Kompás

Kompás

Fréttaskýringaþáttur þar sem hin ýmsu málefni eru krufin til mergjar.

Fréttamynd

Átök og eftirköst

Æsingsóráðsheilkenni er nýyrði í íslensku máli; heilkenni sem tengist nær eingöngu málum sem koma upp á geðsjúkrahúsum eða við handtöku lögreglunnar. Menn deyja úr þessu heilkenni og það gerði Jón Helgason sem var handtekinn á Hótel Sögu í desember. Við rifjum upp hans sögu og skoðum hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir dauða hans. Jón Helgason var þrjátíu og eins árs þegar hann lést. Fjölmiðlar drógu upp dökka mynd af þessum stóra manni. Fjölskyldan kemur nú, í fyrsta sinn fram og segir sína hlið. Við rekjum atburðarrás kvöldsins afdrifaríka, förum á vettvanginn þar sem átökin áttu sér stað og bregðum upp mynd af umfjöllun fjölmiðla á þessum tíma.

Stöð 2
Fréttamynd

Heilkenni?

Fjölskylda Jóns hélt sig til hlés á meðan á rannsókn málsins stóð. Þegar niðurstöður krufningarinnar lágu fyrir átti hún von á að fá úr því skorið hvort Jón hefði dáið úr ofneyslu eiturlyfja eða, hvort harðræði lögreglu hefði dregið hann til dauða. Annað kom á daginn. Dánarorsök var æsingsóráðsheilkenni.

Stöð 2
Fréttamynd

Hörð viðbrögð

Fjölmörg ríki sem eiga í nánum tengslum við Ísland hafa mótmælt hvalveiðunum. Hvaða afleiðingar geta veiðarnar haft? Borga þær sig? Kompás fór til sögufrægs bæjar í Japan þar sem hvalur hefur verið veiddur í fjögur hundruð ár. Þar er nánast allur hluti hvalsins nýttur og hluti af menningu bæjarins. Hvaða augum líta ráðamenn á stöðuna í dag. Og í lok þáttarins skoðum við hvort og þá hvenær hvalkjötið fari til Japans.

Stöð 2
Fréttamynd

Hetjur hafsins

Taiji, lítill bær á suðurströnd Japans er einn fjölmargra bæja þar í landi sem hvalur er veiddur. Þar snýst menningin að stórum hluta um veiðarnar. Íbúarnir vilja halda áfram að veiða og nota sömu rök og Íslendingar - að veiðarnar séu nauðsynlegar til að viðhalda lífríki sjávar.

Stöð 2
Fréttamynd

Selst kjötið?

Helstu viðskiptamenn Íslands hafa áhyggjur af afleiðingum hvalveiða Íslendinga. Þeir segja þær skaða ímynd landsins. Og talsmenn Greenpeace segja að með veiðunum sé meiri hagsmunum fórnað fyrir minni.

Stöð 2
Fréttamynd

Þúsund ár?

Það fjarar hratt undan Þjóðkirkjunni ef miðað er við meðlimafjölda - og að henni beinast spjótin hvöss. Hún er sökuð um að bera ábyrgð á sögufölsun, mannréttindabrotum og misrétti - jafnvel andkristilegri afstöðu. Önnur trúfélag sækja á og ef fram heldur sem horfir verður ekki "einn siður í landinu" áður en langt um líður, eins og lengst af í þúsund ár, allavega ekki undir fánum einnar kirkju. Nýjar tölur gætu bent til þess að þjóðkirkjan sé að verða minnihlutakirkja á næstu árum eins. Kompás tekur púlsinn á trúarlífi íslendinga þar sem Ríkiskirkjan er harðlega gagnrýnd fyrir að vera orðin málsvari misréttis, mannréttindabrota og jafnvel ókristilegra sjónarmiða.

Stöð 2
Fréttamynd

Húsin á Hellu

Hella er tæplega 500 manna bæjarfélag á Suðurlandi. þegar ekið er í gegnum bæinn blasa við nokkur grá, ófrágengin hús sem í búa um 40 manns. Húsin eru í eigu Íbúðalánasjóðs sem nú hefur tilkynnt að íbúar húsanna verði að yfirgefa þau fyrir 15. maí næstkomandi. Árið 2001 vantaði tilfinnanlega hús á Hellu. Þetta var skömmu eftir Suðurlandsskjálftann og eftirspurn eftir húsnæði til leigu var mikil í bæjarfélaginu.

Stöð 2
Fréttamynd

Kjöt eða vatn?

