
Erlent
Umbótum verði hraðað
Leiðtogar Evrópusambandsins samþykktu á fundi sínum í Brussel í gær að styðja áform Rúmena og Búlgara um að ganga í sambandið um næstu áramót, en þeir áminntu stjórnvöld í löndunum tveimur um að hraða umbótum sem þau hafa skuldbundið sig til að hrinda í framkvæmd áður en af aðildinni verður.

Eþíópíski herinn við landamæri Sómalíu
Líklegt þykir að herinn sé kominn til að vega á móti íslamistum og til varnar bráðabirgðastjórn landsins. Íslamistarnir vinna hvern sigurinn á fætur öðrum og hafa stökkt tveimur stríðsherrum á flótta.

Kúrdasjónvarp veldur deilum
Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, er hneykslaður á því að 56 tyrkneskir borgar- og bæjarstjórar, sem sendu honum bréf, skuli nú af þeim sökum sæta sakarannsókn af hálfu yfirvalda í Tyrklandi.

Synti um 1.600 kílómetra leið
Vísindamenn í Alaska ráku upp stór augu á dögunum þegar hvíthvalshræ fannst í þarlendri á, um 1.600 kílómetrum frá náttúrulegum dvalarstað tegundarinnar. Þeir telja ólíklegt að hræinu hafi verið komið þangað af mannavöldum og dettur helst í hug að hvalurinn, sem mældist tveir og hálfur metri á lengd, hafi synt upp ána í leit að mat en mjög óalgengt er að hvalir sem þessir syndi svo langt frá heimaslóðum sínum. Útivistarmenn á kanóum fundu hræið, en farið var með það á safn þar sem það verður úrbeinað og beinagrindin höfð til sýnis.
Grét og baðst afsökunar
Með tárin í augunum hefur Hagamaðurinn, Niklas Lindgren, beðið þrjú af sex fórnarlömbum sínum afsökunar á að hafa ráðist á þau. Í einhverjum tilfellum hefur hann brostið í grát. Hagamaðurinn hefur viðurkennt að hafa ráðist á sex konur og er ákærður fyrir það.

Íranar eru jákvæðir
Vonir glæddust um lausn á kjarnorkudeilunni við Írana vegna yfirlýsinga um að þeir vilji skoða sáttatilboð Vesturveldanna af mikilli alvöru. Fregnir af eldflaugatilraunum Norður-Kóreumanna vekja hins vegar talsverðan ugg

Sonur síðasta konungs Ítalíu handtekinn
Ítalska lögreglan handtók í gær Viktor Emmanuel, son Umberto annars, síðasta konungs Ítalíu. Emmanuel er grunaður um að hafa tekið þátt í skipulagðri glæpastarfsemi sem talin er teygja anga sína víða um lönd, meðal annars á sviði vændis.

Leiðtogi aðskilnaðarsinna í Tsjetsjeníu felldur
Tsjetsjenski stjórnarherinn felldi í morgun Abdul-Kalim Saidulajeff, leiðtoga aðskilnaðarsinna í landinu, í bænum Argun, skammt austur af höfuðborginni Grosní

N-Kóreumenn prófa eldflaug um helgina
Norður-Kóreumenn hyggjast um helgina skjóta á loft langdrægri tilraunaeldflaug sem getur borið kjarnaodda. Eldflaugin er af tegundinni Taepodong-2 og getur dregið sex þúsund kílómetra, eða allt til borga á vesturströnd Bandaríkjanna.

Eþíópískt herlið ræðst inn í Sómalíu vegna skæruliða
Eþíópískt herlið réðst inn í Sómalíu morgun eftir að ljóst varð að íslamskir skæruliðar væru komnir í seilingarfjarlægð við borgina Baidoa, þar sem sómalska bráðabirgðastjórnin hefur aðsetur.

Ekki virðist meirihluti fyrir hvalveiðum
Ríki sem hlynnt eru nýtingu hvalastofna virðast ekki í meirihluta á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins, þvert á það sem spáð hafði verið. Í gær höfðu friðunarsinnar betur í tveimur atkvæðagreiðslum á fundinum sem fram fer í karabíska eyríkinu Sankti Kristófer og Nevis.

