Fréttamaður

Lovísa Arnardóttir

Lovísa er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Það er svo margt sem breyttist í lífi Grind­víkingsins“

Félagsráðgjafi í Grindavík segir áríðandi að tekið sé vel utan um Grindvíkinga. Það sé ekki nóg að byggja varnargarða um bæinn, heldur þurfi að verja fólkið líka. Hún segir marga í slæmri stöðu og að húsnæðisöryggi sé grunnurinn að því að tryggja fólki stöðugleika svo unnt sé að vinna betur að öðrum þáttum. Tryggja þurfi öllum nauðsynlegan stuðning.

Hefðu lent í vand­ræðum án frestunar

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata sagði það í raun eðlilegt að Birgir Ármannsson, forseti þingsins, hefði tekið öll mál af dagskrá og slitið fundi. Ríkisstjórnin sé ekki starfhæf og ekki við hæfi að ræða mál á þingi sem ekki sé hægt að leysa.

Kynna allt saman í einum pakka

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra, segist ekki vita hvenær viðræðum formanna stjórnarflokkanna lýkur. Þær gangi í takt við aðstæður. Bjarni ræddi við blaðamenn að loknum fundi þingflokka á Alþingi í dag. 

Leita að fólki sem vill leigja dótið sitt til ó­kunnugra

Á vefsíðunni stoff.is, eða Stöff.is, er nú hægt að leigja út dótið sitt til ókunnugra. Síðan er nýkomin í loftið en þónokkuð af dóti er þegar komið inn. Til dæmis er hægt að leigja þar kajak, rafhjól, sous-vide tæki og allskonar tölvuleiki. Að síðunni standa þrír vinir sem kynntust í vinnu hjá Advania.

Fara beint í frí­stund eftir leik­skóla­út­skrift í júní

Foreldrum fimm og sex ára barna í sautján leikskólum í Reykjavíkur var tilkynnt í gær að þau fái uppsögn á sínu leikskólaplássi fyrir 30. apríl og að uppsögn taki gildi 10. júní. Börnum þeirra verður í staðinn boðið pláss í frístund í þeim grunnskólum sem þau eiga að hefja grunnskólagöngu sína í næsta haust. 

Katrín búin að taka á­kvörðun og upp­lýsa ríkis­stjórn

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins segir Katrínu hafa greint ríkisstjórn frá ákvörðun sinni. Það sagði hann að loknum ríkisstjórnarfundi. Forsætisráðherra muni sjálf tilkynna um ákvörðun sína. 

Vilja létta á leik­skólum með því að bjóða börnum í skóla fimm ára

Sjálfstæðisflokkurinn vill að börnum sé boðið að hefja skólagöngu sína fimm ára í Reykjavík í stað sex ára. Flokkurinn leggur fram á næsta borgarstjórnarfundi tillögu um tilraunaverkefni. Hildur Björnsdóttir, oddviti flokksins, vonast til þess að fimm skólar í það minnsta geti tekið þátt. 

Sjá meira