Sprengjusveitin að störfum við Hverfisgötu
Sprengjusveitir Landhelgisgæslunnar og sérsveitar Ríkislögreglustjóra sprengdu í morgun torkennilegann pakka sem virðist hafa sprungið við Hverfisgötu 4 snemma í morgun. Gríðarlegur viðbúnaður var á staðnum og eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi var ítrustu varúðar gætt þegar hluturinn var gerður óvirkur. Fyrst var sérútbúið vélmenni sent að kassanum og hann sprengdur í loft upp. Síðan fór maður í sérstökum hlífðargalla að hlutnum og gekk úr skugga um að ekkert sprengiefni væri eftir.