Tugir liggja í valnum eftir átök morgunsins
Í það minnsta 37 hafa fallið í heiftarlegum átökum stjórnarhersins á Srí Lanka og Tamíl-tígra í morgun. Formælandi ríkisstjórnarinnar segir að ákveðið hafi verið að ráðast til atlögu gegn Tamílum eftir að 64 borgarar létu lífið í fyrradag þegar rúta sem þeir voru í ók utan í jarðsprengju sem tígrarnir höfðu komið fyrir.

Smyglaði sprengiefni hugsanlega í skóm sínum
Maður er grunaður um að hafa borið sprengiefni í skóm sínum inn til föstudagsbæna í Buratha-moskunni í Norður-Bagdad í dag. Í það minnsta 11 létust og 25 særðust þegar hann sprengdi sig í loft upp.

Stjórnarskrársáttmálinn saltaður
Engin niðurstaða fékkst á leiðtogafundi Evrópusambandsins, sem fram fer í Brussel, um hvað gera skuli við umdeildan stjórnarskrársáttmála þess.

Þrjátíu ár liðin frá uppþotunum í Soweto í Suður Afríku
Þrjátíu ár eru liðin frá uppþotunum í Soweto í Suður Afríku sem urðu kveikjan að andstöðu við aðskilnaðarstefnuna sem síðan leið undir lok árið 1991. Þeirra var minnst með fjölmennri göngu um götur borgarinnar í dag.

Þrjátíu ár liðin frá uppþotunum í Soweto í Suður-Afríku
Þrjátíu ár eru liðin frá uppþotunum í Soweto í Suður Afríku sem urðu kveikjan að almennri uppreisn gegn aðskilnaðarstefnunni sem leið undir lok árið 1991. Þeirra var minnst með fjölmennri göngu um götur borgarinnar í dag.

Slóvenar taka upp evru á næsta ári
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) hefur samþykkt að leyfa Slóveníu að ganga í myntbandalag sambandsins og taka upp evru sem gjaldmiðil í janúar á næsta ári. Slóvenía verður 13. landið á evrusvæðinu.

Stjórnarskrá ESB bíður til 2008
Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna samþykktu í Brussel í Belgíu í morgun að styðja áætlun um að ríki og alþjóðlegar stofnanir tryggi Palestínumönnum fjárstuðning, en sniðgangi um leið heimastjórn Hamas-liða. Leiðtogarnir hafa einnig gefið sér frest til ársins 2008 til að taka ákörðun um framtíð stjórnarskrár sambandsins.

NATO kemur ekki að málinu nema viðræður sigli í strand
NATO mun ekki taka á varnarmálum Íslands nema viðræður Íslendinga og Bandaríkjamanna sigli í strand. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var í morgun í kjölfar fundar Jaap De Hoop Schaffer, framkvæmdastjóra NATO, með Geir Haarde forsætisráðherra og Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra.

Mannskæð gassprenging í Moskvu
Að minnsta kosti tveir létu lífið og sex slösuðust þegar gassprenging varð í fjölbýlishúsi í Moskvu í morgun. Nokkrir veggir hússins hrundu við sprenginguna. 17 slökkvubílar komu þegar á vettvang og 9 björgunarsveitarhópar leita nú í rústum hússins af einhverjum sem þar kunna að liggja.

Mikil hækkun á hlutabréfamörkuðum
Gengi hlutabréfa hækkaði um allt að 2,8 prósent á mörkuðum í Bandaríkjunum og í Evrópu í gær í kjölfar þess að Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, kvaddi niður fréttir þess efnis að verðbólgudraugurinn væri á leiðinni vestra.

Batamerki síamstvíburastúlkna
Síamstvíburastúlkurnar sem aðskildar voru á barnaspítalanum í Los Angeles í Bandaríkjunum eru farnar að sýna merki um bata. Læknar eru bjartsýnir á að bati stúlknanna muni ganga að óskum. Stúlkurnar gengust undir tólf tíma aðgerð í fyrradag og í gær og þótti aðgerðin heppanst vel. Systurnar voru fastar saman frá neðra brjóstholi niður að mjaðmagrind. Aðgerðin þótti einstaklega flókin þar sem endurskapa þurfti mörg mikilvæg líffæri en önnur stúlknanna var aðeins með eitt nýra.
Möguleg stökkbreyting fuglaflensuveirunnar
Nýjasta dæmi fuglaflensusmits í mönnum í Kína bendir til þess að H5N1 veiran hafi stökkbreyst. Veiran virðist nú vera jafn smitandi í heitu veðri og í köldu að sögn heilbrigðisráðherra Hong Kong. H5N1 veirustofninn þrífst best í köldum veðrum á norðurhveli jarðar en í gær bárust fréttir af smiti 31 árs vörubílstjóra. Einnig virðist vera hægt að smitast af fuglaflensunni af fuglum sem sýna engin einkenni smits. Rannsóknir á fuglum á mörkuðum í Kína sem taldir voru heilbrigðir sýndu að um eitt prósent þeirra voru smitaðir af fuglaflensu.

