Rostungar verði tíðari gestir á Íslandi
Tveir rostungar héldu til á Norðanverðu landinu um helgina og hafa þar með minnst fjórir rostungar komið til landsins á árinu. Sjávarlíffræðingur segir fjölgun heimsókna vera vegna breytinga á búsvæði skepnanna og eiga megi von á að rostungar verði tíðir gestir á Íslandi í framtíðinni.