Diljá Mist - Þöggun umræðunnar ástæða aukinnar skautunar

Diljá Mist Einarsdóttir er þingkona Sjálfstæðisflokksins. Þetta er í þriðja skipti sem hún kemur í hlaðvarpið en í þessum þætti er lögð sérstök áhersla á málefni Palestínu, flóttafólks og hælisleitenda. Rætt er um hversu mörgum Ísland getur tekið á móti, tjaldbúðirnar á Austurvelli, rasisma, menningarleg áhrif innflutnings fólks á samfélagið, staðan í Evrópu og hvort að Ísland þurfi að læra af reynslu Breta og Norðurlandanna. Hlaðvarpið má finna í heild sinni á www.pardus.is/einpaeling

1093
16:10

Vinsælt í flokknum Ein pæling