Kennaraverkfall

Fréttamynd

Kennarar: Peningar í pakkann

"Það vantar einfaldlega meiri peninga í pakkann," segir Finnbogi Sigurðsson, formaður Félags grunnskólakennara, á vef Kennarasambandsins.

Innlent
Fréttamynd

Nýr skóli í verkfalli kennara

Einkaskóli með á annan tug grunnskólabarna úr þriðja til sjöunda bekk hefur verið starfræktur frá fyrsta degi verkfalls kennara. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur er skólastjóri og kennir með aðstoð kennaranema og foreldra barnanna.

Innlent
Fréttamynd

Menntamálaráðuneytið ónauðsynlegt

"Ef ríkisstjórninni kemur ekki við hvað er að gerast í skólum landsins þá legg ég til að menntamálaráðuneytið verði lagt niður og það strax," segir Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Nefndirnar hittast enn

Samninganefndir grunnskólakennara og sveitarfélaganna eru væntanlegar í Karphúsið um klukkan tíu en í gær var fundað í rúma átta tíma. Litlar fréttir berast af gangi viðræðna en líkt og fyrr segja menn von á meðan menn ræðast enn við. Verkfall grunnskólakennara hófst 20. september og hefur þegar staðið yfir í þrjár vikur.

Innlent
Fréttamynd

Ríkissáttasemjari sleit fundinum

Ríkissáttasemjari sleit sáttafundi í kennaradeilunni fyrir um hálfri klukkustund og sendi deiluaðila heim. Hann hyggst ekki fá þá aftur til fundar fyrr en á miðvikudag. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambandsins, segir einfaldlega bera of mikið í milli.

Innlent
Fréttamynd

Þroskahjálp gagnrýnir KÍ

Landssamtökin Þroskahjálp gagnrýna Kennarasamband Íslands fyrir að mismuna fötluðum börnum með undanþágum í kennaraverkfallinu eftir því hvar þau stunda nám.

Innlent
Fréttamynd

Ákveðnir þættir afgreiddir

Samninganefndir grunnskólakennara og sveitarfélaganna eru væntanlegar í Karphúsið klukkan tvö en í gær var fundað í rúma átta tíma. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir erfitt að leggja mat á hvort eitthvað miði í viðræðunum.

Innlent
Fréttamynd

Undanþágur skapa hættu á mismunun

Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambandsins, segist ekki vilja tjá sig um ályktun fulltrúafundar landssamtakanna Þroskahjálpar þar sem skorað er á kenanra að veita fleiri undanþágur svo hægt sé að veita öllum fötluðum börnum kennslu og þjálfun.

Innlent
Fréttamynd

Líklega setið fram eftir

Samningafundur í vinnudeilu kennara og sveitarfélaga hefur staðið yfir í húsakynnum ríkissáttasemjara frá því klukkan tíu í morgun. Úr Karphúsinu berast þær einu fregnir að líklegt sé að áfram verði setið eitthvað fram eftir.

Innlent
Fréttamynd

Enn fundað í dag

Samninganefndir kennara og sveitarfélaga komu saman til sáttafundar í Karphúsinu núna klukkan tíu. Fundi í gær lauk um kvöldmatarleytið en hann hófst klukkan níu í gærmorgun.

Innlent
Fréttamynd

Verkfall ekki liðið mikið lengur

Samninganefndir kennara og sveitarfélaga hafa fundað frá því klukkan tíu í morgun en litlar fréttir berast af gangi mála. Grunnskólakennarar hafa nú verið þrjár vikur í verkfalli og segir sveitarstjórnar- og alþingismaðurinn Gunnar I. Birgisson að það verði ekki liðið mikið lengur. 

Innlent
Fréttamynd

Engin tíðindi úr Karphúsinu

Samninganefndir kennara og sveitarfélaga komu saman til sáttafundar í Karphúsinu klukkan tíu í morgun. Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari sagði nú laust fyrir hádegi að engin tíðindi væri að hafa af samningaviðræðunum.

Innlent
Fréttamynd

Foreldrar og börn á Alþingi

Áhyggjufullir foreldrar söfnuðust saman fyrir utan Alþingishúsið fyrir hádegið. Til stóð að mæta á þingpalla með svöng og þreytt börn en enginn þingfundur er í dag.

Innlent
Fréttamynd

Þröngt í búi hjá kennurum

Engin afgerandi kaflaskipti urðu á samningafundi kennara og sveitarfélaga í dag. Þrátt fyrir samstöðu og baráttuanda grunnskólakennara er þröngt í búi hjá mörgum þeirra. Frá því verkfallið hófst, þann 20. september, hafa þeir fengið greiddar þrjátíu og átta þúsund krónur úr verkfallssjóði.

Innlent
Fréttamynd

Enn fundað

Finnbogi Sigurðsson, formaður Félags grunnskólakennara, segir kennara orðna langeyga eftir viðbrögðum samninganefndar sveitarfélaga við kröfum þeirra. Samningafundur í kjaradeilu grunnskólakennara og sveitarfélaga hófst klukkan níu í morgun og er enn fundað.

