
Sveinn Björnsson

Vilja nefna hringtorg í Garðabæ í höfuðið á fyrrverandi forsetum
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar leggur til að hringtorg bæjarins verði nefnd eftir fyrrverandi forsetum Íslands. Nöfn torganna skulu merkt með „veglegum og smekklegum hætti.“

Hefur drukkið kaffi með öllum forsetum lýðveldisins
Hin níutíu og tveggja ára prestsfrú Vigdís Jack hefur nú farið í kaffi til allra forseta lýðveldisins, eftir að Guðni Th. Jóhannesson bauð henni og fjölskyldu hennar heim í dag. Bæði sögðu þau það mikinn heiður að fá að hitta hvort annað.

Ekki á forsetastóli setið þótt í framboð sé komið
Allt stefnir í forsetakosningar hinn 27. júní næst komandi eftir að Guðmundur Franklín Jónsson tilkynnti um framboð sitt á sumardaginn fyrsta í gær.

Valdamikill og pólitískur
Málþing um pólitískt hlutverk forseta Íslands frá stofnun lýðveldis til okkar daga var haldið í gær. Prófessor í stjórnmálafræði segir Svein Björnsson hafa skapað pólitískt og valdamikið embætti. Kristjáni Eldjárn reyndist erfitt að sitja á friðarstóli.