Ólafur Stephensen

Ólafur Stephensen

Greinar eftir Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda.

Fréttamynd

Róttæknina vantar

Talsvert afrek verður það að teljast ef Alþingi tekst að afgreiða fjárlög án halla í fyrsta sinn frá hruni. Að sama skapi er það metnaðarfullt hjá Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra að leggja fram hallalaust fjárlagafrumvarp.

Fastir pennar
Fréttamynd

Annars flokks erlendir fjárfestar

Eitt af því sem síðasta ríkisstjórn vann íslenzku atvinnulífi helzt til ógagns var hvernig ráðherrar hennar og þingmenn stjórnarmeirihlutans margir hverjir virtust leggja sig fram um að fæla erlenda fjárfesta frá landinu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Baráttan fyrir fleiri núllum

Það eru óskiljanleg mistök af hálfu Seðlabankans að halda ekki kynningarfundinn um nýja tíuþúsundkallinn í Héraðsskólanum á Laugarvatni. Eða að minnsta kosti í Þjóðmenningarhúsinu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þekking á flótta

Hver er undirstaða velferðar og velgengni íslenzku þjóðarinnar í framtíðinni? Að sjálfsögðu menntun þjóðarinnar og þekking, sem mun bæði skapa velferð og verðmæti. Mannauðurinn er ótakmörkuð auðlind og ætti með réttu að standa undir hagvexti í framtíðinni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Miðjan í borginni

Könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Ríkisútvarpið á fylgi flokkanna í Reykjavíkurborg bregður athyglisverðu ljósi á stöðu borgarmálanna.

Fastir pennar
Fréttamynd

Brotnar samstaðan um ónýtt kerfi?

Áratugum saman hefur ríkt nánast þverpólitísk samstaða á Íslandi um handónýtt landbúnaðarkerfi. Þrátt fyrir að alþjóðastofnanir (útlendar skammstafanir eins og forsætisráðherrann kallar það) á borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Efnahags- og framfarastofnunina (OECD) hafi bent á að kerfið sé óskilvirkt og alltof dýrt hafa engar grundvallarbreytingar verið gerðar.

Fastir pennar
Fréttamynd

iTunes og epli

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra hélt athyglisverða ræðu á norrænni ráðstefnu um varnir gegn brotum á höfundarrétti, sem haldin var í Reykjavík á fimmtudag og föstudag. Ráðherrann ræddi þar meðal annars það mikla tjón sem stuldur á hugverkum á internetinu veldur hinum skapandi greinum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Róttækasti óvissuþáttur í heimi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hét okkur því á dögunum að í undirbúningi væru "róttækustu aðgerðir stjórnvalda nokkurs staðar í veröldinni í þágu skuldsettra heimila“. Þarna er ef eitthvað er tekið enn dýpra í árinni en Framsóknarflokkurinn gerði í kosningabaráttunni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Útlendu drápsostarnir

Fréttablaðið sagði í gær litla frétt af því að Mjólkursamsalan hefði fargað nokkrum tugum kílóa af svissneskum Gruyère-osti, sem fluttur var inn fyrir mistök, í trássi við opinbera reglugerð.

Fastir pennar
Fréttamynd

Gera þetta almennilega

Aldrei hafa verið fleiri börn af erlendum uppruna í skóla á Íslandi en nú. Í nýrri skýrslu Fjölmenningarráðs, sem Fréttablaðið sagði frá í gær, kemur fram að nú eru um tólf prósent þriggja ára barna með annað móðurmál en íslenzku.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ráðherra yfirsést fíll

Afleitt ástand í starfsmannamálum Landspítalans hefur verið til umfjöllunar að undanförnu, enda hefur keyrt um þverbak nú í sumar. Eitt af lykilsviðum spítalans, lyflækningasviðið, er skelfilega undirmannað og þar hefur verið unnið eftir neyðaráætlun síðustu vikur.

Fastir pennar
Fréttamynd

Evrópublöffið

Fréttablaðið sagði frá því í gær að Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefði ákveðið að leysa formlega frá störfum samninganefnd Íslands, sem séð hefur um aðildarviðræðurnar við Evrópusambandið. Sama á við um samningahópa um einstök málefni og samráðsnefnd stjórnvalda og hagsmunasamtaka um viðræðurnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Að flytja flugvöll losar peninga

Sigurður Jóhannesson hagfræðingur skrifaði áhugaverða grein í vikuritið Vísbendingu, sem Fréttablaðið sagði frá fyrr í vikunni. Sigurður fjallar þar um deilur um Reykjavíkurflugvöll og rifjar upp fyrri greiningar á þjóðhagslegum ávinningi þess að færa hann úr Vatnsmýrinni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hjarta á röngum stað

Nú hafa um 65.000 manns skrifað undir áskorun um að tillögu að aðalskipulagi Reykjavíkur verði breytt þannig að flugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni. Undirskriftasöfnunin fer fram á vefsíðunni lending.is undir slagorðinu Hjartað í Vatnsmýrinni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ágætur ofsahagnaður

Vissulega eru 33 milljarðar miklir peningar. En þegar vel er skoðað er ekkert óeðlilegt við hagnað bankanna; um það voru sérfræðingar í fjármálamörkuðum sem Fréttablaðið ræddi við sammála. Hagnaðartölurnar eru háar, en bankarnir eru líka með stærstu fyrirtækjum á landinu, eigið fé mikið og arðsemin er engan veginn umfram það sem telja má eðlilega ávöxtunarkröfu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Illa hönnuð lög?