Tveir menn finnast látnir við Merapi-fjall
Tveir menn fundust látnir við rætur eldfjallsins Merapi á eyjunni Jövu í Indónesíu í morgun. Mennirnir höfðu leitað skjóls í hálfniðurgröfnu skýli sem hafði grafist undir möl, grjóti og hrauni. Mennirnir létust af völdum hita og var annar mannanna illa brunninn af völdum gufu. Skýlið sjálft var fullt af ösku. Merapi-fjallið hefur gosið öðru hverju í nokkrar vikur en á miðvikudaginn var stórt gos. Björgunarmenn höfðu reynt að komast til mannanna síðan í gær, en annar þeirra var þorpsbúi en hinn meðlimur björgunarsveita.

Norður-Kórea að prófa flaugar sem draga milli heimsálfa
Norður-Kóreumenn hafa flýtt undirbúningi að prófun eldflauga sem draga milli heimsálfa segir Bandaríkjastjórn. Sérfræðingar segja að Norður-Kórea hafi yfir að ráða hundruðum flauga, sem stofni Suður-Kóreu og Japan í hættu. Norður-Kóreustjórn naut góðs af samskiptum við Sovétríkin í kalda stríðinu við þróun flaugaáætlunar sinnar.
Ahmadinejad segist vera að skoða tilboð fastra meðlima Öryggisráðsins
Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, var spurður um tilboð fastra meðlima Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í opinberri heimsókn í Kína í morgun. Hann sagðist hafa beðið samstarfsfólk sitt að fara yfir tilboðið sem gengur út á hvata og refsiaðgerðir til að fá Íran til að hætta við kjarnorkuáætlun sína. Spurður um helförina og Ísraelsríki sagði Ahmadinejad enga misklíð vera á milli gyðinga, kristinna og múslima.

Fótboltabullur til vandræða
Þýska lögreglan stendur í ströngu þessa dagana vegna óláta í fótboltabullum. Hefur hún fengið aðstoð frá pólskum og breskum lögreglumönnum.

Bill Gates að hætta
Bill Gates, stjórnarformaður Microsoft, tilkynnti í gær að hann ætli að hætta að sjá um almennan rekstur fyrirtækisins en hann er einn af stofnendum þess. Í staðinn ætlar Gates að nýta tíma sinn í baráttu fyrir bættri heilsu fólks og eflingu menntunar á vegum stofnunar Bill og Melindu Gates. Fyrirtækið tilkynnti að tveggja ára ferli, sem á að tryggja að breytingarnar myndu ganga vel fyrir sig, væri farið í gang.

Barnaníðingurinn ákærður
Lögreglan í Belgíu hefur ákært dæmdan barnaníðing vegna hvarfs tveggja telpna, sjö og tíu ára, en stúlkurnar hurfu á laugardag. Abdallah Ait Oud gaf sig sjálfur fram til lögreglu eftir að lýst var eftir honum í fjölmiðlum. Hann neitar allri aðild að málinu og belgíska lögreglan er vonlítil um að hann játi nokkuð á sig, nema sönnunargögn finnist.

Hamas-samtökin tilbúin að endurnýja vopnahléssamkomulag við Ísrael
Hamas-samtökin hafa lýst yfir vilja Palestínumanna til að endurnýja vopnahléssamkomulag sitt við Ísrael. Talsmaður samtakanna sagði í gær að heimastjórn Hamas vildi sem fyrst sjá vopnahlé á öllu heimastjórnarsvæðinu. Fyrst þyrfti þó Ísraelsher að hætta hernaðaraðgerðum sínum á Gaza-svæðinu og Vesturbakkanum. Hamas lýstu því yfir í síðustu viku að sextán mánaða vopnahlé væri fallið úr gildi eftir að átta Palestínumenn létu lífið í sprengingu á baðströnd.