Getur sagt að ritstjóri Morgunblaðsins sé með hala SIðanefnd Blaðamannafélag Íslands vísaði frá kæru ritstjóra Kjarnans um hvort Morgunblaðinu væri heimilt væri að vísa í þrálátan orðróm til að bera alvarlegar ávirðingar á fólk og fyrirtæki. Ritstjóri Kjarnans segir úrskurðinn þýða að hann megi vísa til þráláts orðróms um að ritstjóri Morgunblaðsins sé með hala. 7.6.2017 22:00
Könnun: Stefnir í stórsigur Íhaldsflokksins Tíu prósentustig skilja á milli Íhaldsflokksins og Verkamannaflokksins samkvæmt nýrri skoðanakönnun The Independent. Kosið verður á Bretlandi á morgun. 7.6.2017 20:55
Árásarmaðurinn við Notre Dame nafngreindur Maðurinn sem réðist á lögreglumann við Notre Dame í París í gær er fertugur alsírskur blaðamaður og doktorsnemi. Hann liggur á sjúkrahúsi eftir að lögreglumenn skutu hann. 7.6.2017 19:54
Trump krafðist hollustu Comey og vildi fella niður rannsókn Framburður fyrrverandi forstjóra alríkisrlögreglunnar FBI um samskipti hans við Donald Trump Bandaríkjaforseta hefur verið birtur. 7.6.2017 18:45
Fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar skipaður formaður Tryggingastofnunar Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur skipað Árna Pál Árnason, fyrrverandi formann Samfylkingarinnar, formann stjórnar Tryggingastofnunar ríkisins frá 19. maí. 7.6.2017 18:10
Sköllóttir karlmenn sagðir í hættu staddir Galdralæknar sem ásælast höfuð sköllóttra manna eru taldir hafa hvatt til morða í Mósambík að undanförnu. Lögreglan varar við því að sköllóttir menn gætu verið í hættu. 7.6.2017 17:55
Norður-Kóreumenn gagnrýna Trump vegna Parísarsamkomulagsins "Þetta er hámark sjálfselskunnar og siðferðislegs tómarúms sem sækist aðeins eftir eigin velferð á kostnað allrar plánetunnar,“ segir utanríkisráðuneyti Norður-Kóreu um að Donald Trump hafi ákveðið að draga Bandaríkin út úr Parísarsamkomulaginu. 7.6.2017 17:27
Páfugl gekk berserksgang í vínbúð Dýraeftirlitsmenn máttu hafa sig alla við að ná páfugli sem vafraði inn í vínbúð í Kaliforníu og skemmdi flöskur fyrir hundruð dollara. 6.6.2017 23:42
Telja rússneska hakkara hafa stuðlað að aðgerðum gegn Katar Vísbendingar eru um að rússneskir hakkarar hafi plantað gervifrétt á vef ríkisfréttastofu Katar sem átti þátt í að önnur arabaríki einangruðu landið með viðskiptaþvingunum. Bandarísk yfirvöld hafa aðstoðað við rannsókn málsins. 6.6.2017 22:50
Bráðnun á Grænlandi gæti valdið þurrki í Afríku Ferskvatn úr bráðnandi Grænlandsjökli gæti raksað hafstraumum og breytt veðurfari á viðkvæmu svæði í Afríku. Þurrkur og uppskerubrestur gæti valdið hörmungum fyrir milljónir manna þar samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. 6.6.2017 22:02