Innlent
Fréttamynd

Vilja efnisleg viðbrögð

Finnbogi Sigurðsson, formaður Félags grunnskólakennara, segir kennara orðna langeyga eftir efnislegum viðbrögðum samninganefndar sveitarfélaga við kröfum um styttingu kennsluskyldu og færslu launaflokka úr svokölluðum potti grunnlauna. Haft er eftir Finnboga á heimasíðu Kennarasambandsins að kennarar hafi margítrekað að þessar kröfur séu ófrávíkjanlegar og ekki verði hvikað frá þeim.

Innlent
Fréttamynd

Vill að ríkið taki í taumana

"Mér finnst deilan flókin og þung í vöfum. Stjórnvöld verða að láta til sín taka. Þetta er stórmál og skrítið að deilan geti gengið svona án þess að maður heyri nokkurn skapaðan hlut," sagði Bryndís Kristiansen á Austurvelli í gær.

Innlent
Fréttamynd

Með pabba í vinnunni

Víða má sjá foreldra taka börn sín á grunnskólaaldri með í vinnuna. Þorvaldur Þorvaldsson bílstjóri hjá Sendibílastöðinni er einn þeirra. Átta ára dóttir hans Saga Rut fer með þegar hún óskar.

Innlent
Fréttamynd

Óvænt stefna umræðu

Utandagskrárumræður tóku óvænta stefnu á Alþingi í gær. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra sakaði Samfylkinguna um að tala tungum tveimur og sitt með hvorri um kennarverkfallið á Alþingi og í borgarstjórn. Össur Skarphéðinsson segir ríkisstjórnina ekki geta verið stikkfrí í deilunni.

Innlent
Fréttamynd

Laun í fæðingarorlofi lækka

Vegna nýrra laga um fæðingarorlof hefur verkfall kennara áhrif á tekjur þeirra í fæðingarorlofi allt til ársloka 2006. Þeir kennarar sem vænta barns nú í desember standa verst þar sem núgildandi reglur Tryggingamálastofnunar miða við laun þeirra frá ágúst 2003 til október 2004.

Innlent
Fréttamynd

Svartsýnn á lausn deilunnar

Grafalvarleg staða er komin upp í kjaradeilu kennara og sveitarfélaganna, segir Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Íslands: "Deilan er í hnút og ég er langt frá því að var bjartsýnn."

Innlent
Fréttamynd

Gæslu í grunnskóla frestað

Frjálsri viðveru barna í íþróttahúsi og matsal grunnskóla Súðavíkur í verkfalli kennara hefur verið frestað að sinni, segir Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps. Ástæðuna segir Ómar vera viðbrögð kennaranna við notkun húsnæðisins sem og að fulltrúar kennarar hafi rætt við foreldra og varað þá við að standa að gæslunni.

Innlent
Fréttamynd

Engin mótsögn hjá Samfylkingu

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, vísar því á bug að þversögn sé á milli afstöðu Samfylkingarinnar á Alþingi og innan R-listans í borgarstjórn Reykjavíkur.

Innlent
Fréttamynd

Kennarar á þingpöllum

Aðeins 30 kennurum var hleypt á þingpalla á meðan utandagskrárumræður stóðu yfir um kennaradeiluna. Meinuðu þingverðir nokkrum fjölda kennara inngöngu í Alþingishúsið.

Innlent
Fréttamynd

Ekki ósamstíga

Helgi Hjörvar, alþingismaður Samfylkingarinnar og borgarfulltrúi R-listans vísar ummælum forsætisráðherra þess efnis að Samfylkingin á þingi væri ósamstíga R-listanum í borgarstjórn á bug. "Ég bendi á að borgarstjórinn gekk á fund fjárlaganefndar á mánudag og fór yfir íþyngjandi ákvarðanir sem ríkið hefur tekið fyrir sveitarfélögin."

Innlent
Fréttamynd

Vilja lagabreytingar

Ekki er hægt að fresta verkfalli kennara. Það er bannað með lögum. Kennarasamband Íslands hefur leitað eftir því að fá lögunum breytt en án árangurs, segir Hannes Þorsteinsson skrifstofustjóri sambandsins.

Innlent
Fréttamynd

165 milljónir úr sjóði kennara

Um 165 milljónir voru greiddar úr Vinnudeilusjóði kennara á mánudag. Kennari í fullu starfi fær 3.000 krónur fyrir hvern verkfallsdag. Það eru um 90 þúsund krónur á mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Skora á samningsaðila

Stjórn Foreldra- og kennarafélags Síðuskóla á Akureyri skorar á deilendur í kjaradeilu grunnskólakennara og sveitarfélaga að sýna vilja í verki og setjast að samningaborðinu með opnum og jákvæðum huga. Mikilvægt sé að leysa deiluna sem sé farin að hafa áhrif á líf og störf alltof margra fjölskyldna í landinu.

Innlent
Fréttamynd

Vilja ræða málin áfram

Fundur samninganefndar kennara og sveitarfélaga stendur enn en hann hófst klukkan tíu í morgun. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambandsins, sagði fyrir augnabliki að nú væru samninganefndir í kaffihléi en myndu setjast aftur að fundi innan nokkurra mínútna.

Innlent
Fréttamynd

Kennarar í veikindaleyfi án launa

Kennarar í veikindaleyfi falla af launaskrá og fá ekki greidd laun í verkfalli kennara. Eins fá atvinnulausir kennarar ekki greiddar atvinnuleysisbætur á meðan kennarar eru í verkfalli. Kennurunum er öllum gert að sækja verkfallsbætur í Vinnudeilusjóð Kennarasambands Íslands.

Innlent