Vatn, sykur og allskyns aukaefni er meðal þess sem bætt er kjöt og fisk, sem neytendur telja til ferskvöru. Það kemur væntanlega einhverjum á óvart en íslenskir neytendur greiða um hálfan milljarð á ári fyrir vatn sem sett er í kjúklingabringur. Og þá erum við bara að tala um kjúklinginn. Hvenær hættir kjöt að vera kjöt og fiskur að vera fiskur?

Stöð 2
Fréttamynd

Stjörnuregn

Hvað fær erlendar hljómsveitir á borð við Metallicu, Duran Duran og Cold Play til að spila á Íslandi? Hvað gerði það að verkum að hljómsveitir fóru í auknum mæli að koma hingað til lands? Kompás ræddi við fólkið á bak við böndin og grennslaðist fyrir um lífið á bak við tjöldin.

Stöð 2
Fréttamynd

Draugaskip í Hvalsnesfjöru

Við skoðuðum strand Wilson Muuga, flutningaskipsins sem nú liggur lemstrað í Hvalsnesfjöru. Stjórnvöld og eigendur skipsins deila um aðkomu að hreinsunarstarfi; benda á sitt hvorn lagabálkinn og ekki er ljóst hver eigi að gera - eða borga - hvað. Semsagt snúið mál sem nú er á leið fyrir dómstóla á meðan dauðadæmt skipið hvílir á skeri sínu.

Stöð 2
Fréttamynd

Bætt meðferð?

Kynferðisglæpamenn eru víðast hvar álitnir sértök tegund afbrotamanna. Hætta er á að þeir brjóti ítrekað af sér og því telja margir réttlætanlegt að refsa þeim á annan hátt en öðrum glæpamönnum. Ríki Evrópuráðsins, sem Ísland er aðili að, ræða nú samræmdar aðgerðir gegn kynferðisglæpamönnum og mun samningur þar að lútandi liggja fyrir síðla árs. Það gæti þýtt breytt lagaumhverfi hér á landi.

Stöð 2
Fréttamynd

Á barnaveiðum ll

Myndum við samþykkja að börnin okkar stæðu úti á götu á spjalli við ókunna manneskju í klukkustund eða meir? Einmitt það gætu börnin okkar verið að gera í tölvunni. Spjalla við fullorðið fólk, sem þau þekkja ekki, langtímum saman. Kynferðisbrotum tengdum Netinu hefur fjölgað síðustu misseri. Fullorðnir karlmenn sem leita eftir kynlífi með ungum krökkum þurfa ekki langan tíma á Netinu - til að finna næsta fórnarlamb.

Stöð 2
Fréttamynd

Inn fyrir þröskuldinn

Hundrað og níu karlmenn á aldrinum sextán til fimmtíu og sjö ára settu sig í samband við tálbeitu Kompáss. Sextán þeirra vöruðu hana við en níutíu og þrír vildu nánari kynni. Tálbeitan var í raun tuttugu og átta ára gömul kona. Fimm fullorðnir karlmenn gengu alla leið - yfir þröskuldinn og inn á heimili þar sem þeir héldu að þrettán ára stúlka tæki á móti þeim.

Stöð 2
Fréttamynd

Leyndardómar netheima

Við þurfum að vita hvað börnin okkar eru að gera í tölvunni. Við þurfum líka að treysta þeim. Þetta var niðurstaða sex foreldra sem Kompás ræddi við um hætturnar sem tengjast Netinu. Þó nokkur samtök á Íslandi veita foreldrum og börnum ráðgjöf um örugga netnotkun.

Stöð 2
Fréttamynd

Kompás næsta sunnudag

Hundrað og níu karlmenn á aldrinum 16 til 57 ára settu sig í samband við tálbeitu Kompáss, þrettán ára stúlku, á tveimur sólarhringum. Flestir þeirra voru á höttunum eftir kynferðislegu sambandi við stúlkuna. Kompás leigði sér litla kjallaraíbúð í tíu klukkustundir og á þeim tíma stigu fimm karlmenn inn fyrir þröskuldinn. Við tókum á móti þeim.

Stöð 2
Fréttamynd

Á barnaveiðum I

Í þessum Kompásþætti birtum við mynd af barnaníðingi sem við gripum þar sem hann var kominn í íbúð í vesturbæ Reykjavíkur til að hitta þrettán ára stúlku, tálbeitu Kompáss. Þessi maður er enn að afplána dóm sem hann hlaut árið 2004. Við spyrjum - hvernig getur það gerst?

Stöð 2
Fréttamynd

Ekkert eftirlit?

Hvernig má það vera að maður sem dæmdur er í fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn börnum er tveimur og hálfu ári síðar farinn að endurtaka leikinn? Hvað getur verndað börnin okkar þegar út úr fangelsi kemur maður sem virðist vera jafn líklegur til að brjóta af sér eins og áður?