Þessi lög eru ágæt að mörgu leyti en kunna að ganga of langt. Þau eru ekki hönnuð með hagsmuni lífeyrissjóða að leiðarljósi.“ Þessi ummæli Þóreyjar Þórðardóttur, framkvæmdastjóra Landssamtaka lífeyrissjóða

Fastir pennar
Fréttamynd

Vér einir getum sótt ruslið

Það þarf ekki annað en að horfa á slátt og umhirðu í görðum borgarbúa og á lóðum einkafyrirtækja annars vegar og svo ástand borgarlandsins hins vegar til að sjá að margt geta einkaaðilar gert betur en Reykjavíkurborg. Það er ekki nokkur einasta ástæða til að ætla að Gámaþjónustan standi sig verr í að hirða lífrænan úrgang en borgin sjálf.

Fastir pennar
Fréttamynd

Skýrt misrétti og óútskýrt

Bandalag háskólamanna kynnti í vikunni enn eina launakönnunina sem sýnir fram á að grátlega lítill árangur hefur náðst í að draga úr kynbundnu launamisrétti á vinnumarkaði.

Fastir pennar
Fréttamynd

Heimurinn situr hjá

Stjórnvöld í Sýrlandi hafa nú í meira en tvö ár beitt vel búnum her sínum gegn eigin borgurum. Sameinuðu þjóðirnar telja varlega áætlað að um hundrað þúsund manns hafi fallið í átökunum. Allar fyrri viðvaranir og hótanir "alþjóðasamfélagsins“ um að sturlaðir einræðisherrar verði ekki látnir komast upp með að murka lífið úr eigin þjóð hafa reynzt innantómar. Örlög Gaddafís voru ekki það víti til varnaðar sem margir vonuðust til á sínum tíma.

Fastir pennar
Fréttamynd

Upplýst aðhald

Svokölluð lesskimun meðal sjö ára barna í öðrum bekk grunnskóla hefur reynzt prýðilegt tæki til að bæta lestrarkennslu og grípa inn í til að veita þeim sérstakan stuðning sem þess þurfa snemma á skólagöngunni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þingmönnunum sjálfum að kenna

Stundum koma niðurstöður vísindalegra rannsókna á óvart. Stundum staðfesta þær hins vegar bara það sem allir vissu. Það þýðir ekki að rannsóknin hafi verið óþörf; það getur verið gott að fá fræðilega staðfestingu á því sem við töldum okkur vita, þannig að fólk geti þá hætt að velta fyrir sér öðrum skýringum á viðkomandi fyrirbæri.

Fastir pennar
Fréttamynd

Sniðgöngum hatur, ekki íþróttaleika

Nýleg lög í Rússlandi, sem brjóta á réttindum samkynhneigðra, hafa orðið tilefni gagnrýni og mótmæla um allan heim. Þau banna meðal annars að hafa "áróður“ fyrir samböndum samkynhneigðra fyrir börnum. Slíkur "áróður“ getur falizt í því að samkynhneigðir leiðist eða kyssist á almannafæri, að fólk beri tákn mannréttindabaráttu samkynhneigðra, að ekki sé talað um að einhver haldi því fram opinberlega að samkynhneigð sé náttúruleg og eðlileg.

Fastir pennar
Fréttamynd

Órætt og órætt

Æ snúnara verður að henda reiður á stefnu ríkisstjórnarinnar í samskiptum við Evrópusambandið, sem virðist býsna óræð. Það fer að verða mikilvægt, bæði fyrir almenning og ekki síður fyrir andann í stjórnarsamstarfinu, að forystumenn stjórnarinnar útskýri Evrópustefnuna á mannamáli (eða því sem næst) og einni röddu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hvernig verður hjólunum snúið?

Greint var frá því í fréttum okkar á Stöð 2 í fyrrakvöld að hagvöxtur á Íslandi í ár stefndi í að verða í samræmi við svartsýnustu spár sem settar hafa verið fram, aðeins rúmt prósent. Hagvöxturinn í fyrra var líka undir væntingum, um 1,6 prósent. Íslenzkt efnahagslíf framleiðir ekki nóg og útflutningur hefur dregizt saman.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vigdís á að víkja

Vitað var að Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, ætti hvorki Íslandsmet í snjöllum pólitískum tímasetningum né dómgreind. Ummæli hennar um Ríkisútvarpið í þættinum Í bítið á Bylgjunni í gærmorgun eru hins vegar meira en bara broslegur klaufaskapur.

Fastir pennar
Fréttamynd

Eru netþjófar betri þjófar?

Forsvarsmenn deildu.net, skráadeilisíðu sem hefur misserum saman dreift höfundarréttarvörðu efni ólöglega á internetinu, ákváðu fyrir skemmstu að leyfa notendum síðunnar að deila sín á milli íslenzku efni, en ekki einvörðungu erlendu.

Fastir pennar