Lög og regla
Glerhált fyrir austan
Glerhált var í umdæmi lögreglunnar á Egilsstöðum í gær og mikið var um útafakstur sem hafi þó í flestum tilfellum verið minniháttar og ekki komið beint við sögu lögreglunnar.

Geðsjúkur fangi í einangrun
Færa þurfti mjög geðsjúkan fanga frá Sogni í einangrun á Litla - Hrauni, þar sem hann dvaldi í átta daga. Fangelsismálastofnun segir að erfitt sé að fá fanga vistaða á geðdeildum. Þeir hafi jafnvel verið sendir til baka þegar vistun hafi verið reynd. </font /></b />

Gæsluvarðhald til 3. desember
Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald yfir karlmanni vegna tilraunar til stórfellds fíkniefnasmygls. Maðurinn tengist stóru máli sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum að undanförnu og snýst um umfangsmikið smygl á amfetamíni og LSD meðal annars. Hæstiréttur staðfestir að maðurinn skuli vera í gæslu allt til 3. desember.
Fartölvu stolið
Fartölvu var stolið úr bíl sem stóð við sundlaugina við Glerárskóla á Akureyri.

Osta- og tímaritaþjófur fær dóm
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag rúmlega fertugan karlmanna í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að stela oststykki fyrir 286 krónur og tímariti fyrir 1.425 krónur. Dómurinn er skilorðsbundinn. Maðurinn á að baki nokkurn sakaferil og rauf með tímarits- og ostaþjófnaðinum skilorð og var það dæmt með.
Komst ekki hjá sektinni
Fertugur karlmaður var, í Héraðsdómi Reykjaness, dæmdur til að greiða 50 þúsund króna sekt í ríkissjóð, fyrir hraðakstur.

Kærði viku eftir árásina
Í dómnum er látið að því liggja að kona hafi unnið til áverkanna," segir Jónína Bjartmarz, alþingismaður og lögfræðingur, um dóm sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku þar sem refsingu yfir manni vegna heimilisofbeldis var frestað. Guðmundur L. Jóhannesson, héraðsdómari, dæmdi málið.

Refsilaust að kýla tönn úr löggu
Dómari hjá Héraðsdómi Reykjaness komst að þeirri niðurstöðu að ekki bæri að fangelsa mann sem kýldi lögregluþjón í Keflavík, þannig að hann missti tönn. Lögreglumaðurinn segir ótrúlegt að lögreglan sé ekki betur varin en þetta; ódýrara sé að sparka í hund en lögregluþjóna. Hann fær enn höfuðverkjaköst.

Bílþjófur kominn í fangelsi
Maður fæddur árið 1982 var handtekinn í fyrrakvöld í tengslum við rannsókn fjölda bílþjófnaða sem lögreglan í Reykjavík og lögreglan í Kópavogi unnu saman að.
Stal páskaeggi og átti hass
Í Héraðsdómi Reykjavíkur var nítján ára piltur dæmdur í þriggja mánaða skilorðbundið fangelsi og sextán ára piltur dæmdur í tveggja mánaða skilorðbundið fangelsi fyrir þjófnaðarbrot. Mál þriðja piltsins var skilið frá þessu máli.
Skilorð fyrir ýmis brot
Rúmlega tvítugur maður var, í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir, brot gegn lögreglulögum, fíkniefnabrot og vopnalagabrot.

Afneitun mæðra algeng
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir almennt að þegar brotið er kynferðislega gegn börnum geti það oft valdið svo miklum sársauka hjá mæðrum barnanna að þær bregðist við með afneitun. Slíkt segir hann geta komið illa út gagnvart barninu sem sé skelfilegt en jafnframt segir hann að hægt sé að vinna með slíka hluti.

Tveir fyrir dóm vegna bankaráns
Tuttugu og eins árs maður hefur játað fyrir dómi að hafa framið vopnað bankarán í útibúi Búnaðarbanka Íslands á Vesturgötu í Reykjavík 17. nóvember í fyrra. Aðalmeðferð málsins var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Braut gegn fósturdóttur sinni
Maður var í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa haft samfarir og önnur kynferðismök við fósturdóttur sína. Hann var jafnframt sakfelldur fyrir að hafa káfað á vinkonu hennar og fyrir vörslu barnakláms.
Eldur í Ósk KE
"Við vorum ný hættir að draga og vorum á heimleið þegar við sáum þá veifa til okkar," sagði Sverrir Þór Jónsson, á Brynhildi HF-83, þegar hann var á leið í land með Ósk KE-5 í togi eftir að kviknaði í bátnum um ellefu sjómílur norðvestur af Sandgerði.
Fíkniefnaneytandi ók undir áhrifum
Ökumaður var stöðvaður á Dalvík í fyrrinótt, grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna
Undir áhrifum daginn eftir
Ökumaður var tekinn í Hafnarfirði um klukkan tvö í gær grunaður um ölvun við akstur

