
Lögregla kölluð til vegna mannlausrar bifreiðar sem olli miklu öngþveiti
Mikið umferðaröngþveiti myndaðist vegna mannlausrar bifreiðar sem var skilin eftir á miðri Reykjanesbraut nærri Mjóddinni. Lögregla var kölluð til á staðinn og var bifreiðin að endingu fjarlægð af vettvangi með kranabíl.