Ræða Klopp fyrir tveimur árum kom Liverpool í úrslitin Ræðan sem Jurgen Klopp gaf lærisveinum sínum í Liverpool eftir úrslitaleikinn í Evrópudeildinni fyrir tveimur árum skilaði liðinu í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu að mati fyrirliðans Jordan Henderson. 24.5.2018 11:30
Hilmar til liðs við Blika Hilmar Pétursson mun spila með Breiðabliki á komandi tímabili í Domino's deild karla. Hann kemur til liðsins frá uppeldisfélaginu Haukum. 24.5.2018 09:45
Pepsimörkin: Línuvörðurinn gerir vel án þess að sjá atvikið Valmir Berisha skoraði mark fyrir Fjölni í fyrri hálfleik leiksins gegn KR í fimmtu umferð Pepsi deildarinnar sem var dæmt af vegna rangstöðu. Aðstoðardómarinn lenti á réttri ákvörðun án þess að vita það að mati sérfræðinga Pepsimarkanna. 24.5.2018 09:00
Leikmenn fá sekt fyrir að krjúpa yfir þjóðsöngnum Ný reglugerð í NFL deildinni bannar leikmönnum að krjúpa á kné á meðan bandaríski þjóðsöngurinn er spilaður í upphafi leikja og geri þeir það verða þeir sektaðir. 24.5.2018 08:30
Celtics tók forystuna á ný Boston Celtics endurheimti forystuna í úrslitum austurdeildarinnar í nótt með 96-83 sigri á Cleveland á heimavelli. 24.5.2018 06:47
Lineker: Skiptir ekki máli hver er fyrirliði Tilkynnt var í gær að Harry Kane myndi verða fyrirliði enska landsliðsins á HM í Rússlandi. Gary Lineker, knattspyrnusérfræðingur og fyrrum markahrókur enska liðsins, segir of mikið vera gert úr fyrirliðastöðunni. 23.5.2018 23:30
Mourinho og Guardiola geta hugsað sér gott til glóðarinnar gegn Emery Arsenal tilkynnti um ráðningu nýs knattspyrnustjóra, Unai Emery, í morgun. Ráðningin hefur verið yfirvofandi síðustu daga en þeir sem ættu að gleðjast hvað mest yfir henni eru stuðningsmenn Manchester-liðanna. 23.5.2018 17:15
Aron fær nýtt samningstilboð hjá Cardiff Aron Einar Gunnarsson hefur fengið tilboð um framlengingu á samningi sínum hjá velska liðinu Cardiff City, en núverandi samningur hans rennur út í sumar. 23.5.2018 13:00
Stjarnan mætir Íslandsmeisturunum │Öskubuskuævintýri fyrir austan? Stjarnan fer til Akureyrar og mætir Íslandsmeisturum Þór/KA í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna. Bikarmeistarar ÍBV sækja Keflavík heim og 2. deildar lið Fjarðarbyggð/Hattar/Leiknis fær Pepsi deildar lið Grindavíkur austur. 23.5.2018 12:30
Ásgeir snýr aftur í Mosfellsbæ Afturelding hefur fengið Ásgeir Jónsson til starfa sem aðstoðarþjálfara meistarflokks karla í handbolta. Þá hefur hinn ungi Tumi Steinn Rúnarsson gengið til liðs við félagið. 23.5.2018 11:19