hótel Selfossi og fannst lítilræði af amfetamíni og hassi í fórum hans. Lögreglan segir að hann hafi verið ölvaður og verði yfirheyrður síðar í dag.

Lögregla stöðvar glæfraför
Lögreglan á Blönduósi stöðvaði í föstudag hraðferð þriggja Spánverja sem hafa ferðast um landið síðustu daga á jeppling.

Fer fram á 16 ára fangelsi
Saksóknari sem flutti mál gegn Hákoni Eydal í dag krafðist þess að hann yrði dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að hafa banað Sri Rahmawati, fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður. Hákon hefur játað á sig morðið en hann segir Sri og fjölskyldu hennar hafa hótað sér og kúgað sig mánuðum saman áður en hann sturlaðist úr bræði og banaði henni.

Þrír dæmdir fyrir líkamsárásir
Þrír menn um tvítugt voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdir í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárásir. Mennirnir voru sakfelldir fyrir að ráðast að tveimur mönnum í miðbæ Reykjavíkur með spörkum og höggum. Annar þolendanna nefbrotnaði og marðist illa en hinn hlaut heilahristing og tognaði á kjálka, auk annarra áverka.
Gæsluvarðhald framlengt
Gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum var framlengt í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Mennirnir eru báðir grunaðir um aðild að stórum fíkniefnamálum.
Fyrrum framkvæmdastjóri dæmdur
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Karli Benediktssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra lífeyrissjóðsins Framsýnar. Karl er dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa misnotað aðstöðu sína og stefnt fé sjóðsins í stórfellda hættu.
Eldur í íbúðarhúsi á Kirkjubóli
Eldur kviknaði í íbúðarhúsinu á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi. Slökkvilið Hólmavíkur var kallað út og tókst að slökkva eldinn á skömmum tíma. Talsverðar skemmdir urðu á innanstokksmunum vegna sóts og vatns.
Tilefnislausar árásir
Þrír ungir menn voru í gær dæmdir til fangelsisvistar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa tvívegis sömu nóttina framið tilefnislausar líkamsárásir í miðbæ Reykjavíkur.
Umferðaróhapp endaði í þremur
Þrír árekstrar urðu á Kringlumýrarbraut við Nesti um hálf átta leytið í gærkvöldi. Tveir tveggja bíla árekstrar og einn þriggja bíla.

Þyngstu refsingar krafist
Í dag hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur aðalmeðferð í máli ríkissaksóknara gegn Hákoni Eydal, banamanni Sri Rahmawati. Ákært er fyrir manndráp af ásetningi og krafist þyngstu refsingar sem íslensk lög leyfa. Enn fremur verður gerð krafa um 22 milljónir í skaðabætur fyrir þrjú börn Sri.

Hæstiréttur felldi niður refsingu
Hæstiréttur felldi niður refsingu gegn manni sem hafði, að mati héraðsdóms, gerst sekur um alvarlega líkamsárás. Með þessu snéri Hæstiréttur við dómi Héraðsdóms Reykjaness sem hafði dæmt manninn í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.