
Lóa Pind: Viltu í alvöru deyja?

Tilhugsunin um mömmu og bróður stoppaði hana
23ja ára gömul kona starfaði þar til fyrir skemmstu á leikskóla en vinnur nú með fötluðum. Hún kemur geislandi lífsglöð og kraftmikil fyrir sjónir.

Fékk húsnæði undir Bergið á dánardegi sonar síns
Dag einn á síðasta ári sat Sigurþóra Bergsdóttir í tannlæknastól þegar þeirri hugmynd laust ofan í höfuð hennar að hún ætti að stofna samtök til að hjálpa ungu fólki eins og syni sínum.

Dimma fór til sálfræðings: „Engin skömm að leita sér hjálpar“
Meðlimir hljómsveitarinnar Dimmu leituðu sér sálfræðiaðstoðar eftir andlát Bjarna Jóhannesar Ólafssonar, tónlistarmanns. Bjarni svipti sig lífi árið 2017, aðeins 26 ára gamall.

Á erfitt með að hlusta á þungarokk eftir andlát sonar síns
Bjarni Jóhannes svipti sig lífi 26 ára gamall en hann hafði glímt við kvíða og þunglyndi. Bjarni var söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar Churchhouse Creepers.

Hafði aldrei komið í íbúð pabba síns
Erla Hlynsdóttir var einkadóttir föður síns en hann svipti sig lífi á aðfangadag eða jóladag árið 2017. Hann skildi eftir sig skýr fyrirmæli um hvernig brotthvarfi hans úr þessum heimi skyldi háttað.

Fyrirfór sér morguninn sem þau áttu að flytja í nýju íbúðina
Það var laugardagsmorgunn í maí árið 2005. Hefði átt að vera hamingjuríkur dagur í lífi ungrar fjölskyldu í Reykjavík.

Þjökuð af samviskubiti eftir síðasta símtalið
Halla Björg Albertsdóttir er 28 ára gömul fjögurra barna móðir sem hefur mátt reyna ýmislegt á sinni stuttu ævi.

Fundu gamalt myndefni af syninum
Þegar Lóa Pind var að undirbúa gerð heimildaþátta um sjálfsvíg kom í ljós að sonur hennar, 28 ára gamall kvikmyndanemi, hafði tekið upp myndefni af Ingólfi Bjarna Kristinssyni rúmu ári áður en hann svipti sig lífi.

Enginn getur sett sig í þessi spor
Ingibjörg Kolbeinsdóttir, viðskiptafræðingur og markaðsstjóri, missti Ingólf Bjarna Kristinsson, 29 ára son sinn úr sjálfsvígi árið 2017.

Hafnar því að sjálfsvíg hafi verið eina leiðin fyrir móður sína til að líða betur
Sara Elísa Þórðardóttir, myndlistarkona, varaþingmaður og 4 barna móðir, missti móður sína úr sjálfsvígi þegar Sara var 23 ára gömul.

Enginn sér eftir því að velja að lifa
Við erum alltaf betur sett ef við tölum um hlutina, segir Lóa Pind sem sýnir fyrsta þátt sinn í nýrri þáttaröð um sjálfsvíg á Stöð 2 á sunnudag.