Eigum við að rifja upp hvenær þú gladdir ástina þína síðast?
Friðrika Hjördís Geirsdóttir selur girnilegar ástarkökur í Kringlunni yfir helgina og á Valentínusardaginn sjálfan á mánudag. Hluti af söluágóðanum rennur til styrktar Barnaspítala Hringsins og með hverri köku fylgir fallegt ástarljóð eftir afa Friðriku, Geir Gunnar Gunnlaugsson.