Stöð 2
Fréttamynd

Inn fyrir þröskuldinn

Við áttum von á viðbrögðum en ekki því að dæmdur barnaníðingur, sem enn er í afplánun, myndi svara auglýsingunum. Hann vildi ekki bara hitta eitt barn heldur tvö, stúlku og dreng, sama kvöldið með klukkutíma millibili. En, það var Kompás sem mætti honum.

Stöð 2
Fréttamynd

Pókeræði

Íslendingar eru dottnir í fjárhættuspil. Pókeræði er í algleymingi og óttast SÁÁ að spilafíklum sé að fjölga mjög. Fjárhagur íþróttafélaganna geldur fyrir þessa þróun enda er talið að veltan nemi hundruðum milljóna ef ekki milljörðum. Bannað er að spila fjárhættuspil á Íslandi en Netið hefur gert fólki kleift að leggja undir stórar upphæðir án þess að nokkur verði þess var.

Stöð 2
Fréttamynd

MND í Japan

Íslenskir MND sjúklingar hafa val til að fara í öndunarvél til að lengja líf sitt. Þeir hafa einnig val um það hvenær öndunarvélin verði tekin úr sambandi, hvenær þeir fái að deyja. Í Japan er bannað samkvæmt lögum að slökkva á öndunarvélum. Japanskir MND sjúklingar sem fara í öndunarvél lokast inni í eigin líkama. Þeir geta ekkert tjáð sig. Þeir hafa ekkert val.

Stöð 2
Fréttamynd

Saddam allur

Aftakan á Saddan Hussein hefur vakið hörð viðbrögð víða um heim. Kompás rifjar upp feril þessa umdeilda leiðtoga.

Stöð 2
Fréttamynd

Halli heimilislausi

Ungum Íslendingi var hent fyrir lest í Kaupmannahöfn nýverið. Hann hefur dvalið á götunni í borginni um nokkurt skeið. Kompás hafði upp á manninum sem sagði frá atvikinu.

Stöð 2
Fréttamynd

Líknarinn í Byrginu

Síðustu mánuði höfum við skoðað starfsemi Byrgisins, eins kunnasta meðferðarheimils landsins fyrir áfengis- og fíkniefnaneytendur. Þetta byrjaði allt með bréfi sem skrifað var undir dulnefni. Þessi fyrsti hluti þáttarins er ekki við hæfi barna.

Stöð 2
Fréttamynd

Upprifjun á árinu 2006

Það var við hæfi þegar lok ársins tvö þúsund og sex nálgaðist að rifja aðeins upp nokkrar fréttir sem voru í Kompási á því ári; fréttir sem fólkið í landinu talaði um

Stöð 2
Fréttamynd

Brúðkaup aldarinnar

Jói og Gugga gengu í það heilaga rétt fyrir jól. Gunnar í Krossinum gaf þau saman, þrátt fyrir að þau væru fallin. Dagana fyrir brúðkaupið voru þau á götunni. Velgjörðarmenn þeirra, fólk sem sá algjörlega um veisluna og allt umstangið, leyfði þeim að gista hjá sér nóttina fyrir brúðkaupið.

Stöð 2
Fréttamynd

Vatnsævintýri í Japan

Íslendingar flytja út gríðarlegt magn af vatni til Japans á ári hverju. Kompás fór til Japans og kynnti sér þetta mikla vatnsævintýri.

Stöð 2
Fréttamynd

Borat - land og þjóð

Á fáum stöðum í veröldinni er annar eins hrærigrautur þjóða og þjóðarbrota að finna eins og í hinu fjarlæga Kasakstan. Andi gömlu Sovétríkjanna svífur enn yfir vötnum í þessu gríðarstóra landi, sem er ríkt af olíu og örðrum náttúruauðlindum.

Stöð 2
Fréttamynd

Bráðnun

Nýlegar rannsóknir vísindamanna á Suðurskautslandinu og Norðurskautinu benda til meiri hlýnunar í þeim heimshluta síðustu árin en hingað til hefur verið talið. Áhrifin geta orðið geigvænleg fyrir komandi kynslóðir verði ekkert að gert. Ætla má að sjávarhæð geti hækkað um tíu til tólf metra við Ísland sem gæti þýtt að stór hluti höfuðborgarsvæðisins, Akranes og Selfoss fari undir sjó.

Stöð 2
Fréttamynd

Feður eru foreldrar

Mun algengara er að foreldrar fari sameiginlega með forsjá barna sinna eftir skilnað en fyrir nokkrum árum. Enn er þó sárasjaldgæft að feður fari einir með forsjá barna.

Stöð 2