Erill hjá lögreglu á Ísafirði
Erill var hjá lögreglunni á Ísafirði í gærkvöldi og í nótt, einkum í tengslum við dansleik sem einstaklingar héldu á Suðureyri. Tilkynnt var um eina líkamsárás en kæra hefur ekki borist.
Hljóðkútur inn um framrúðu
Hljóðkútur kastaðist af vagni vörubifreiðar og inn um glugga fólksbíls skammt norður af Borgarnesi um miðjan dag í gær.

Ekkert annað en vísir að her
Það er alltaf slæmt að heyra af mannfalli og slysförum hvort sem það eru Íslendingar eða útlendingar sem eiga í hlut," segir Stefán Pálsson, formaður félags herstöðvaandstæðinga, um sjálfsmorðsárásina í Kabúl þar sem þrír Íslendingar særðust.

Varð alvarleikinn ljós í fréttum
Eyrún Björnsdóttir, eiginkona Stefáns Gunnarssonar, íslenska friðargæsluliðans sem slasaðist í Kabúl á laugardag, segist hafa það þokkalegt eftir að hún náði í Stefán og gat talað við hann. Sprengjuárásin var á laugardagsmorgun en hún náði ekki tali af honum fyrr en í fyrrinótt.
Rann út á gatnamótin
Ekki urðu meiðsli á fólki við árekstur tveggja bíla á mótum Dalsbrautar og Borgarbrautar á Akureyri í gærdag.

Stefán áfram á sjúkrahúsi
Stefán Gunnarsson, friðargæsluliði í Afganistan, fékk sprengjubrot í fót og neðri hluta líkamans við sjálfsmorðsárásina í Kabúl í Afganistan á laugardag. Arnór Sigurjónsson, skrifstofustjóri Íslensku friðargæslunnar, segir Stefán verða áfram á sjúkrahúsi. Ellefu ára afgönsk stúlka og 23 ára bandarísk kona létust í sjálfsmorðsárásinni.

Erill hjá Keflavíkurlögreglu
Lögreglan í Keflavík handtók fyrir stundu karlmann í bíl í bænum með ætluð fíkniefni og eru yfirheyrslur að hefjast yfir honum. Talið er að hann hafi verið með eitt gramm af amfetamíni í fórum sínum og einhverja sveppi.
Annir hjá Kópavogslöggunni
Þrjú fíkniefnamál komu upp í Kópavogi aðfaranótt laugardags. Lögregla stöðvaði annars vegar ökumann og hins vegar tvo gangandi vegfarendur í annarlegu ástandi. Fundust bæði hass og amfetamín við leit á viðkomandi einstaklingum.
Nissan vinsælastur meðal bílaþjófa
Haukur Ásmundsson, aðalvarðstjóri í Reykjavík, segir mest vera stolið af Nissan- og Subaru-bílum. Frá því klukkan fimm á föstudag til klukkan tvö í gær var sex bílum stolið í Reykjavík, þar af þremur Nissan, tveimur Subaru og einum Saab.

Vill fá Steinar heim sem fyrst
"Það var hræðilegt að heyra þessar fréttir. Mér finnst ég svo lítils megnug að geta ekkert gert til að hjálpa honum," segir Soffía Hrönn Jakobsdóttir, eiginkona Steinars Arnar Magnússonar, annars íslensku friðargæsluliðanna sem særðust í sprengjuárás í Kabúl í Afganistan í gær.

Hefur séð áverka á líkama og sál
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, segir að þó hann hafi ekki séð för eftir bora í hnéskeljum á fólki hafi hann séð áverka á fólki sem kemur úr fíkniefnaheiminum, þar á meðal ör eftir eggvopn og nefbrot eftir barsmíðar. Hann segir ofbeldisverk og hörkuna í þessum heimi hafa aukist með aukinni neyslu örvandi vímuefna.
Verslun truflaði umferð
Það jaðraði við umferðaröngþveiti í Stykkishólmi þegar Bónus opnaði sína 22. verslun og þá þrettándu á landsbyggðinni á slaginu tíu á laugardagsmorguninn. Að sögn lögreglu fylltist bærinn af kaupglöðum gestum.

Rannsókn lokið í Hagamelsmálinu
Lögreglan í Reykjavík hefur lokið rannsókn á því þegar móðir varð dóttur sinni að bana á heimili þeirra við Hagamel í sumar. Dóttirin var á tólfta ári og var henni banað þar sem hún lá í rúmi sínu og eldri bróðir hennar særður.